11.10.1961
Sameinað þing: 1. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

1. mál, fjárlög 1962

Eysteinn Jónsson:

Gott kvöld. Þegar hæstv. fjmrh. tók við, lýsti hann hátíðlega yfir því, að hann ætlaði að koma því á, að öll reikningsskil fyrir ríkið yrðu miklu fyrr á ferðinni en áður hefði þekkzt. Ekki virðist mér fara mikið fyrir efndum á þessu, heldur miðað aftur á bak, þar sem hér á Alþ. hafa ekki komið fram upplýsingar um afkomu ársins 1960 fyrr en nú í kvöld og reikningi ársins hefur ekki verið útbýtt á Alþingi. Liggur nú þó fyrir afkoma ríkissjóðs fyrsta ár viðreisnarinnar og hefur staðið sem næst í járnum.

Mikið er þessi útkoma þó öðruvísi en forráðamenn höfðu ætlazt til. Einn liður viðreisnarinnar var sem sé sá að moka á þjóðina nýjum álögum til ríkissjóðs, og áttu þær að gefa a.m.k. 450 millj. kr. í tekjur, miðað við samandreginn þjóðarbúskap. Átti með þessu móti og of hárri áætlun útgjalda að tryggja stórfelldan greiðsluafgang á árinu 1960, sem átti svo að frysta með hluta af sparifénu til að minnka peningaveltuna og auka samdráttinn. Skyldi þetta vera einn liður í því að ná fé af fólki, svo að það gæti minna keypt og minna lagt í framkvæmdir. Til viðbótar álögunum voru fjárl. 1960 styrkt með því að áætla útgjaldahækkun allt árið vegna gengislækkunarinnar og nýrra niðurgreiðslna, eins og fram kom í ræðu hæstv. ráðh. hér áðan, þótt gjaldahækkunin kæmi ekki til greina nema í 10 mánuði. Með þessum klókindum átti allt að vera tryggt, og vænzt var, að greiðsluafgangurinn yrði þó a.m.k. aldrei minni en sem svaraði vísvitandi of hátt settum útgjöldum í fjárlögum.

Með því að áætla ýmsa gjaldaliði fjárl. þannig mörgum milljónatugum of hátt varð niðurstaðan sú, eins og fram kom í ræðu ráðh., að heildarútgjöldin urðu að sjálfsögðu undir áætlun, því þótt umframgreiðslur yrðu nokkrar, komu hinar of háu áætlanir þar á móti og vel það. Þótt ríkisútgjöldin yrðu undir áætlun í heild, stafar það því ekki af minni umframgreiðslum en stundum áður, heldur af þessari reikningsbrellu í fjárl. Á hinn bóginn kom stóri greiðsluafgangurinn, sem átti að verða 1960, ekki fram, og fer margt því öðruvísi en ætlað er.

Ráðstafanir ríkisstj. til þess að kýta saman íslenzkan þjóðarbúskap höfðu borið svo ríkulegan ávöxt, ef kalla mætti því nafni, að ríkissjóður rétt skreið 1960, þrátt fyrir allar álögurnar og vísvitandi of hátt áætluð útgjöld, og fyrirheitin um að afnema söluskattinn varð að leggja á hilluna, eins og kunnugt er.

Ekki sagði ráðh. mikið um afkomuhorfur ríkissjóðs á þessu ári, en þó var að heyra, að hann gerði ráð fyrir, að greiðsluhallalaust yrði og jafnvel vel það. Færi betur, að svo yrði. En fari svo, sýnir það með öðru fleira, sem síðar verður minnzt á, hvílíkt frumhlaup og ég vil segja skemmdarverk nýja gengislækkunin í sumar var.

Nú hefur fjmrh. lagt fram fjárlagafrv. fyrir næsta ár. Tæpast tel ég unnt að hugsa sér gleggri vott um gjaldþrot þeirrar stefnu í efnahagsmálum, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir, en einmitt þetta frv. Á því eru heildarútgjöld ríkissjóðs talin 1 milljarður og 715 millj., og er þó vantalið, eins og ég kem að síðar. Þetta eru 908 millj. — ég sagði 908 millj. — hærri útgjöld en á fjárl. 1958, fyrir þremur árum. Og þótt tekið sé tillit til þess, að nokkuð af niðurgreiðslum á vöruverði var þá, 1958, greitt utan fjárlaga úr útflutningssjóði. þá hafa ríkisútgjöldin meira en tvöfaldazt á þessum þremur árum. Ríkisútgjöldin hafa hækkað um meira en 100% á þessum þremur árum. Þrátt fyrir þessa gífurlegu útgjaldahækkun eru þó raunverulega lægri fjárveitingar nú til verklegra framkvæmda og atvinnuveganna en þær voru þá. Þá, 1958, voru framlög til þeirra mála 26.3% af heildarútgjöldum fjárl., en nú eru þau komin ofan í 17.1% af heildarútgjöldunum. Er þetta þveröfugt við það, sem var fyrir viðreisn, því að þá hækkuðu framlög til verklegra framkvæmda ár frá ári meira en önnur útgjöld ríkisins.

