11.04.1962
Sameinað þing: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í D-deild Alþingistíðinda. (3290)
51. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Fram. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem hér er til umr. á þskj. 67, hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj, að láta endurskoða lög um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Skal endurskoðun þessari lokið svo snemma, að frv. um breytingu á lögunum verði lagt fyrir Alþingi það, er nú situr:
Allshn. hafði sent þetta mál til umsagnar til stjórnar gæzluvistarsjóðs og enn fremur til landlæknis. Hefur n, fengið svör frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir hönd gæzluvistarsjóðs, sem er birt sem fskj. nr. 1, og frá landlækni, sem er birt sem fskj. nr. 2. Þáltillgr. segir ekkert um það, hvernig þessari endurskoðun skuli hagað, og bendir heldur ekkert á það, hvaða sérstök atriði það eru í núgildandi lögum, sem þurfi endurskoðunar með. En í grg. er svo nokkuð bent á þetta, og skal ég ekki fara nánar út í það atriði.
Í upplýsingum frá dóms- og kirkjumrn. kemur fram, að lögin hafa verið í endurskoðun. Það kemur og fram hjá landlækni, að skipuð hafi verið nefnd til þess að endurskoða lögin og n. þegar sent till. sínar til dómsmrn., en dómsmrn. hefur talið nauðsynlegt að athuga málið nánar, m.a. að ræða um það við aðra lækna en þá, sem þegar hafa látið í té álit um málið. Það telur hins vegar, að endurskoðuninni sé komið svo langt, að það verði unnt að leggja málið fyrir það þing, sem kemur saman á næsta hausti.
Ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að það hefur ekki komið fram í umr. um þetta mál, að það væri neinn ágreiningur um I. kafla laganna, en hann er um meðferð ölvaðra manna. Ágreiningur mun hafa einkum verið um III. kaflann, sem er um meðferð drykkjusjúkra manna, en enginn ágreinin er hins vegar um III. eða IV. kafla l. frá 1949. Ágreiningur mun einkum vera um það, hvort þessum málum skuli stjórnað af lækni geðveikrahælis og sjúklingarnir álitnir að einhverju leyti geðsjúkir menn. Um þetta mun einkum vera ágreiningur.
Allshn. sem slík leggur engan dóm á þetta atriði. En ég vil persónulega vænta þess, að þegar endurskoðunin hefur farið fram, verði fulltryggð framkvæmd I. kafla laganna, því að það er raunverulega meginatriði þessa máls, að framkvæmdin verði þannig, að allir þeir menn, sem hafa áhuga á umbótum í þessum málum, fái að njóta sín í samstarfi um þær umbætur. Vænti ég, að hæstv. rn. taki það til athugunar, þegar það leggur fram till. sínar. Að sjálfsögðu koma þær till. til þingsins, og þingið getur þá gert um þær sínar athugasemdir. En mér þótti rétt að láta þetta fylgja með frá mér persónulega sem frsm.
Nefndin leggur til, eins og sést á þskj. 692, að með tilvísun til þess, sem kemur fram í umsögnunum, og í trausti þess, að ekki verði frekari dráttur á afgreiðslu málsins, verði málinu vísað til ríkisstj.