25.10.1961
Sameinað þing: 7. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (3211)

18. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Flm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Um fátt er meira rætt og ritað hér á landi en lýðræði, hvað það sé gamalt og okkur í blóð borið, aldrei sé of mikið lagt í sölurnar til að vernda það. Ég vil ekki draga úr þessu. En við skulum líka minnast þess, að lýðræðið lifir ekki af fagurgala, heldur af því, að það sé í heiðri haft í framkvæmd. Lýðræði er það, að stjórnað sé að vilja meiri hluta landslýðsins, þjóðarinnar, og til þess að tryggja það er leitað eftir vilja kjósendanna a.m.k. á fjögurra ára fresti með almennum kosningum til Alþingis. Í kosningum eiga frambjóðendur og flokkar að lýsa því fyrir kjósendum, hvernig þeir ætli að stjórna, ef þeir fái völd til þess. Kjósendur greiða að jafnaði þeim frambjóðendum atkvæði, er þeir álita, að bezt vinni á Alþingi, m.a. samkvæmt þeim yfirlýsingum og loforðum, sem frambjóðendur hafa gefið. Með þessum hætti er leitað eftir meirihlutaáliti þjóðarinnar á því, hvernig skuli stjórnað, þangað til næst verður kosið. Eftir að frambjóðandi er kosinn, ber honum því í öllum höfuðatriðum að vinna á Alþ. í samræmi við það, sem hann lofaði og var kosinn til. Þetta er eitt grundvallaratriði lýðræðisins. Ef þingmenn og stjórn taka upp á því að stjórna í ósamræmi við það eða jafnvel gagnstætt því, sem þeir lýstu yfir og lofuðu kjósendum sínum fyrir kosningar, eru þær orðnar markleysa og lýðræðið innantómt orð. Í stað meirihlutavilja þjóðarinnar, í stað lýðræðis væri þá stjórnað gagnstætt þeim þjóðarvilja, sem fram kom í kosningunum, og þar með væru kosningarnar orðnar markleysa.

Við skulum nú í þessu ljósi athuga, um hvað var kosið haustið 1959, hvaða loforð voru gefin, og verður þá fyrst fyrir að athuga málin, sem eru og verða í sögunni sigild dæmi um ólýðræðisleg vinnubrögð. Landhelgismálið bar einna hæst í síðustu kosningum, vegna þess að um það virtist alger þjóðareining. Hver einasti frambjóðandi lýsti því yfir, hvar og hvenær sem færi gafst, að ekki kæmi til mála að hvika fyrir Bretum. Allir voru á einu máli um það, að sigur væri unninn í málinu. Margir lýstu því yfir, að næsta takmarkið væri landgrunnið allt. Nú vil ég spyrja: Hvaða kjósandi kaus þingmann til að hopa í málinu, til að minnka landhelgina, til að ganga á endurteknar yfirlýsingar, sem Íslendingar höfðu gefið frammi fyrir öllum heimi í þessu máli? Hvers vegna mátti ekki fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla? Af því að stjórnarflokkarnir vissu um fyrri loforð sin, vissu, að þeir yrðu minntir á þau, vissu um vilja þjóðarinnar, vissu, að þeir voru að kúga fram mái gagnstætt lýðræðislegum leikreglum, taka sér vald, sem kjósendur höfðu ekki veitt. Ætli það verði ekki héðan af nokkuð erfitt að fá menn til að treysta því, að þessir flokkar reki Breta úr landhelginni eftir 3 ár?

Engum blöðum er um það að fletta, að stjórnarflokkarnir voru kosnir út á loforðin að bæta lífskjörin. Þessi loforð voru gefin í ræðu og riti og til viðbótar letruð á stóra borða, sem strengdir voru yfir fjölförnustu göturnar í Reykjavík á kosningadaginn. Og hvað hafa kjósendur fengið fyrir atkvæðin út á loforðin? Stórfellda kjaraskerðingu, sem hefur aukizt með vaxandi hraða dag hvern, sem yfir hefur gengið síðan loforðsgefendurnir komust til valda. Það er erfitt vegna þingskapa að gefa svona vinnubrögðum rétt nafn, og ég læt hlustendur um það.