Álögur á landsmenn eða tekjur ríkissjóðs hafa aukizt að sama skapi og ríkisútgjöldin, og hafa þannig álögur meira en tvöfaldazt á þessu sama tímabili, þremur árum. Hér við bætist svo, að gjaldabyrðin til ríkisins hefur verið færð stórlega til á þessum árum, af þeim efnameiri og yfir á þá efnaminni, sem minni hafa tekjurnar. Það er því ekki að furða, þótt verðlag á lífsnauðsynjum hafi hækkað, þegar ofan á tvær gengisfellingar hefur verið hrúgað á nauðsynjavörurnar nýjum tollum og sölusköttum. Kveður svo rammt að þessu, að núv. hæstv. fjmrh. er hinn fyrsti á Íslandi, sem hefur látið lögfesta toll á fisksoðningu og kjöt, því að svo ósleitilega hefur verið gengið að skattpíningunni.

Lítum svo á heildarsvip frv. Og þá sjáum við, að þrátt fyrir þessar ofboðslegu nýju álögur undanfarið og enn nýjar álögur, sem felast í gengislækkuninni frá í sumar, þá gerir hæstv. ráðh. ekki einu sinni ráð fyrir því, að öll þessi býsn samanlögð geti staðið undir útgjöldum ríkissjóðs, eins og þau eru nú áformuð, og það með stórniðurskornum verklegum framkvæmdum frá því, sem var fyrir þremur árum. Þannig metur hæstv. ráðh. sjálfur horfurnar í þjóðarbúskapnum, og er því sýnilegt, að ríkisstj. er ekkert á þeirri leið að draga úr samdrættinum eða breyta um búskaparlag, enda þurftu menn ekki þetta fjárlagafrv. til að vita það, þar sem nýja gengislækkunin er beinlínis framkvæmd til þess að hækka verðlag á nauðsynjum og framkvæmdum öllum og tryggja a.m.k. jafnþröngan hag almennings til vörukaupa og framkvæmda og orðinn var, áður en kjarabætur í sumar komu til.

Til þess svo að koma saman fjárlagafrv., miðað við þetta búskaparlag, án þess að hafa halla á pappírnum, hefur fjmrh. gripið til hinna furðulegustu bragða. Ráðh. grípur til þess óyndisúrræðis, að hann telur ekki með útgjöldum frv. 61 millj. af sjálfum ríkisútgjöldunum, af því að þau eigi að greiðast með skuldabréfum og lántökum, segir ráðh. Hvað ætli yrði sagt um þann framkvæmdastjóra fyrirtækis, sem sleppti úr reikningi fyrirtækisins hluta af rekstrarútgjöldum og afsakaði sig svo með því á eftir, að þau þyrftu ekki að vera með, af því að það hefði verið stofnað til skulda til þess að borga þau? Ég læt menn um að gefa svona vinnubrögðum nafn, en stjórnarblöðin kalla þetta sparnað, og sýnir það menningarstigið, sem umr. um efnahagsmál eru á í þeim blaðakosti. Leiðrétt er fjárlagafrv. því lagt fram með 55 millj. kr. greiðsluhalla.

Hér við bætist, að til þess að halda núv. niðurgreiðslum á vöruverði óbreyttum er áætlað að þurfi á næsta ári 327 millj. og til að greiða lögbundnar útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir á næsta ári er áætlað að þurfi 45 millj., eða samtals 372 millj., en í þetta tvennt eru aðeins 300 millj. á frv., og vantar því 72 millj. upp á. Miðað við að halda óbreyttum niðurgreiðslum, er því halli á frv., sem nemur a.m.k. 130 millj. kr. Á hinn bóginn gaf hæstv. ráðh. í skyn, að lækka ætti niðurgreiðslurnar, og kemur það þá fram sem ný dýrtíðaraukning og sem nýjar álögur, en það bitnar einmitt harðast á þeim, sem minnst hafa fjárráðin, sagði Benedikt Gröndal orðrétt hér áðan.

