25.10.1961
Sameinað þing: 7. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (3215)
18. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Þið hafið hlustað á tvo hæstv. viðreisnarráðherra og heyrt sönginn um björgunarstarfið hjá hæstv. ríkisstj. og hennar liði. Þessir menn halda, að þeir séu að tala til minnissljórra kjósenda, sem séu búnir að gleyma öllum fögru fyrirheitunum frá haustkosningunum 1959, en hv. þm. Hermann Jónasson minnti mjög réttilega á þessi loforð, sem þeir gáfu, í ræðu sinni áðan, og læt ég það nægja.
Síðan núverandi valdasamsteypa hófst, hefur réttur hinna smáu smækkað, en réttur hinna stóru stækkað. Þannig er réttlæti flokks alþýðunnar, sem hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslsson; var að lýsa hér áðan í ræðu sinni, og þannig er réttlæti flokks allra stétta, Sjálfstfl., sem hæstv. forsrh., Bjarni Benediktsson, lýsti einnig í ræðu sinni áðan.
Ég mun takmarka mál mitt við landbúnaðinn og sýna fram á það, hvernig þar er umhorfs eftir tveggja ára starf hæstv. ríkisstj.
Sú kynslóð, sem nú er að hefja lífsstarf sitt í þessu landi, er vel menntuð og gjörvileg og líkleg til stórra átaka, landi og þjóð til heilla. En hún á erfitt með að sætta sig við það að sjá vonir og drauma æskuáranna verða að engu í flóði dýrtíðar og óstjórnar. Flestir hugsa sig um, áður en þeir leggja út í það að hefja búskap í sveit, því að svo er þar nú að mönnum þrengt.
Ómissandi eign hvers bónda er dráttarvél, en hún kostar nú af dísil-Ferguson gerð 101500 kr., en kostaði áður en viðreisnin hófst 52768 kr., hefur því hækkað um hvorki meira né minna en 92.5%, eða 48732 kr., og eftir þessu fer margt annað. Ofan á þetta bætist svo það, að af 416 dráttarvélum, sem fluttar voru inn á þessu ári, eru 322 gamlar, sem bændur annarra þjóða telja sér ekki hagfellt að nota, en sakir fjárskorts eru íslenzkir bændur tilneyddir að kaupa þessar vélar. Það er ekki að undra, þótt hæstv. landbrh., Ingólfur Jónsson, ráðlegði kjósendum sínum 1958 að bíða með vélakaupin, þangað til áhrifa hans færi að gæta meira á sviði stjórnmálanna en þá var um skeið.
Sement hefur hækkað um 76% og timbur um 59%, svo að ekki blæs byrlega fyrir þeim, sem þurfa að byggja. Þótt lánaðar séu 90 þús. kr. úr byggingarsjóði, nægir það ekki fyrir þeirri hækkun, sem orðið hefur á efniskaupum í tíð viðreisnarinnar. M.ö.o., sá bóndi, sem byggir nú, stendur lakar að vígi en hinn, sem byggði 1959, þótt hann hefði þá ekki fengið neitt að láni. Lánið fer allt í hækkanir, sem orðið hafa síðan 1958. Samhliða því að draga inn í Seðlabankann hluta af innstæðum landsmanna og skerða á þann hátt möguleika á því, að fjármagnið komi þeim til góða, sem þess afla, hækkar hæstv. ríkisstj. vexti hjá byggingarsjóði úr 3.5% upp í 6%. Lánstíma hjá ræktunarsjóði styttir hún úr 25 árum niður í 15 ár og vexti hans hækkar hún úr 4% upp í 6.5%. Lán út á afurðir landbúnaðarins frá seðlabankanum hafa lækkað frá 1958 úr 67% niður í ca. 50%, jafnframt því sem almennir viðskiptavextir hafa stórhækkað. Þannig er umhorfs í lánamálum landbúnaðarins nú samanborið við það, sem var áður en viðreisnin hófst.