Þá er það þriðja stórloforðið, sem þjóðin verður aldrei of oft minnt á til viðvörunar. Það er loforð Alþfl. í haustkosningunum 1959 um stöðvun dýrtíðarinnar. Sjaldan mun loforð hafa verið gefið hátíðlegar, jafnoft endurtekið eða með jafnáberandi tilburðum. Flestir eða allir framámenn Alþfl. létu birta af sér stórar myndir í Alþýðublaðinu, og voru loforðin síðan prentuð eins og umgjörð eða geislabaugur um þær. Þeir lofuðu að hafa ekki samstarf um ríkisstj. við neinn nema þann, sem gengist undir þetta heit Alþfl. við þjóðina. Og til þess að leggja enn ríkari áherzlu á, hve trúir þeir væru þessu heiti, gáfu þeir út bráðabirgðalögin frægu um, að landbúnaðarvörur mættu ekki hækka í verði svo sem lög stóðu til. En sumarið 1959, sömu dagana sem þessi loforð voru endurtekin, voru trúnaðarmenn Alþfl. og Sjálfstfl. að ganga frá tillögum um viðreisnina, sem fólu í sér að leiða yfir þjóðina dýrtíð, sem á vörum hennar hefur hlotið nafnið óðaverðbólga. Þjóðin kaus stöðvun dýrtíðarinnar, fékk óðaverðbólgu.

Ég fullyrði, að ef Alþfl. og Sjálfstfl. hefðu sagt þjóðinni satt um fyrirætlanir sínar, þótt ekki hefði verið nema í þessum þremur málum, hefðu þeir ekki fengið meiri hluta. Þjóðin hefði ekki kosið yfir sig með opnum augum minnkandi landhelgi, óðaverðbólgu og stórfellda kjaraskerðingu. Hér skal til viðbótar minnzt á nokkur loforð, sumpart gefin fyrir, sumpart eftir kosningar, og virðist gilda sama regla um þau.

Eftirminnilegt er það loforð ríkisstj. að hætta skuldasöfnun við útiönd. Almenningur hefði lifað um efni fram. Hér skyldi staðar numið, sögðu stjórnarflokkarnir. Ríkisstj. hafði naumast fyrr gefið þetta loforð en hún aflaði sér rúmlega 800 millj. lánsheimildar erlendis, sem hún hefur notað óspart, en ekki til stórframkvæmda, heldur til eyðslu, og í árslok 1960, eftir eitt viðreisnarár, stóðu málin þannig, að greiðsluhallinn við útiönd var 704 millj. á árinu, reiknaður með sama hætti og greiðsluhalli undanfarinna ára í grg. viðreisnarinnar. Skrum ríkisstj. um gjaldeyrisafkomu bankanna er að hálfu leyti blekking, því að einkaaðilum hefur verið leyft að taka stór gjaldeyristán erlendis í stuttan tíma, sem léttir af bönkunum í bráðina. Svipaða sögu er að segja um sparifjársöfnunina, sem ríkisstjórnin gumar af og reiknar eina grein innlánsaukningar, spariféð, en ekki innlánsaukninguna í heild, sem ein gefur rétta mynd af ástandinu, enda svo fram talið í opinberum skýrslum. Hið sanna er, að innlánsfé í viðskiptabönkum og sparisjóðum, þ.e. að meðtöldum sparisjóðs-, ávísunar- og hlaupareikningum, jókst árið 1958 um 15.8%, 1959 um 13.8% og árið 1960 um 12% og þó raunverulega ekki nema um 9%, þegar tekið er tillit til vaxtahækkunar af innlánsfé, sem lagt er við innstæðurnar um hver áramót og reiknað sem aukning.

Núv. ríkisstj. lofaði því í viðreisnarboðskapnum að koma framleiðslunni á traustan grundvöll, þannig að staðið gæti án afskipta ríkisvaldsins. Hið gamla og spillta uppbótakerfi skyldi algerlega afnumið. Bent var á, að mikið yrði á sig að leggja til þess að losna við þetta kerfi, og margir trúðu einu sinni enn.