Þetta sýnir, að þrátt fyrir hinar ofboðslegu nýju álögur hefur samdráttarstefnan leikið þjóðarbúskapinn þannig að mati hæstv. ráðh. sjálfs, að hann kemur ekki saman greiðsluhallalausum fjárlögum, en reynir í bili að leyna því með alls konar brögðum, sem þó eru þannig vaxin, að engum fá dulizt. Til að reyna að leysa greiðsluvandræði ríkissjóðs, sem ráðh. telur fram undan að óbreyttri stefnu, hefur hann gripið til þess að gera ráð fyrir greiðslu lögboðinna útgjalda í atvinnuleysistryggingasjóð með skuldabréfum. Er þó engin heimild í lögum til að fara þannig að. Ráðh. bar það fyrir sig, að ríflega hefði safnazt í sjóðinn, en þess ber að gæta, að það var ætíð ráð fyrir því gert, að þangað safnaðist mikið fé, þegar atvinna væri góð, því að mikils þarf við, ef atvinnuleysi verður. Auk þess hefur rífleg fjársöfnun í þennan sjóð, atvinnuleysistryggingasjóð, verið þýðingarmikill liður í því að safna fé til útlána í nauðsynlegustu framkvæmdir, og hefur orðið að því afar mikill stuðningur, bæði við íbúðabyggingar og hinar brýnustu framkvæmdir víðs vegar um landið. En nú virðist ætlun hæstv. ríkisstj. að eyðileggja þessa starfsemi sjóðsins og skjóta loku fyrir þetta úrræði til stuðnings nauðsynlegustu uppbyggingu í landinu. Er það í góðu samræmi við aðrar ráðstafanir ríkisstj. til þess að draga sem allra mest úr lánamöguleikum manna með innilokun sparifjár og öðru slíku. Er hér því enn vegið í sama knérunn og stefnt að enn harðari samdráttartökum en áður, og er erfitt að sjá, hvar þetta á að enda, ef þessi stefna fær að ráða áfram.

Hæstv. ráðh. hefur hvað eftir annað með miklu yfirlæti vikið að þeirri stórfelldu ráðdeild, sem nú ætti að sýna í ríkisbúskapnum, og lofað að endurskoða og endurbæta allt starfskerfi ríkisins. Meira að segja er enn í grg. frv. vikið að þessu sama, og enn var hæstv. ráðh. við sama heygarðshornið, en þó ekki með jafnmiklu yfirlæti og áður. Á það sínar eðlilegu orsakir, sem brátt munu skýrast.

Í fyrstu ræðu sinni gaf fjmrh. 12 sparnaðarloforð. Í þeirri næstu gaf hann 24 sparnaðarloforð. Meiri hluti ráðherrans í fjvn. í fyrra vildi ekki láta sitt eftir liggja og setti stjórninni fyrir 23 sparnaðaratriði. Það hefur því ekki vantað sparnaðarloforðin. Tónninn í öllu því, sem ráðh. og hans menn hafa sagt um þessi efni, er sá, að þeir hafi alltaf verið önnum kafnir við að lækka ríkisútgjöldin, enda þótt þeir hafi tvöfaldað þau á þremur árum. Þetta mun síðar verða rakið allt, þessar yfirlýsingar og svo framkvæmdir ráðherrans og hans manna, en sannast að segja hafa menn ekki orðið varir við þennan sparnað eða ráðdeild í framkvæmd. Þó má nefna sameiningu áfengis- og tóbakseinkasölu, sem við skulum vona að einhver sparnaður verði á, og svo er sagt, að utanrrh. hafi eitthvað lagað til í sparnaðarátt á Keflavíkurflugvelli frá því, sem hann hafði sjálfur áður ákveðið.

