16.11.1961
Efri deild: 16. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
74. mál, lækkun aðflutningsgjalda
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Eins og nál. meiri hl. fjhn. á þskj. 103 ber með sér, hefur n. ekki að öllu leyti getað orðið samferða við afgreiðslu málsins. Við þrír, sem að meirihlutamál. stöndum, leggjum til, að það verði samþ. óbreytt, en tveir hv. nm., þeir 1. og 5. þm. Norðurl. e., hafa að vísu tjáð sig samþykka frv., svo langt sem það nái, en hafa áskilið sér rétt til þess að flytja við það brtt. og munu skila sérálitum.
Vegna þeirrar ýtarlegu og skilmerkilegu framsöguræðu, sem hæstv. fjmrh. hafði fyrir þessu frv. við 1. umr. málsins, get ég orðið miklu stuttorðari en ella, en vil þó aðeins með nokkrum orðum gera grein fyrir ástæðunum til þess, að ég tel þetta frv. spor í rétta átt og það beri að samþykkja, og vænti ég þess, að þeir hv. nm. aðrir, sem að meirihlutaálitinu standa, muni einnig geta tekið undir mest af því, sem ég segi, þó að það sé ekki allt bindandi fyrir þá líka.
Það sjónarmið hefur komið fram í sambandi við þetta frv., að rétt sé að vísu að lækka tollana, svo langt sem frv. nái, en þar sem um breytingar á tollskránni sé að ræða, sé það margt fleira, sem breyta þurfi. Þetta sjónarmið kom bæði fram í nefndinni og líka, eins og hv. þdm. er kunnugt, við 1. umr. málsins hér í deildinni. Varðandi þetta atriði er afstaða okkar, sem að meirihlutanál. stöndum, sú, að okkur er það vitanlega ljóst, að það er margt fleira í tollskránni, sem breyta þarf, en þar sem upplýst hefur verið, að tollskráin er nú til endurskoðunar, og gert er ráð fyrir því, að frv. til nýrra tollskrárlaga verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi, þá teljum við eðlilegt, að frekari breytingar en þær, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, bíði þeirrar endurskoðunar, sem nú stendur yfir og gert er ráð fyrir að ljúki innan langs tíma.
Eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. fjmrh. fyrir frv., er megintilgangur þess sá að draga úr hinu stórfellda smygli, sem vitað er að hefur átt sér stað undanfarin ár. Og það getur varla farið á milli mála, að það eru auðvitað hin geysiháu aðflutningsgjöld, sem hafa gert smyglstarfsemina ábatavænlega, þannig að hún hlyti að hverfa, ef þessi gjöld væru lækkuð nægilega mikið. Hvort sú lækkun, sem frv. gerir ráð fyrir, muni hins vegar nægja í þessu skyni, verður auðvitað álitamál, og kem ég nánar að því á eftir. En ég get ekki látið hjá líða að vekja athygli á því, að hin feiknaháu aðflutningsgjöld hafa fleiri ókosti en þann einn að skapa jarðveg fyrir smygl, þannig að lækkun aðflutningsgjaldanna er af fleiri ástæðum æskileg en þessari einu. Að vísu getur varla verið ágreiningur um, að það er óhjákvæmilegt í okkar þjóðarbúskap, að aðflutningsgjöld séu mikilvægur þáttur í tekjuöflun ríkissjóðs. Sömuleiðis mun varla vera ágreiningur um það heldur, að slík aðflutningsgjöld eigi að vera misjafnlega há, þannig að miður þarfar vörur beri hærri aðflutningsgjöld en brýnar nauðsynjar. Um þetta hygg ég að allir séu út af fyrir sig sammála. Á hinu má þó engan veginn missa sjónar í þessu sambandi, að það er ekki til neinn algildur mælikvarði á það, hvað er þarfi og hvað sé óþarfi. Ef ég tek þann lista yfir vörur, sem gert er ráð fyrir að aðflutningsgjöld séu lækkuð á, þarf ekki annað en að nefna vissar vörutegundir á þessum