Uppbótakerfi getur verið með tvennu móti: í fyrsta lagi beinar uppbætur til framleiðenda í ofanálag á markaðsverð. Í annan stað niðurgreiðsla á neyzluvörum, til þess að hægt sé að halda kaupinu og þar með framleiðslukostnaði niðri, til þess að framleiðslan komist af með lægra verð. Ef niðurgreiðslur hyrfu, þyrfti framleiðslan hærra verð sem því svarar og yrði að fá beinar uppbætur. Í fjárl, fyrir árið 1962 eru niðurgreiðslur áætlaðar rúmlega 300 millj., sem þó er talið of lágt. Þessar niðurgreiðslur eru því uppbótakerfi í öðru formi. Þær eru önnur hlið á sama hlutnum. Ríkisstj. hagar sér í þessu efni eins og karlinn, sem hélt föstuna með því að kalla kjötið, sem hann át, klauflax. Þannig hefur ríkisstj. haldið þetta loforð. Eftir að viðreisnarkerfið hafði staðið árið 1960, varð reynslan af því sú, að einn útgerðarmaður úr Sjálfstfl. sagði á landsfundi útgerðarmanna, að enn hefði ekki verið upp fundið skordýraeitur, sem væri jafnhraðvirkt á skordýr og viðreisnin á útgerðina. Annar framámaður Sjálfstfl. kvað viðreisnina hafa verkað eins og lömun á þjóðarlíkamann. Afleiðingarnar í útgerðinni blasa við og sanna þessi ummæli. En það þori ég að fullyrða, að flestir bændur eru á einu máli um það, að landbúnaðurinn hafi orðið enn verr úti. Uppbygging og framfarir í þessum tveimur atvinnugreinum hafa að miklu leyti stöðvazt, því að fáir hafa lengur efni á að kaupa skip og enn færri möguleika til að stofna til búskapar. Þannig hefur ríkisstj. efnt það loforð sitt, sem er aðalatriði viðreisnarinnar, að koma framleiðslunni á traustan grundvöll.

Um fátt höfðu sjálfstæðismenn talað meira en of há fjárlög og um þær drápsklyfjar, sem lagðar voru á þjóðina. Þessu átti nú heldur en ekki að breyta. Við þetta loforð sitt hefur ríkisstj. staðið á þann hátt, sem fram kom í útvarpsumr. fyrir fáum dögum, að stjórnarflokkarnir hafa nærri tvöfaldað álögurnar á þremur árum og hafa þó gefizt upp við að koma saman hallalausum fjárlögum fyrir 1962, nema með óheyrilegum reikningsbrellum, svo að vægasta orðalag sé um það athæfi notað. Þannig hefur ríkisstj. staðið við loforð sín í þessu máli. Og þannig hafa öll loforð og áform ríkisstj. farið í sömu gröfina, jafnt þau, sem hún kann að hafa meint, og hin sígildu, vegna þess að stjórnarstefnan var vanhugsuð frá upphafi.

Ríkisstj, lýsti því yfir, að hún ætlaði ekki að skipta sér af verkföllum. Þegar trausti grundvöllurinn undir framleiðsluna hefði verið lagður með viðreisninni, ætti allt að ganga af sjálfu sér. Atvinnurekendur ættu sjálfir að semja um kaupið, ríkisstj. að sitja í sínum stólum afskiptalaus. Þetta er að vísu gagnstætt því, sem tíðkast í lýðræðislöndum, þar sem hlutaðeigandi ráðherrar leggja sig fram þegar í byrjun vinnudeilna, oft með góðum árangri, til þess að koma í veg fyrir, að deilan leiði til illvígra verkfalla. Ekki dettur mér það í hug að gera þá kröfu til núv. ríkisstj., að á hennar valdi sé frekar en annarra ríkisstjórna að koma í veg fyrir öll verkföll eða hún hafi átt að ganga að öllum kröfum sérfróðra manna eða annarra launþega, sem oftast eru líka settar fram sem hámarkskröfur, án þess að þeir búist við að fá þeim framgengt að fullu. En hitt fullyrði ég, að núv. ríkisstj. hefur yfirleitt tekið svo ólánlega á vinnudeilum, að til stórtjóns er fyrir þjóðina og afleiðingar ófyrirsjáanlegar. Ríkisstj. hefur í hverri deilu þrjózkast við, spillt samningum bak við tjöldin, en þegar allt var komið í mesta öngþveiti og stórverðmæti glötuð, ýmist guggnað eða sett brbl.

Með samningum er oft hægt, áður en gagnkvæm stífni kemst í málið, að ná betri lausn. Það er t.d. almæli, að áður en brbl. voru sett um flugmennina, hefði verið hægt að ná engu óhagstæðari samningum en nýlega náðust, ef ríkisstj. hefði látið málið afskiptalaust. Það er skoðun margra, að ef gengið hefði verið með dugnaði og lagni til samninga við lækna, hefðu náðst hagkvæmari samningar en eftir að brbl. voru sett, í því andrúmslofti, sem þau hafa skapað. En þó er framkoman í kaupdeilu lægra launaðra stétta enn furðulegri. Stöðvun hófst í Vestmannaeyjum í byrjun þessa árs vegna verkfalls atvinnurekenda, er stafaði af ósamkomulagi um fiskverð, þar sem ríkisstj. mistókst að miðla málum. Síðan tók verkfallið við. Þegar heyrðust þær raddir úr stjórnarherbúðunum, að nú skyldi fyrsta verkfallið kæft í fæðingunni, hvað sem það kostaði. Bak við tjöldin neitaði ríkisstj. atvinnurekendum um að semja, þangað til mikið af vertíðinni var tapað. Þá var samið um kauphækkun. Ríkisstj. sat uppi með óvirðingu fyrir afskiptin, þjóðin, útgerðarmenn og verkamenn með margra milljóna tap. Áður en þetta gerðist, hafði Alþýðusamband Íslands leitað eftir samningum við ríkisstj. um kauphækkun og boðizt til að reikna sérhverja lækkun á framfærslukostnaði sem kauphækkun. Ríkisstj. dró öll samtöl á langinn, svaraði loks því, að engin kauphækkun til verkamanna eða bænda kæmi til greina.