Aftur á móti hefur það ekki farið fram hjá mönnum, að ríkisbáknið þenst út með meiri hraða en nokkru sinni fyrr, svo sem þetta fjárlagafrv. og fjárlagafrv. í fyrra bera með sér. Það úir og grúir af nýjum embættum og nýjum kostnaði. Fátt eitt skal nefnt af mörgu. Nýtt efnahagsmálaráðuneyti hefur verið stofnað með ærnu starfsliði. Saksóknaraembætti með starfsliði fyrir á aðra milljón, upplýsti ræðumaður hér áðan úr stjórnarherbúðunum. Mikið lið er á launum við svokallaða hagsýslu, og er kostnaður við þessa starfsemi talinn 304 þús. kr. á 19. gr. í fyrra, og er það bara byrjunin. Gefinn var út áróðursbæklingur á s.l. ári, sem kostaði ríkissjóð hundruð þúsunda, svo sem síðar mun upplýst verða. Bankastjórum og bankaráðsmönnum í ríkisbönkunum var fjölgað um 6 á þessu ári. Og þannig mætti lengi telja. Þ. 19. gr. fjárlaga fyrir árið 1960 er talinn kostnaður við 60 nefndir, tæplega 2 millj. kr., en 1958 eru taldar 38 nefndir, sem kostuðu 1 millj. 200 þús. kr. Er þetta ekki mjög lélegur árangur eða hitt þó heldur af hátíðlegum yfirlýsingum hæstv. fjmrh. um stórkostlegan niðurskurð á þessum sérstaka lið. Lofaður sparnaður á póst- og símamálum var framkvæmdur þannig, að innleidd voru hrein okurgjöld á póst- og símaþjónustu, svo að ókleift má telja orðið fyrir almenning að hafa síma. Fræg er yfirlýsing hæstv. ráðh. í fyrra um milljónasparnað á strandferðum án þess að minnka þjónustuna, sem reyndist út í bláinn, og svo yfirlýsing sama ráðh. um milljónasparnað í hernaði gegn refum og minkum, sem nú var raunar ekkert á minnzt, alveg út í hött. Þannig mætti halda áfram að sýna fram á hvimleitt skrum í þessum efnum og bera saman við framkvæmdir, og verður ekki lengra farið út í það að sinni. En niðurstaðan af öllu þessu ráðslagi er sú í heild, að í þessu frv. eru ríkisútgjöldin 200 millj. kr. hærri en þau eiga að verða á þessu ári, 200 millj. kr. hækkun, þegar útgjöldin eru öll talin eins og vera ber. Og allt á þetta þó enn eftir að hækka.

Ekki skal ég spá, hvernig endanleg afgreiðsla fjárl. verður. Á hinn bóginn hefur fjmrh. látið það koma fram utan þings, að fyrirhugað sé að færa enn til skattabyrðina í landinu. Auðvitað er ekki um að ræða að minnka skattabyrðina að óbreyttri samdráttarstefnunni, svo sem glöggt má sjá. En það eiga að verða tilfærslur enn, og nú á enn að vega í sama knérunn. Það á að lækka skatta á gróðafélögum og bæta það upp með hækkun á sölusköttum. Enn fremur er sagt, að það eigi að lækka eitthvað tolla á hátollavörum. Kemur það nú fram, að svo hefur verið þrengt að mönnum, að innkaup á hátollavörum hafa dregizt mjög saman og því ekki gefið jafnmiklar tekjur og ríkisstj. hafði gert ráð fyrir. Viðbrögð ríkisstj. eiga því að verða þau að lækka skatta á félagagróðanum og hátollavörunum og leggja sem jafnast gjald á allar vörur í staðinn, þ. á m. matvæli og allar helztu nauðsynjavörur almennings. Er sýnilega gert ráð fyrir svo harðhentum samdrætti á kaupgetunni, að ekkert muni duga annað en að færa enn þá meira af álögunum yfir á matinn.

Engum getur dulizt, að öll þessi mál eru komin í hið mesta öngþveiti, og allt, sem frá ríkisstj. kemur, ber þess vott, að henni er það nú orðið einnig ljóst. Á hinn bóginn er sífellt á undanhaldinu verið að kalla það um öxl, að einhverjum öðrum sé að kenna, að svona hefur farið. Öllum sæmilega viti bornum mönnum mun þó hins vegar ljóst, að svona hlaut að fara. Þessar hlutu að verða afleiðingar þess, sem ríkisstj. lét hafa sig út í í fyrra. Hefur þetta allt farið eins og þá var sagt fyrir.

Þá voru gerðar ráðstafanir, sem áttu að koma á jafnvægi í þjóðarbúskapnum, og þær voru fólgnar í því að magna dýrtíðina sem allra mest og gera mönnum um leið með margvíslegum hætti sem erfiðast fyrir að ná í peninga til þess að framfleyta heimilum sínum eða leggja í framkvæmdir. Gengislækkun, tollahækkanir, innilokun sparifjár og okurvextir, þetta voru aðferðirnar. Áhrifin af öllu þessu gátu aldrei í fyrstu umferð orðið undir 1100–1200 millj. til hækkunar á verðlagi og framleiðslukostnaði, miðað við óbreytta viðskiptaveltu. Allar þjóðartekjurnar voru metnar á 5½–6 milljarða, þegar þetta var gert. Þetta hlaut því að leiða til óbotnandi dýrtíðar og taumlausra erfiðleika fyrir atvinnulífið og framleiðsluna.