lista því til sönnunar, að mikill ágreiningur hlýtur að vera um það, hve miklar nauðsynjavörur sé þar um að ræða og hvort þar sé um að ræða nauðsynjavörur. Ég býst t.d. við, að flestir hv. þdm. séu sammála um það, að vörutegundir eins og vörur úr kóralli, tilbúnar perlur og þess háttar sé óþarfi og sennilega sömuleiðis ýmsar þær snyrtivörur, sem gert er ráð fyrir að aðflutningsgjöld séu lækkuð á, eins og andlitsfarfi, naglalakk, augnabrúnalitur og ýmislegt fleira. Við erum sennilega flestir sammála um þetta, og þó er ég raunar ekki alveg viss um það. Það vill svo til hér í þessari hv. deild, að við eigum hér sæti 19 karlmenn, en aðeins ein kona. En ef það vært nú þannig, að það væru konur okkar 19, sem sætu hér í hv. deild í staðinn, þá er ég ekki alveg viss um, að sjónarmiðið yrði það sama, og hef ég þó valið þá vöruflokkana í þessu sambandi, þar sem ég býst við að víðtækast samkomulag væri um það, að hér væri um óþarfavarning að ræða. Hvað snertir flest annað, sem hér er nefnt, þá held ég, að sjónarmiðin yrðu enn skiptari. Ég man t.d., að hv. 9. þm. Reykv. nefndi reykjarpípur sem ótvírætt dæmi um óþarfavarning. Sá allstóri meiri hluti þingmanna, sem reykir ekki pípu, er honum sjálfsagt sammála, en aftur á móti minni hlutinn, sem ég tilheyri, lítur öðruvísi á þetta mál. Við teljum okkur jafnnauðsynlegt að eiga okkar pípu eins og margt annað, sem við notum. Nælonsokkar eru e.t.v. dæmi um slíka vörutegund, sem ágreiningur getur auðvitað verið um, hvort sé nauðsynjavara eða ekki. Ég býst nú við, hvað þá vörutegund snertir, að meiri hluti okkar líti þannig á, að hér sé ekki um óþarfavöru að ræða. En öðrum augum hefur verið litið á þetta fyrr. Þeir rosknu og ráðsettu menn, sem á sínum tíma hefur verið fengið það vandasama verkefni að finna leiðir til þess að afla ríkissjóði tekna, hafa litið svo á, að ungu stúlkunum og kvenfólkinu yfirleitt væri ekki vorkunn að því að ganga í ullarsokkum, eins og ömmur þeirra og langömmur, en ef þær þurfi að nota þetta erlenda hýjalín, þá séu þær ekki of góðar til þess að greiða um leið allháan skatt til almenningsþarfa. Þannig hefur verið á þetta litið. Nú veit maður, að notkun þessarar vöru er orðin svo algeng, að ég hugsa, að það séu fáir, sem líti þannig á, að hér sé um óþarfa að ræða. Þannig er ábyggilega með flestar þær vörutegundir, sem á þessum lista eru, að sjónarmiðin munu vera mjög skipt í því efni, hvort um óþarfa vöru sé að ræða eða ekki. Það er gert ráð fyrir lækkun aðflutningsgjalda á hljóðfærum. Hinum ómúsíkölsku finnst, að hér sé um óþarfa að ræða, en þeir, sem yndi hafa aftur á móti af sönglist, líta öðruvísi á þetta. En þetta eru nú aðeins dæmi um það, að ekki er til neinn algildur mælikvarði á það, hvaða vörutegundir séu þarfar og aðrar óþarfar. Meðan tollarnir eru þó innan skynsamlegra takmarka, gerir það ef til vill ekki svo mikið til, þó að þetta geti verið álitamál, en þegar þannig er komið, að tollarnir eru orðnir 300% eða meira, þá þýðir þetta í rauninni, að öllu efnalitlu fólki a.m.k. er meinað að nota þessar vörur. Og það getur varla verið álitamál, að hér er í rauninni um verulega skerðingu að ræða á frjálsu neyzluvali eða rétti borgaranna til þess að ráðstafa tekjum sínum á þann hátt, sem þeir óska sjálfir eftir, að stjórnarvöldin hafa fellt þann úrskurð, að vissar vörutegundir séu slíkur óþarfi, að allur almenningur í landinu eigi að neita sér um þær.