Jafnframt þessu hefur framfærslukostnaður stórhækkað og getan til að standa straum af vöxtum og afborgunum lána því stórminnkað. Síðan kemur hæstv. ríkisstj. með brbl. í sumar um nýjan lánaflokk hjá veðdeild Búnaðarbankans, um það, að út skuli gefin skuldabréf, sem bændur eiga að nota til greiðslu lausaskulda sinna, en geta það þó því aðeins, að skuldareigandi hafi ráð á að taka þau gild sem greiðslur. Af bréfum þessum eiga bændur að borga 8% í vexti eða jafnháa vexti og borgað var hæst af löglegum víxlum, áður en núv. stjórn kom til valda. Þetta er fyrirheitið um hagstæðu lánin, sem hv. þm. Jónas Pétursson lýsti í útvarpsræðu sinni á s.l. vetri. Þessi hv. þm. sagði þá, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita eftir því við banka og sparisjóði, að hluta af víxilskuldum bænda verði breytt í föst lán til langs tíma með hagstæðum vaxtakjörum:
Þá vitið þið það, bændur góðir, hvað íhaldið kallar hagstæð lán. Það eru lán með 8% vöxtum, ekki af peningalánum, heldur af verðbréfum, sem sárafáir bændur hafa aðstöðu til að nota sér. Það minnsta, sem hægt er að sætta sig við í þessum efnum, er, að landbúnaðurinn njóti eigi lakari kjara en sjávarútvegurinn fær með stofnlánadeild sinni. Þar eru vextirnir 61/2% og skuldabréfin tekin á nafnverði upp í margvísleg bankaviðskipti. Auk þess njóta vinnslustöðvar sjávarútvegsins sömu hlunninda, en fyrirtæki landbúnaðarins, svo sem frystihús, sláturhús o.fl., eru útilokuð frá lánum þessum. Hér er því greinilega gert upp á milli tveggja höfuðatvinnuvega þjóðarinnar. Yfirleitt eru útgerðarmenn ekki ofsælir af þessum kjörum, og þótt bændur nytu hliðstæðra lánakjara, eins og við framsóknarmenn lögðum til á s.l. vetri, verða þeir sízt of vel settir.
Síðan kemur hæstv. landbrh., Ingólfur Jónsson, á landsfund sjálfstæðismanna og segir þar, með leyfi forseta: „að batnandi hagur bænda og viðreisnin fari saman,“ — að batnandi hagur bænda og viðreisnin fari saman.
Já, íhaldsmenn hafa löngum gert sér tíðrætt um það, að breyta þurfi núgildandi landbúnaðarlöggjöf, vegna þess að of mikið beri þar á fangamörkum okkar framsóknarmanna. Nú eru þessir menn að setja sitt stimpilmerki á löggjöf landbúnaðarins. En sá stimpill mun ekki verða þeim til heiðurs né bændastéttinni til góðs.
Landbúnaður okkar Íslendinga færist meir og meir í það horf að verða ræktunar- og tæknibúskapur, og hefur verið farsæl þróun þessara mála þar til nú, að skipt er um hér sem víðar. Árið 1958 voru 48 skurðgröfur starfandi og grófu rúmlega 4 millj. rúmmetra. En hver rúmmetri kostaði kr. 3.97. í sumar eru 29 gröfur að verki og talið, að þær grafi 2.6 millj. rúmmetra, er kosta ca. 5 kr. hver rúmmetri. En 19 skurðgröfur eru vinnulausar. Þetta eru of dýr og stórvirk tæki til að vera aðgerðalaus, en ástæðan er stórhækkun vinnslukostnaðar og skortur á rekstrarfé. Þó er þetta sú framkvæmd, sem hæst framlag fæst til af hálfu ríkisins.