Í þessu sambandi vil ég minna á það, að haustið 1958 bar Framsfl. fram, fyrst í vinstri stjórninni, síðar á Alþýðusambandsþingi, tillögur í efnahagsmálum. Samkv. þeim tillögum voru lífskjör vinnustéttanna 15–20% betri en þau voru orðin s.l. sumar. Þá, haustið 1958, eggjuðu sjálfstæðismenn ásamt Alþýðuflokksmönnum og kommúnistum, allir sem einn, verkamenn á að hafna þessu boði, sem þeir og gerðu. Á þessum forsendum rufu ráðandi pólitískir verkalýðsleiðtogar það samstarf við Framsfl., sem auðvelt var að halda áfram á grundvelli þessara tillagna. Hér má skjóta því inn í, að sú saga, að Framsfl. hafi gefizt upp við að stjórna, er því sannarlega hreint öfugmæli, margendurtekið, í von um, að menn viti ekki betur, því að hvort tveggja lá fyrir, að flokkurinn var reiðubúinn til að bera ábyrgð á stjórn landsins og hafði gert grein fyrir þeirri leið, sem hann vildi fara. En í sumar, eftir að lífskjör verkamanna höfðu, eins og fyrr segir, versnað síðan 1958 um 16–20%, sögðu ýmsir helztu sprengiforkólfarnir frá 1958, að lífskjörin mættu nú umfram allt ekki batna. Er nokkur furða, þótt svona vinnubrögð geri vinnustéttirnar tortryggnar og þær telji, að ekki hafi borgað sig að fella vinstri stjórnina?

Eftir langt samningaþóf tilkynnti ríkisstj., að reiknað hefði verið út, að fjárhagskerfið þyldi 3% kauphækkun, en ekki eyri meira, eftir enn lengra þóf urðu þetta 6% og loks eftir langt verkfall 6% plús 4% eftir eitt ár. Þetta tilboð felldu flest verkalýðsfélög og atvinnurekendur. Þegar hér var komið, var auðsætt, að verkföllin voru að komast á enn verra stig en í Vestmannaeyjum. Ýmsir töldu, að jafnvel væri að draga til allsherjarverkfalls. Ríkisstj. sat ráðalaus og hafðist ekkert að. Yfirvofandi var m.a., að síldarvertíðin fyrir Norðurlandi glataðist þjóðinni að meira eða minna leyti og þar með lítt bætanleg verðmæti. Þá var það, að samvinnufélögin tóku af skarið, björguðu málinu með samningum um kauphækkun, sem ekki var meiri en ríkisstj. hafði látið semja um í Vestmannaeyjum og ekki meiri en svo, að vinnustéttirnar náðu naumast eða ekki þeim lífskjörum, sem þeim stóðu til boða 1958 og ýmsir mektarmenn kváðu allt of lág þá. Og í samningunum er tekið fram, að þeir skuli gilda, þótt vísitalan hækki allt að 5 stigum. En þá loks leyfði ríkisstj., að samið yrði við verkalýðsfélögin og víða um hærra kaup en samvinnufélögin höfðu samið um. En í stað þess að nota sér hina hagkvæmu samninga, sem samvinnufélögin höfðu lagt grundvöllinn að, til að hverfa frá samdráttar- og lömunarstefnunni og taka upp framfara- og framleiðslustefnuna, leysa framleiðsluna úr fjötrum vaxtaokurs og lánsfjárkreppu, leggja áherzlu á aukna framleiðni, sem Framsfl. hefur margsinnis fært rök að, að væri eina leiðin út úr ógöngunum, tekur ríkisstj. sig til, heldur enn lengra út í foraðið, gefur út hin alræmdu brbl. um nýja gengisfellingu og tekur þar með allar kauphækkanir af vinnustéttunum og vel það, áður en blekið er þornað af samningunum, sem hún hafði leyft atvinnurekendum að gera. Það þarf naumast að skýra það fyrir þjóðinni, hve skynsamleg og drengileg þau eru, þessi vinnubrögð, og hvaða afleiðingar þau kunna að hafa í för með sér. Það er máske engin furða, þótt stjórnarflokkarnir, sem staðnir eru að vinnubrögðum þeim, sem ég hef lýst, kæri sig ekki um reikningsskil í kosningum.