En fyrir utan þetta atriði er það víst, að tollarnir hafa líka veruleg áhrif á uppbyggingu atvinnulífsins í landinu. Það má auðvitað lengi um það deila, hve mikillar tollverndar einstakar atvinnugreinar eiga að njóta. Eins og kunnugt er, getum við með tvennu móti aflað okkur þeirra nauðsynja, sem við notum. Við getum annaðhvort framleitt þessi gæði innanlands til eigin nota eða að við kaupum þau í skiptum fyrir vörur, sem við framleiðum til útflutnings. Ef við tökum einhverja tiltekna vörutegund sem dæmi, t.d. útvarpstæki, þá má segja, að tvær leiðir séu til þess að framleiða útvarpstæki hér á landi. Leiðin, sem farin er hvað þá vörutegund snertir, er sú, að við seljum fiskafurðir og notum þann gjaldeyri, sem við fáum fyrir þær, til þess að kaupa útvarpstæki. Hins vegar væri auðvitað sá möguleiki fyrir hendi að koma hér á fót verksmiðju, sem framleiddi útvarpstæki. Tæknilega séð væri ekkert því til fyrirstöðu. Hvað þessa vöru snertir er mér að vísu ekki kunnugt um það, að uppi hafi verið raddir um, að skynsamlegt væri að koma hér á fót útvarpstækjaverksmiðju. Menn hafa gert sér það ljóst, að hvað þessa framleiðsluvöru snertir mundi verða svo miklu dýrara að framleiða hana innanlands en kaupa hana erlendis frá, að slíkt mundi ekki borga sig. Það verður svo auðvitað að meta í hverju tilfelli, hvort ódýrara er að afla sér vörunnar á þann hátt að framleiða hana innanlands eða fá hana í skiptum fyrir útflutningsafurðir. Ef efnahagssjónarmið ein réðu í því sambandi, yrði niðurstaðan sú, að við kaupum vöruna erlendis frá, ef hún er svo miklu ódýrari sem nemur flutningskostnaði hingað. Nú vitum við, að þegar tollar eru ákveðnir, er það ekki út frá þessu sjónarmiði eingöngu. Atvinnusjónarmið og ýmislegt annað getur skapað því grundvöll í fjöldamörgum dæmum, að rétt þyki að láta hina innlendu framleiðslu njóta tollverndar, eins og það er kallað, þ.e.a.s. að leggja aðflutningstoll á erlendar vörur, sem geri það að verkum, að innlenda framleiðslan verður samkeppnisfær að því marki, sem tollurinn setur. Ég hugsa, að ekki sé ágreiningur um það, að þetta geti í mörgum dæmum verið réttmætt. Annað mál er það, hvort ekki beri að setja því einhver takmörk, hvað tollverndin má vera mikil. Það getur vel verið verjandi af atvinnuástæðum og öðrum að leggja á 20% verndartoll eða svo, sem þýðir það að vísu, að sú vara, sem við notum, verður sem þessu nemur dýrari en erlenda varan. Hitt hlýtur auðvitað að verða meira álitamál, hvort eðlilegt sé, að tollverndin sé 200 eða 300%, sem þýðir það, að við kaupum innlendu vöruna, þó að það sé þrisvar sinnum dýrara eða meira að framleiða hana hér innanlands. En hvað sem þessu líður, ætti varla að vera ágreiningur um, að það að leggja það sjónarmið til grundvallar tollverndinni, hversu þarfar þær vörur eru taldar, sem um er að ræða, sé ekki skynsamlegt. En þar sem tollskráin er fyrst og fremst sniðin með þetta fyrir augum, að metið er, hvort um þarfar eða óþarfar vörur sé að ræða, þá þýðir það það, að sé um óþarfavarning að ræða, þykir sjálfsagt, að tollverndin sé um 200 eða 300%, ef um nauðsynjavörur er að ræða, er tollverndin engin eða mjög lítil. Það að byggja tollskrána upp á þennan hátt skapar í rauninni tilhneigingu til þess, að iðnaðurinn hér í landinu verði byggður upp á þann hátt, að það verði fyrst og fremst arðvænlegt að framleiða óþarfavarning, því að eftir því sem vörurnar eru óþarfari, eftir því er tollverndin meiri. Að vísu er það nú svo, að þrátt fyrir þessa óskynsamlegu uppbyggingu tollskrárinnar frá þessu sjónarmiði hefur framleiðsla óþarfavarnings ekki aukizt svo sem ástæða væri til að öðru leyti. En að svo er, er ábyggilega ekki löggjafanum að þakka, heldur iðnaðarmannastéttinni, að hún hefur litið þannig á og gert sér ljóst, að þessir geysiháu tollar eru óskynsamlegir, það geti ekki verið um að ræða ástand, sem verði til frambúðar, og þess vegna hefur iðnaður á þessu sviði ekki risið upp í þeim mæli, sem annars hefði verið eðlilegt.