Þá hefur nýrækt minnkað um 18.7% árið 1980 frá árinu áður. Vitað er, að samdráttur í þessum framkvæmdum hefur arðið tilfinnanlegri á þessu ári, enda erfiðara um útvegun lánsfjár, jafnframt því sem framlag ríkisins fer lækkandi, miðað við kostnað. Langt er síðan rekstrarafkoma landbúnaðarins hefur verið jafnerfið og nú. Kröfur bænda í verðlagsmálum þeirra hafa alltaf verið hófsamar, enda hafa þeir orðið að leggja mjög hart að sér og sínum í lífsbaráttunni, samhliða því sem þeir meta réttilega kröfur annarra stétta. Bændur búa einir allra stétta við gerðardóm í kjaramálum sínum. Það er því ekki lítill vandi, sem hvílir á herðum þeirra manna, sem með vald þetta fara, ef réttlætið á að sitja í öndvegi. En bændum dylst ekki, að allmikið skortir á, að svo sé nú, eins og framleiðsluráð landbúnaðarins lýsir réttilega í áliti sínu á úrskurði meiri hluta yfirnefndarinnar. Það einkennilega er, að verðlagsgrundvöllurinn hækkar aðeins um 13.8%, þegar óvéfengjanlegar tölur lágu fyrir um það, að hækkunin þyrfti að vera 33% til þess að rísa undir auknum rekstrarkostnaði og þeim launum bænda, sem lögin um verðlagsgrundvöllinn gera ráð fyrir. Aðferðin var sú að auka afurðamagn búanna á pappírnum og gera bændum upp aukatekjur af öðru en búrekstri og strika út fyrningar af útihúsum og lækka stofnkostnað búanna ásamt vöxtum þeirra niður í 3.5%. Það kann ekki góðri lukku að stýra, ef bændum er gert ókleift að halda búskap sínum í því horfi, sem nauðsyn krefur, og mun ekki heldur verða öðrum stéttum til góðs, þegar til lengdar lætur. Eftir þennan úrskurð í verðlagsmálum landbúnaðarins munu þeir bændur vera margir, sem hugleiða það; á hvern hátt betur megi tryggja afkomu sína en nú er og skapa meira jafnrétti á milli þegna þjóðfélagsins en nú stefnir að með þeirri geysilegu dýrtíð, sem núv. ríkisstj. hefur valdið og engan veginn getur tekizt að mæta með hinum nýúrskurðaða verðlagsgrundvelli. Á sama tíma og „bændabýlin þekku eru vanmetin til eignar, er lítill lóðarblettur í höfuðborg landsins seldur á 10 millj. kr. Geta menn búizt við því, að hin dugmikla æska festi rætur í sveitum landsins, þegar svona mikill munur er gerður á verðmætum landsins gagns og gæða?
Fyrir framsýna forustu og fastmótaða félagshyggju í landbúnaðarmálum hefur árvekni og dugnaður bændanna notið sín og framleiðsluaukningin orðið jöfn og stígandi með hverju ári, sem hefur liðið. Nú skortir þjóðina ekki þá neyzluvöruframleiðslu, sem landbúnaðurinn getur veitt, en hefði hins vegar núverandi samdráttarstefna ríkt í landsmálum siðasta áratuginn, þyrfti nú að flytja inn landbúnaðarafurðir fyrir rúmlega 300 millj. kr. á ári. En í þess stað borga útfluttar landbúnaðarafurðir því sem næst allar innfluttar rekstrarvörur til landbúnaðarins. En það er augljóst mál, að ef íslenzkur landbúnaður á að gegna hlutverki sínu framvegis, mega umbæturnar ekki stöðvast. Miðað við sömu neyzlu og hlutfallslega sömu fólksfjölgun og undanfarin ár, þarf að tvöfalda landbúnaðarframleiðsluna fyrir næstu aldamót. En ef sú samdráttarstefna á að ríkja, sem nú einkennir forustu landsmálanna, er útilokað að ná því takmarki.
Ég hef fært hér rök fyrir tillögu þeirri, sem hér um ræðir. Ég treysti því, að þið, hlustendur góðir, liggið ekki á liði ykkar og stuðlið þar með að því á sviði stjórnmálanna að skapa komandi kynslóðum farsælli framtíð en nú virðist vera í vændum. — Góða nótt.