Svo er að sjá, að þeir, sem fyrir þessu standa, hafi blátt áfram ekkert botnað í, hvaða afleiðingar þetta hlaut að hafa, enda sumir hverjir litla snertingu haft við undirstöðu íslenzks þjóðarbúskapar. Afleiðingar þessara mistaka hafa ekki heldur látið á sér standa, og hefur hér af leitt alls konar truflanir á atvinnurekstri og samdrátt sjálfrar framleiðslunnar og þjóðarteknanna.

Öll bendir þessi þróun glöggt á þann meginkjarna þessara mála og það, sem á milli ber framsóknarmanna og stjórnarflokkanna, hvílík fásinna það er að ætla sér að vinna að jafnvægi í þjóðarbúskapnum með ráðstöfunum, sem hljóta að draga mjög úr framleiðslunni og þjóðartekjunum, valda óviðráðanlegum erfiðleikum fyrir framleiðsluna og þar með óþolandi kjaraskerðingu fyrir almenning. Eftir eitt viðreisnarár var þannig komið, að kjaraskerðingin hjá bændum og launafólki nam 15–20%, miðað við 1958 um haustið. Enginn treysti sér þá lengur til að halda því fram, að fjölskylda gæti lifað mannsæmandi lífi af verkamannakaupi fyrir venjulegan vinnudag og þá ekki heldur af þeim tekjum, sem bændum voru ætlaðar í verðlagi afurðanna. Þannig voru kjaramálin komin í algera sjálfheldu. Alþýðusamtökin sýndu þó óvenjulega þolinmæði. Mánuð eftir mánuð var reynt að fá ríkisstj. til að gera, ráðstafanir til kjarabóta, sem komið gætu í staðinn fyrir kauphækkanir, en allt kom fyrir ekki. Ríkisstj. vildi engu breyta og ekkert koma til móts við menn í þessum vanda.

Þegar hér var komið sögu, skullu verkföll á, einhver þau víðtækustu, sem hér hafa verið háð, og er óhætt að fullyrða, að afstaða manna til þeirra í verkalýðsfélögunum fór eftir allt öðru en pólitík. Áður en þetta gerðist, hafði verið samið um 14.7% kauphækkun í Vestmannaeyjum og talsverðar kjarabætur til hlutarsjómanna, og var það allra manna mál, að sízt veitti af því. Ríkisstj. hafði borið það blákalt fram, að ekkert væri hægt að koma til móts við almenning. Nú, þegar verkföllin voru skollin á, var aftur á móti snúið við blaðinu og farið að halda því fram, að 3% kauphækkun gæti kannske komið til mála, og eftir nokkurn tíma eða um það leyti, sem sáttasemjarar fóru að gera tillögur, var enn breytt til og farið að segja, að kerfið þyldi 6% kauphækkun. Sást nú á þessu, að ekkert var að marka það, sem úr stjórnarherbúðunum kom um þetta mál, — eitt sagt í dag og annað á morgun. Jók þetta erfiðleikana og tortryggnina um allan helming, og sættir náðust alls ekki á þeim grundvelli, sem sáttasemjarar lögðu til. Hörðnuðu átökin, og stappaði víða nær allsherjarverkfalli, en undirbúningur síldarvertíðar stóð sem hæst og síldarúthaldið allt í hættu. Ríkisstj. og atvinnurekendafélagið aðhöfðust ekki neitt.

Þegar hér var komið málum, náðu samvinnusamtökin samningum við verkalýðsfélögin um lausn kjaradeilunnar fyrir sitt leyti, og var aðalatriðið, að dagvinnukaup hækkaði um 10% og að 1% yrði lagt í sjúkrasjóð verkalýðsfélaga. Enn fremur varð nokkur hækkun á yfirvinnu. í samningunum voru ákvæði um, að þeir giltu til ársins, nema gengislækkun yrði eða framfærslukostnaður hækkaði um 5 stig, þá væri hægt að segja þeim upp með stuttum fyrirvara. Þessum samningum var almennt fagnað með þjóðinni án tillits til afstöðu manna í stjórnmálum. Var það almenn skoðun, að hér væri fundin hófleg lausn og bjargað frá gífurlegu tjóni, m.a. með því að koma í veg fyrir stöðvun síldarúthaldsins.