Vinnubrögð núverandi stjórnar minna um margt á stjórnarfarið 1942, þegar Sjálfstfl. tók við stjórnarforustunni og lofaði stöðvun dýrtíðarinnar, en leiddi yfir þjóðina slíka verðbólguskriðu, að vísitalan hækkaði á fáum mánuðum um 89 stig. Þá voru sögð þessi eftirminnilegu orð, að með einu pennastriki mætti stöðva dýrtíðarskriðuna, þegar þörf þætti. Þessi vinnubrögð voru upphaf glundroðans í efnahagsmálakerfi þjóðarinnar, sem engin ríkisstj. hefur að fullu ráðið við síðan. En ef viðreisnin á að vera pennastrikið, er ljóst orðið, að í stað þess, að það pennastrik stöðvi og lækni, hefur það enn aukið hraða dýrtíðarskriðunnar og sýkt efnahagskerfið enn meir, svo að ekki minnir á annað fremur en upphafið sjálft, dýrtíðardrauginn, sem var vakinn upp 1942.

Nú er svo fyrirskipað í stjórnarráðinu, að fyrir öllu verði að ganga að semja nýja loforðaskrá, sem kölluð er fimm ára áætlun. Þessa loforðaskrá á að birta þjóðinni með öllum þeim hávaða og auglýsingaskrumi, sem tiltæk eru, nægilega snemma fyrir næstu kosningar. Í þessum hávaða á að reyna að láta kjósendur gleyma því, að þeim var fyrir síðustu kosningar lofað bættum lífskjörum, en fengu síversnandi lífskjör, að þeim var lofað stærri landhelgi, en fengu minnkaða landhelgi, að þeim var lofað stöðvun dýrtíðarinnar, en fengu í staðinn óðaverðbólgu, og annað eftir því, svo sem ég hef fært rök að. En nýju loforðin verða eins meint og eins haldin og gömlu loforðin fyrir síðustu kosningar, því að mennirnir, sem loforðin gefa, eru sömu mennirnir og áður, staðráðnir í því að nota að nýju sömu aðferðina og þeir telja, að áður hafi reynzt vel við kjósendur, því að íhalds- og samdráttarstefna breytir ekki um eðli við að láta skrá og dreifa út um landið nýjum kosningaloforðum.

En ef það reynist sigursælt með þjóðinni að gefa hvers konar loforð fyrir kosningar og vinna síðan alveg gagnstætt því á Alþingi og í ríkisstj., þá eru kosningar orðnar næsta þýðingarlitlar og vald kjósendanna hverfandi. Einræðið á þá skammt ófarið í hásætið. Kjósendur einir hafa vald til þess að afstýra þessu, og það geta þeir með því að refsa í kosningum þeim flokkum, sem halda uppi slíkum vinnubrögðum, sem ég hef lýst, því að þegar flokkar tapa í kosningum á þessum vinnubrögðum og fyrst þá munu þeir leggja þau til hliðar. Kjósendur hafa þá endurheimt vald sitt, og lýðræðið verður styrkara.

Á s.l. sumri, þegar ríkisstj. hótaði nýrri gengisfellingu og dýrtíðaröldu, krafðist Framsfl. þess með bréfi til forsrh., að hann léti kosningar fara fram, áður en til slíks yrði gripið, svo að þjóðin fengi tækifæri til að segja vilja sinn um það, hvort lengra skyldi haldið á braut samdráttarstefnunnar eða tekin upp ný stefna. Þessu bréfi hefur enn ekki verið svarað, nema ef vera skyldi á þann hátt að grípa til hinna alkunnu ráðstafana gegn vinnustéttunum, sem stefna fjárhagskerfinu og þjóðinni út í enn verri ófæru en áður. Vantraustið er borið fram til þess að reyna á það, hvort hægt er að koma því til vegar, þótt seint sé, að þjóðin fái tækifæri til að láta í ljós vilja sinn.

Ég tel mig hafa fært að því skýlaus rök, að þannig hefur verið stefnt og stjórnað tvö síðustu árin, að þjóðin á fullan rétt á því að fá þetta vald í sínar hendur. Og ég vil skora á alþm. að veita kjósendum þennan rétt, sem þeir eiga, með því að greiða vantrauststillögunni atkvæði.