28.02.1962
Sameinað þing: 38. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (3247)
91. mál, afturköllun sjónvarpsleyfis
Jón Skaftason:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Hæstv. utanrrh. hélt því fram hér áðan, að íslenzkum ráðamönnum hafi verið um það kunnugt, áður en sjónvarpsleyfið var veitt 1955, að ekki væri hægt að hindra, að það sæist í nærsveitum vallarins. Mér er kunnugt um, að í bréfi yfirmanns varnarliðsins frá 24. ágúst 1954 til utanrrn. var það fullyrt, að engir tæknilegir erfiðleikar væru á því að fyrirbyggja, að sjónvarp vallarins sæist í nærsveitum Keflavíkurvallar, og voru þar sérstaklega tilnefnd sem dæmi Keflavíkurkaupstaður og Grindavík.
Þá hélt hæstv. utanrrh. því fram, að meginástæðan fyrir því, að fimmfalda varð sendiorku Keflavíkursjónvarpsins á s.l. ári, hafi verið sú, að endurnýja hafi þurft sjónvarpstækin og ekki hafi verið hægt að fá keypt minni tæki en 250 watta, sem þó hafi ekki að hans sögn, meiri sendikraft en 50 watta 7 ára gömlu tækin höfðu. Mér virðist því vera hér um tæknilega afturför í gerð sjónvarpstækja að ræða, enda þótt almenningur hafi til þessa trú á því, að framfarir í gerð þeirra væru mjög stórstígar á öllum sviðum.
Hv. 3. þm. Reykn., Matthíasi Á. Mathiesen, tókst hér áðan að verja mestöllum ræðutíma sínum án þess að koma inn á það umræðuefni, sem er hér á dagskrá. Flutti hann eina af þessum ofstækisfullu andkommúnístaræðum, sem höfða frekar til tilfinninga en greindar hv. hlustenda. Ég tel slíkan ræðuflutning móðgun við hlustendur á Íslandi.
Sú till. til þál., sem hér er til umr., felur í sér tvö efnisatriði. Hið fyrra er um afturköllun á sjónvarpsleyfi Bandaríkjahers á Íslandi, hið síðara er hógvær viljayfirlýsing flm. um, að ríkisútvarpið haldi áfram athugunum á möguleikum á rekstri íslenzks sjónvarps, þótt ræða hv. 1. flm. hér áðan virtist benda eindregið til þess, að hann væri andvígur innlendu sjónvarpi. Ég mun hér á eftir víkja að báðum þessum atriðum, eftir því sem tíminn leyfir.
Á árunum 1964 og 1955, þegar samstjórn framsóknarmanna og sjálfstæðismanna fór með völd í landinu, var sú stefna upp tekin af íslenzkum stjórnvöldum, að heppilegast og eðlilegast væri að draga úr ónauðsynlegum samskiptum landsmanna og varnarliðsmanna. Var sú stefna í samræmi við stefnu flestra þjóða og þá ekki sízt fámennra þjóða, sem af illri nauðsyn þurftu að heimila dvöl fjölmenns erlends herliðs í löndum sínum um tíma. Við þessar aðstæður og eftir að settar höfðu verið strangar reglur um bæjarleyfi hermanna af Keflavíkurflugvelli, báru foringjar varnarliðsins fram óskir um, að íslenzk stjórnvöld veittu leyfi til þess að reisa og reka sjónvarpsstöð á Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi að búa betur að varnarliðsmönnunum, gefa þeim kost á fræðslu og skemmtiefni á dvalarsvæðum sínum. Á þessum árum sótti varnarliðið ítrekað um þetta sjónvarpsleyfi, og kom það víða fram í umsóknum þessum, að það hugðist eingöngu reisa litla sjónvarpsstöð til afnota fyrir sína menn, enda var leyfisveitingin, þegar hún loks var afgreidd árið 1955, bundin því meginskilyrði. Þannig fór á þessum tíma saman skilningur forsvarsmanna varnarliðsins og íslenzkra stjórnvalda á því, hvers eðlis Keflavíkursjónvarpið ætti að vera og hvaða tilgangi það ætti að þjóna.