Af þeim ástæðum, sem ég hef þegar gert grein fyrir, ætti það að vera ljóst, að þó að smyglið sé aðalástæðan til þess, að þessi ráðstöfun hefur verið gerð, er lækkun tollstiganna einnig af öðrum ástæðum æskileg, og tel ég, að ekki megi á því missa sjónar, þegar þetta frv. er rætt. Í því sambandi vaknar líka auðvitað spurningin um það, hvaða áhrif þetta muni hafa á hag almennings í landinu. Við meðferð málsins í fjhn. beindum við þeirri fyrirspurn til hagstofustjóra, hvaða áhrif mætti gera ráð fyrir að þessi tollalækkun hefði á vísitöluna. Hvað snertir hin beinu áhrif á vísitöluna eða þau, sem vitað er um, munu þau vera tiltölulega lítil. Hagstofustjóri gerði ráð fyrir, að það yrði ekki nema um það bil hálft stig, en upplýsti þó jafnframt, að óbein áhrif mundu koma fram á þann hátt, að hráefni til ýmiss konar iðnaðar koma til að lækka, og þá er það sérstaklega fatnaður, sem þar er um að ræða, en það eru stærstu liðirnir í þessu hvað innflutningsmagn snertir, en um það væri óvissa, hvað mikil áhrif sú lækkun hefði á vísitöluna. En í þessu sambandi má vekja athygli á því, að gera má ráð fyrir, að sá sparnaður í útgjöldum, sem af þessu leiðir fyrir almenning, sé raunverulega meiri en vísitalan gerir ráð fyrir. Stendur þetta auðvitað bæði í sambandi við það, að vísitöluútreikningurinn byggist yfirleitt á efnahag fólks, sem hefur mjög lágar tekjur og notar þess vegna tiltölulega lítið af þessum vörum, auk þess sem annað atriði hefur líka þýðingu í sambandi við þetta, og það er það, að gera má ráð fyrir því, að jafnvel þó að miðað sé við fjölskyldur, sem hafa svipaðan efnahag og vísitölufjölskyldan, þá má gera ráð fyrir því, að vísitalan vanmeti þann þátt, sem þessar vörur eiga í útgjöldum viðkomandi fjölskyldna, og það stafar blátt áfram af því, að þegar upplýsingum er safnað um neyzlu þessara aðila, þá má einmitt gera ráð fyrir því, að útgjöld til vörutegunda eins og þessara falli þar niður. Þegar fjölskyldurnar eru beðnar að halda búreikninga, eru skrifuð upp venjuleg heimilisútgjöld, en hins vegar þó að keypt sé jólatré eða jólatrésskraut, þá er það nokkuð, sem fellur niður, þannig að ekki er vafi á því, að vísitalan vanmetur þau áhrif til lækkunar útgjalda, sem sú tollalækkun, sem hér er um að ræða, mundi hafa.
Aðalatriðið í sambandi við frv. þetta og áhrif þess er þó auðvitað spurningin um það, hvort þessi ráðstöfun muni ná tilgangi sínum og hvort ekki séu þá önnur úrræði fyrir hendi í þessu efni, sem e.t.v. gætu betur náð tilætluðum árangri. Hvað síðara atriðið snertir, hefur verið á það bent, að leiðin til þess að koma í veg fyrir smygl eigi ekki að vera sú að lækka aðflutningsgjöldin verulega. Það hefur jafnvel verið orðað þannig og var orðað þannig, ef ég man rétt, af einum hv. þdm. við 1. umr. málsins, að hér væri beinlínis um að ræða uppgjöf gagnvart smyglurunum, en leiðin til þess að draga úr smyglinu eigi að vera sú að herða á tollgæzlunni, en ekki að lækka tollana. Nú dreg ég það að vísu ekki í efa, að með stórauknu tolleftirliti væri vafalaust hægt að draga úr smyglinu. Með því að gera alla tollskoðun miklu strangari en hún áður hefur verið og fjölga þá tollgæzlumönnum tilhlýðilega mikið, þá er ekki vafi á því, að ná mætti meiri eða minni árangri í þessu efni. Spurningin er aðeins sú: Hvað kostar að fara þessa leið? Hvað kostar það bæði í útgjöldum fyrir ríkissjóð og í óþægindum fyrir þá, sem t.d. ferðast landa á milli o.s.frv.? Það væri hægt að ganga svo til verks að grandskoða hvern mann, karl og konu, sem fer á milli landa, og væri þó varla nóg einu sinni að gera það, þegar til landsins