Sérstaka athygli vakti það, að samvinnufélögin lögðu sig fram um að reyna að tryggja vinnufriðinn varanlega með því að koma því inn í samninga, að kaup stæði óbreytt samningstímann, eitt ár í senn, nema framfærslukostnaður hækkaði um 5 stig á fyrsta ári og 7 stig á öðru ári. Það ber að hafa í huga, að 5 stig í vísitölunni núna jafngilda 10 stigum í þeirri vísitölu, sem var í gildi 1958, þegar átökin urðu um þessi mál á vegum vinstri stjórnarinnar.

Vinstri stjórnin sagði af sér fyrst og fremst vegna þess, að vísitöluskrúfan fékkst ekki tekin úr sambandi og alls ekki fékkst frá því fallið, að hækkanir vísitölunnar væru að fullu teknar inn í verðlag og kaupgjald á víxl. Hliðstæðir samningar þá um kjaramálin og nú voru gerðir hefðu á þeim tíma tryggt, að vinstri stjórnin hefði haft tök á efnahagsmálunum og haldið áfram.

Enginn veit, hvað ríkisstj. ætlaðist fyrir í vor í kjaradeilunni, hvort hún stefndi að margra mánaða verkfalli og að fórna þar með síldarvertíðinni til að koma í veg fyrir, að kaup verkamanna hækkaði um 400 kr. á mánuði, eða hvort hún ætlaði að setja lög um kaupgjaldið og efna til úrslitaorrustu við verkalýðsfélögin. Hitt vita menn, að ríkisstj. gerði ekkert til að leysa vandann, og hún reiddist heiftarlega, þegar tókst að semja, og hafði þó hátíðlega marglýst yfir því, að samtök vinnuveitenda og verkamanna í landinu yrðu að finna sjálf leiðir út úr kjaradeilunni, það væri alls ekki stjórninni viðkomandi að leysa verkföllin. Þá vita menn, að ríkisstj. stóð með atvinnurekendafélaginu í því að framlengja verkföllin svo að vikum skipti til að þvælast fyrir því, að 1% af kaupi verkamanna færi í sjúkrasjóði verkalýðsfélaganna.

Auðvitað vita allir, að það hefur aldrei verið heil brú í ofsalegum ásökunum á hendur samvinnufélögunum út af þessum kjarasamningum, enda hefur ríkisstj. haft hina mestu vansæmd af árásum sínum á þau hjá öllum almenningi. Óheilindin sjást bezt á því, að áður en þessir samningar voru gerðir, var búið að semja um meiri kauphækkun í Vestmannaeyjum og víðar, án þess að nokkuð væri að því fundið. Enn þá gleggra er þó hitt, að eftir að samvinnufélögin höfðu gert samninga um 10–11% kauphækkun, hafði ríkisstj. ekkert við það að athuga og hafði jafnvel forgöngu um, að aðrir semdu um meiri hækkanir. Það hefur aukið á raunir hæstv. ríkisstj., að enginn fæst til þess að taka undir þessar ásakanir hennar í garð samvinnuhreyfingarinnar í alvöru. Þvert á móti liggja menn ríkisstj. yfirleitt á hálsi út af því að hafa ekki sjálf beitt sér fyrir þeirri lausn, sem samið var um milli samvinnufélaganna og verkalýðsfélaganna. Henni bar að sjá, að hún hafði þannig í pottinn búið, að á öðru var ekki stætt.

Þetta er almenningsálitið í landinu, hvernig sem málgögn ríkisstj. hamast í bræði sinni tók ríkisstj, að hóta mótaðgerðum, vegna þess að kjaradeilurnar höfðu verið leystar öðruvísi en hún vildi. En þótt ótrúlegt sé og fáir mundu hafa trúað slíku fyrir fram, kom 13% gengislækkun í kjölfar þessara hótana, og því var borið við, að kjarasamningarnir við verkamenn gerðu þessa gengisbreytingu óhjákvæmilega. Ríkisstj. var áður búin að lýsa yfir því, að kerfið mundi þola 6% hækkun.

Þeir eru vandfundnir, sem trúa því, að mismunurinn á þeirri lausn, sem varð í kjaramálunum, og 6% hækkun, sem ríkisstj. sagði að kerfið þyldi, hafi verið slíkur, að hans vegna hafi þurft að hækka verð á öllum erlendum gjaldeyri um 13%, enda fór því svo fjarri, að þessi kjarasamningur gæfi ástæðu til slíks, hann var þvert á móti hinn æskilegasti grundvöllur, ef rétt var á haldið, til að koma jafnvægi á og byrja að feta sig út úr því öngþveiti, sem í var komið. Eftirfarandi staðreyndir sýna þetta glöggt.