Á s.l. vori gerðist hins vegar það, að forustumenn varnarliðsins sóttu um leyfi utanrrh. til þess að fimmfalda sendikraft Keflavíkursjónvarpsins og gera því þannig mögulegt að ná til alls þéttbýlissvæðisins við Faxaflóa, þótt á ófullkominn hátt væri. Utanrrh., Guðmundur Í. Guðmundsson, veitti þetta leyfi skömmu síðar. Með þessari leyfisveitingu er hið svonefnda sjónvarpsmál sveigt inn á allt aðrar brautir en það var árið 1955. Forustumönnum varnarliðsins virðist ekki lengur nægja, að Keflavíkursjónvarpið nái til samningssvæða hersins einna, eins og áður var, af hverju sem sú afstöðubreyting þeirra kann að stafa, og íslenzk stjórnvöld virðast nú geta sætt sig við, að eina sjónvarpið, sem rekið er í landinu, nái til meginþorra þjóðarinnar, enda þótt Íslendingar ráði engu um rekstur og efnisval þess. Þessa stefnubreytingu tel ég varhugaverða. Ég hef ávallt litið þannig á, að dvöl erlends varnarliðs hér á landi helgaðist af því einu, að hún væri nauðsynleg til þess að forða frá öðru verra og enn pá þungbærara hlutskipti. Ég trúi því a.m.k., þar til ég verð með rökum sannfærður um annað, að samstaða lýðræðisþjóða, m.a. á sviði sameigintegra varna, sé nauðsynleg forsenda þess, að knýja megi árásaröflin til samninga um allsherjarafvopnun undir ströngu alþjóðlegu eftirliti og þannig tryggja haldgóðan frið í heiminum, sem Íslendingar eiga ekki minna undir en aðrir. Dvöl erlends herliðs hér hefur verið og á einungis að vera í þessu skyni og ekki vara degi lengur en slíkt verður talið nauðsynlegt af dómbærum mönnum. Að ætla erlendu herliði að ráða yfir sterkri sjónvarpsstöð í landinu, er nái til meginþorra landsfólksins, er bæði rangt og getur verið stórhættulegt. Sjónvarpið er langöflugasta áróðurstækið, sem þekkist, og þeir, sem því ráða, hafa aðstöðu til þess að skapa almenningsálit, sem getur verið bæði rangt og skaðlegt.
Það, sem Íslendingar eiga að gera í sjónvarpsmálum, er að hefja nú þegar undirbúning að því að reisa innlenda sjónvarpsstöð, sem þeir ráði sjálfir rekstrinum á. Þetta er vel framkvæmanlegt, og sýna þær athuganir, sem ríkisútvarpið hefur látið gera í þessum málum, það ljóslega. Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef aflað mér, hefur yfirverkfræðingur European Broadcasting Comp. Union og Eurovision, Belgíumaðurinn C. Hansen, athugað aðstæður til sjónvarpsrekstrar hér á landi. Hann hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að vel sé framkvæmanlegt að reka sjálfstætt sjónvarp á Íslandi þrátt fyrir mannfæðina. Sjónvarpsstöð, sem byggð yrði í Reykjavík, mundi geta náð til á annað hundrað þúsund manna. Sérfræðingurinn telur, að samkvæmt reynslu annarra þjóða megi ætla, að eftir fimm ár verði sjónvarpsnotendur það margir hér á landi, að þeir ásamt auglýsingatekjum sjónvarpsins gæfu um 10 millj. kr. árlega í tekjur fyrir sjónvarpið, en það telur hann að mundi nægja til þess að starfrækja hér sjónvarpsstöð í 21/2–3 klst. á dag. Stutt, en góð sjónvarpsdagskrá er líka æskilegri en löng og léleg. Að þessu eigum við að keppa sem allra fyrst, og veruleg útbreiðsla á Vallarsjónvarpinu mundi að mínu viti torvelda og seinka því, að hér kæmist upp innlent sjónvarp, þar sem það mundi veikja fjárhagslegan rekstrargrundvöll þess og gera því samkeppnina fyrstu og erfiðustu árin mjög erfiða. Auk þessa ætti íslenzkt sjónvarp að geta boðið upp á skemmtilegra, menningarlegra og fróðlegra sjónvarpsefni og meira við hæfi þjóðarinnar heldur en Vallarsjónvarpið undir stjórn útlendinga getur gert, með eigin sjónvarpssendingum og með því að velja hið bezta sjónvarpsefni frá öðrum þjóðum, eftir að geimsjónvarpið er orðið að veruleika og útbreitt, en fróðir menn telja, að það verði eftir örfá ár.