er komið, heldur líka, þegar viðkomandi fer úr landinu, því að fylgjast yrði þá með því, hvað viðkomandi hefur haft með sér. Þessa leið væri auðvitað hægt að fara. En spurningin er sú, hvað þetta kostar og hvor leiðin, sú að lækka tollstigana þannig, að þeir verði hóflegir, eða leggja í stóraukinn kostnað við aukið eftirlit, er almenningi hagkvæmari. Ég er ekki í neinum vafa um það, að sú leiðin, sem er ódýrari og minni óþægindum veldur, er að lækka tollstigana. Ég sá nú einhvern síðustu dagana í einu af dagblöðum bæjarins, að það var sagt sem svo: Á s.l. ári voru skattar lækkaðir vegna þess, að ekki væri hægt að hafa fullnægjandi eftirlit með skattsvikum, nú á að lækka tolla, til þess að koma í veg fyrir smygl. Og svo heldur blaðið áfram: Mundi þá ekki næsta skrefið vera það að afnema umferðarlögin, af því að þau eru brotin, og þá næst að afnema hegningarlögin, af því að vitað er, að meiri eða minni brot á þeim eiga sér stað? — En það, sem sést yfir, þegar slíkur samanburður er gerður, er þetta, að það er sá munur á tolla- og skattalögum annars vegar og umferðar- og hegningarlögunum hins vegar, að síðarnefndu lögin eru í samræmi við réttarmeðvitund almennings, en það verður ekki sagt, þegar skattstigar og tollstigar hafa farið fram úr vissu marki. Auðvitað er enginn ágreiningur um, að það eitt, að ákveðin lög séu brotin, réttlætir auðvitað ekki og skapar ekki grundvöll fyrir því, að þau verði afnumin. En það er ekki nóg að líta á það eitt, heldur verður líka að gera sér grein fyrir því, hvernig stendur á því, að lögin eru brotin. Hér er auðvitað mjög mikill eðlismunur á umferðarlögunum og hegningarlögunum annars vegar og þeirri löggjöf, sem hér er um að ræða, hins vegar. Af því að allur almenningur gerir sér ljósa nauðsyn umferðarlaga og hegningarlaga og slík löggjöf er í fullu samræmi við almenna réttarmeðvitund, þá er það að jafnaði þannig, að almenningur hjálpar löggæzlumönnum til þess að koma upp um brot, sem eiga sér stað hvað þessa löggjöf snertir. Ef einhver gerist ökuníðingur, telur almenningur sér skylt og telur sér hag í því að stuðla að því, að það komist upp, e.t.v. að undanteknum nákomnum venzlamönnum þess, er í hlut á. Allt öðru máli gegnir, ef um er að ræða brot á skatta- eða tollalögum. Ef ég verð var við það, að samferðamaður minn í flugvél eða á skipi stingur nokkrum viskýflöskum í handtösku sína og kemst fram hjá tollvörðunum með það, hvernig væri litið á það, ef ég gerði tollvörðunum aðvart í þessu efni? Allur þorri fólks mundi skoða það sem ódrengskap. Og ef ég einhvern tíma gerði þetta, þá væru það ábyggilega tiltölulega fáir, sem mundu túlka það þannig, að það væri vegna löghlýðni. Allur almenningur mundi líta þannig á, að mér væri illa við þennan mann og hefði á ódrengilegan hátt náð mér niðri á manninum með þessu.
Það má nefna í þessu sambandi gjaldeyrislöggjöfina. Samkvæmt lögum ber öllum að skila þeim gjaldeyri, sem þeir hafa afgangs, til bankanna. En hver okkar ætli mundi nú gera það, ef við förum til útlanda og eigum eftir pundsseðil eða eitthvað þess háttar afgangs af ferðapeningunum, að labba með seðilinn í Landsbankann og skipta honum þar fyrir íslenzka peninga? Ég held, að það mundu fáir viðstaddra svara því játandi í fullri hreinskilni, að þeir mundu gera það, og væri ástæðan e.t.v. í sjálfu sér ekki sú, að menn teldu það verulegu máli skipta eða óskuðu að gera sig lögbrjóta fyrir svo lítið, heldur mundu menn ekki gera þetta, þótt ekki væri af annarri ástæðu en þeirri, að þeir mundu vita, að það yrði hlegið að þeim, ef þeir kæmu í bankann með þessa peninga.