Iðnaðurinn gat með sárafáum undantekningum borið þá kauphækkun, sem varð, án verðhækkunar. Liggur þetta nú glöggt fyrir, þar sem verðhækkanir, sem leyfðar hafa verið á framleiðsluvörum iðnaðarins, stafa nær undantekningarlaust af verðhækkunum vegna gengislækkunarinnar einnar saman, en kauphækkanirnar bera fyrirtækin sjálf. Hefur þetta meira að segja verið staðfest í stjórnarblöðunum. Verð á síld í salt og bræðslu í sumar hafði hækkað þrátt fyrir kauphækkanirnar. Kauphækkun sú, sem varð umfram það, sem ríkisstj. taldi kerfið bera, svaraði til rúmlega 1% breytingar á útflutningsverði afurða frá frystihúsunum, og þann mismun og þó meira til hefði hreinlega verið hægt að jafna með lækkun vaxta í það, sem þeir voru áður. Fyrir þessu eru óvefengjanlegar heimildir sem ég hef haft með höndum og eru frá samtökum frystihúsanna. Með nokkuð aukinni umsetningu í landinu vegna kjarabótanna hefðu tekjur ríkissjóðs vaxið stórkostlega vegna þess, hve gífurlega hefur nú verið haugað tollum á allar nauðsynjavörur. Þannig hefði vandi ríkisbúskaparins verið leystur og möguleikar orðið á að bæta launakjör opinberra starfsmanna og vinna gegn verðhækkunum almennt, enda sýna einmitt afkomuhorfur ríkissjóðs nú, að þessar fullyrðingar eru réttar.

Þannig var með kjarasamningunum nýju beinlínis búið að leggja grundvöll að bættu ástandi í efnahagsmálum og varanlegum vinnufriði, ef samdráttarstefnan væri yfirgefin, vextir lækkaðir, dregið úr lánasamdrætti og rekstrarfjárskorti fyrirtækja og þannig byrjað að létta af viðjum viðreisnarinnar. Stórauknar gjaldeyristekjur vegna síldveiðanna hefðu hjálpað til að gera kjarabæturnar raunhæfar og auka viðskiptin.

Í stað þess að notfæra sér kjarasamningana á þessa lund, er nú öllu stefnt í meira dýrtíðaröngþveiti en nokkru sinni fyrr með gengislækkuninni. Ný verðhækkunaráhrif vegna hennar geta aldrei orðið undir 550 millj. í fyrstu umferð, því að hér er um að ræða 13% skatt á andvirði allra innfluttra vara og allan seldan gjaldeyri og þar á ofan jafnhátt álag á mikinn hluta ríkisteknanna. Gengislækkunin á sér engin efnahagsleg rök nema frá sjónarmiði þeirra, sem aldrei sjá nein úrræði önnur en þau að magna dýrtíðina og draga þannig úr kaupgetu almennings og möguleikum til framkvæmda. En þessar aðfarir herða bara samdráttinn enn, með þeim afleiðingum, að efnahagsvandamálið verður óviðráðanlegra en nokkru sinni fyrr, eins og fjárlagafrv. ber glögglega með sér. Þar blasir sem sé við sú óhugnanlega mynd, að hversu gífurlega sem álögurnar eru hækkaðar, verður afkoman lakari samt. Lengra og lengra niður á við, það er stefnan, og því lengur sem haldið verður áfram á þessari braut, því örlagaríkara fyrir afkomu þjóðarinnar á næstu árum, eins og á því heimili, sem reynir að leysa efnahagsvandamál sín með því að leggja ekki í neitt og láta drabbast. Hvernig væri íslenzka þjóðin stödd, ef þvílíku búskaparlagi hefði verið fylgt undanfarið?

Vafalaust er, að gengislækkunin er að verulegu leyti hugsuð sem hefndarráðstöfun í garð launastéttanna og bænda fyrir að sætta sig ekki við þau hörmungarkjör, sem orðin voru. En gengislækkunin er líka komin til vegna þess, að viðreisnin var auðvitað komin í strand, en ný gengislækkun núna kemur engu á flot, heldur hrindir lengra upp á flúðina. Hér er bara efnt til nýrrar umferðar dýrtíðarhjólsins. Á hinn bóginn var hægt að nota einmitt kjarasamningana, fyrst þeir náðust svona sérstaklega hóflegir, til þess að fikra sig inn á færari leiðir. Það er sorglegt, að því tækifæri skyldi nú sleppt með svo hastarlegu móti.