Menn deila hér á Íslandi sem annars staðar um gildi sjónvarps, og sýnist einum hvítt það, sem annar telur svart. Menn ættu ekki að eyða mjög miklum tíma í slíkar deilur. Þær eru ófrjóar, því að það er augljóst, að sjónvarpið verður almenningseign hérlendis sem erlendis fyrr en síðar. Hitt skiptir meiru, að á skynsamlegan og raunhæfan hátt sé byrjað á undirbúningi að innreið sjónvarpsins á Íslandi. Tryggja þarf fjárhagslegan grundvöll þess, og af áætlun, sem samin hefur verið á vegum ríkisútvarpsins og mér hefur verið skýrt frá, virðist það ekki ýkjamikið vandamál, því að samkvæmt þeirri áætlun er gert ráð fyrir því, að sjónvarp, er hæfi rekstur sinn hér á landi á árinu 1963, mundi fimm árum siðar, þ.e.a.s. árið 1967, skila í hreinar tekjur á milli 3 og 4 millj. kr., sem síðar mætti nota til þess að stækka sjónvarpið og bæta og fegra sjónvarpsefnið, eftir því sem árin líða. Við þurfum að mennta og þjálfa starfsfólk, bæði hér heima og erlendis, fyrir sjónvarpið, koma upp húsakosti yfir starfsemina, og síðast, en ekki sízt, þyrfti að ákveða fljótlega, hvaða sjónvarpskerfi hér yrði notað, svo að almenningur gæti vitað um það, þegar hann gerir kaup á sjónvarpstækjum sínum. Annars á hann það á hættu, að kostnaðarsamar breytingar þurfi að framkvæma á þeim, ef þau eiga að vera nothæf, en í flestum tilfellum munu þau sjónvörp, sem nú eru í gangi, vera ónothæf, ef við tökum upp svonefnt Evrópukerfi hér á Íslandi, þegar að því kemur, að við förum að reka innlent sjónvarp.
Að síðustu þetta: Yfirráð útlendinga yfir sjónvarpsstöð, er næði til meginþorra landsmanna, má líkja við á margan hátt, að útlendingar réðu útvarpi okkar, blöðum okkar og skólum landsins að meira eða minna leyti. Hygg ég, að flestir geti verið mér sammála um, að slíkt væri óþolandi sjálfstæðri þjóð. Hvorki tæknilegir, fjárhagslegir né aðrir erfiðleikar gera Íslendingum erfiðara að reisa og reka eigin sjónvarpsstöð heldur en það er að reisa og starfrækja eigin skóla og eigin útvarp. Notendum sjónvarps í landinu gæti íslenzk sjónvarpsstöð tryggt skemmtilegra og betra dagskrárefni en Keflavíkursjónvarpið er fært um að gera. Keppum því að því, góðir hlustendur, að reisa eigin sjónvarpsstöð hér á landi og taka hana til starfrækslu sem fyrst, minnugir þess, að enginn getur neytt ábyrga íslenzka sjónvarpsstjórn til þess að sjónvarpa ómerkilegu og siðspillandi efni. — Góða nótt.