Fram hefur komið, að þessi nýja gengislækkun sem tafarlaust svar við kauphækkun muni laða hér að erlent fjármagn til landsins. Þetta er vægast sagt óheppilegur áróður, og ætti þó að viðhafa um það sterkari orð. Þetta þýðir sem sé á mæltu máli, að nú eigi að sýna, að hér séu til aðferðir til að halda kaupgjaldi og tekjum bænda nægilega niðri til að tryggja erlendu fjármagni aðlaðandi gróða. En hvers vegna er verið að leggja áherzlu á þetta? Er ekki ætlunin, að íslenzkur atvinnurekstur verði framvegis fyrst og fremst á vegum Íslendinga sjálfra, eins og verið hefur og bezt hefur gefizt? Og hvað er verið að fara með þeim áróðri, sem í vaxandi mæli gengur út frá herbúðum ríkisstj. og út á það gengur að þröngva þeirri minnimáttarkennd upp á þjóðina, að í raun og veru hafi hún undanfarið ekki staðið á eigin fótum fjárhagslega og sé þess tæpast eða ekki megnug, það sé af þessum ástæðum, sem ört hafi hallað undan fæti nú um lífskjör og uppbyggingu? í stað þess að viðurkenna, að þessi vandkvæði eru bein afleiðing rangrar stjórnarstefnu, í stað þess að játa þetta er sagt, að vandkvæðin nú stafi af því, að íslenzkur þjóðarbúskapur geti ekki staðið undir meira og miklu minna en annarra þjóða búskapur. Því er oft lætt með, að ör uppbygging og betri lífskjör hér undanfarin ár hafi alls ekki byggzt á eðlilegu framtaki né tekjum þjóðarinnar, eins og ég sagði áðan, heldur óeðlilegum stuðningi erlendis frá. Það er klifað á því, að þjóðin hafi lifað um efni fram einmitt á þeim áratugum, sem hún efnaðist mest.

Ég hef illan bifur á þessum áróðri, og mun hann ekki koma til af góðu eða eiga að vera undanfari heilbrigðra ráðstafana til sterkrar uppbyggingar hér á vegum Íslendinga sjálfra á næstunni, eins og vera þarf. Þessi áróður á ekkert skylt við heilbrigðar hugmyndir um að leysa, ef svo ber undir, einstök, stór verkefni með sérsamningum við eigendur erlends fjármagns, sem fullan rétt getur á sér átt, ef tryggilega er um búið.

Sú minnimáttarkennd, sem verið er að reyna að skapa með þessum áróðri, er sízt af öllu til þess fallin að greiða fyrir því, að þjóðin fái slysalaust þrætt þá vandförnu leið, sem fram undan er. En sú leið er: að efla eðlileg tengsl, viðskiptaleg og menningarleg, við nágrannaþjóðir okkar, en halda þó sjálfstæði og sjálfsforræði í atvinnu- og efnahagsmálum.

Ég hef athugað nokkuð fjárfestingu þjóðarinnar á undanförnum árum og notkun á erlendu fjármagni, og hef ég byggt þessar athuganir á skýrslum frá Framkvæmdabankanum. Á árunum 1950–1958 var fjárfesting talin nema rúmum 9 milljörðum, og af því var erlent fé, bæði gjafafé og lánsfé, rúmur einn milljarður, eða 12%, 88% var eigið fé. Árin 1950–1953 voru 15–25% af fjárfestingunni kostuð af erlendu fé, árið 1954 aðeins 3.8% og árin 1956–1958 7–12% kostuð af erlendu fé. Þessi síðustu ár var eingöngu um lánsfé að ræða frá útlöndum og þá eigið fé Íslendinga í uppbyggingunni þessi síðustu 3 ár frá 88% til 93%. Þegar tillit er tekið til þess, að á þessum árum lögðu Íslendingar hlutfallslega meira en flestar þjóðir í framkvæmdir, sést glöggt, hvílík fjarstæða sá áróður er, sem nú er rekinn til að læða því inn hjá þjóðinni, að hún sé ekki megnug þess að standa á eigin fótum fjárhagslega og byggja- upp atvinnulíf sitt fyrst og fremst af aflafé sínu og eðlilegum erlendum lánum.

Það er lífsnauðsyn fyrir þjóðina að gera sér ljóst, að þær þrengingar, sem margur býr nú við og mun búa við, þangað til þjóðin hefur losað sig við þann þingmeirihluta, sem nú stendur fyrir málum hennar, stafar af röngu búskaparlagi, en ekki hinu, að ókleift sé nú orðið allt í einu að lifa hér góðu lífi og búa jafnframt á fullnægjandi hátt í haginn fyrir framtíðina. Góða nótt.