Það er þessi eðlismunur, sem er á löggjöf, sem er í fullu samræmi við réttarmeðvitund almennings, og það er fordæmt, ef hún er brotin, og þeirri löggjöf, sem er það ekki, þannig að það er varla nokkur borgari, sem gerir sér samvizku af því, þó að hann brjóti þessi lög, og það er talinn ódrengskapur af óviðkomandi að koma upp um það. Ef þannig háttar um, þá þýðir ekki að mínu áliti að herða á löggæzlunni. Af slíku verður árangur ekki nema takmarkaður, og hann verður gífurlega dýr. Í þessu efni er að mínu áliti aðeins ein leið fær, nefnilega sú að samræma þessa löggjöf hinni almennu réttarmeðvitund. Þá fyrst þegar því skilyrði er fullnægt, verður hún með góðu móti framkvæmd og með viðráðanlegum kostnaði.
Þá vil ég aðeins drepa á það atriði, sem eðlilega hefur þegar verið rætt varðandi þetta frv. og sennilega kemur til að verða rætt við framhald umr., en það er spurningin um það, hvort sú ráðstöfun, sem hér er um að ræða, muni ná tilgangi sínum og hvort þetta muni ekki þýða meira eða minna tekjutap fyrir ríkissjóð. Hvað síðara atriðið snertir hvort ríkissjóður muni hér tapa í tekjum, þá verður auðvitað ekki neitt sagt með neinni vissu í því efni. Hæstv. fjmrh. gat þess í framsöguræðu sinni, að gerð hefði verið á því athugun, eftir því sem föng eru á, hvað mikil mætti ætla að notkunin á þessum vörum væri og hve mikill væri innflutningurinn hins vegar. Niðurstöður þeirrar athugunar voru þær, sem allir vita í rauninni að hvað snertir fjöldamargar af þessum vörutegundum, þá eru líkur á því, að mjög verulegt smygl eigi sér stað, og hvað sumar vörutegundirnar snertir, þá sé það ekki nema lítill hluti af því magni, sem notað er, sem flutt er inn á löglegan hátt. Við meðferð málsins í nefndinni var þeirri fsp. beint til hagstofustjóra, að hann var beðinn að gera sér grein fyrir því, hvað mikið innflutningurinn þyrfti að aukast, til þess að tolltekjur ríkissjóðs af þessum börum yrðu þær sömu og áður voru þrátt fyrir tollalækkunina. Hagstofustjóri lét gera þá athugun, og niðurstaðan varð sú, að innflutningsmagnið þyrfti að jafnaði að aukast um 58%, til þess að tolltekjurnar héldust óbreyttar. Með tilliti til þess, hvað innflutningur er lítill af mörgum þessum vörutegundum, mundi ég telja, að allar skynsamlegar líkur bentu til þess að hér yrði ekki um tilfinnanlegt tekjutap að ræða fyrir ríkissjóð og jafnvel hið gagnstæða, en því efni verður auðvitað ekki neitt fullyrt.
Það sjónarmið kom fram við 1. umr. þessa máls, að þó að hér væri að vísu um verulega tollalækkun að ræða, kæmist maður ekki fram hjá því, að eftir sem áður yrði þó arðvænlegt að smygla þessum vörum, og látinn var í ljós ótti um það, að smyglið mundi halda áfram þrátt fyrir þessa tollalækkun, því að hún væri ófullnægjandi. Ég tel, að í þessu efni gæti e.t.v. meiri svartsýni en efni eru til, og skal í örstuttu máli færa nokkur rök að því. Þess ber þar í fyrsta lagi að gæta, að það er auðvitað síður en svo nauðsynlegt að lækka tollana ofan í ekki neitt til þess að fyrirbyggja smygl. Þetta stendur auðvitað bæði í sambandi við það, að allir vita þó, að áhætta fylgir smyglinu, þó að hún sé mismunandi mikil, og eftir því sem smyglið er arðvænlegra, eftir því verður auðvitað meira freistandi að leggja í þessa áhættu. Það liggur í augum uppi, að við þessa tollalækkun verður það minna arðvænlegt en ella að selja hina smygluðu vöru, svo að það reikningsdæmi, hvort það borgi sig að leggja í þá áhættu, sem smyglið hefur í för með sér, hlýtur undir öllum kringumstæðum að breytast Þannig, að líkurnar á hagnaði verða minni en þær áður voru, þannig að draga ætti undir öllum kringumstæðum úr smyglinu. Hvað mikið það verður, hlýtur auðvitað óvissa að ríkja um. En öðru atriði má líka vekja athygli á í þessu sambandi, og það er það, að gera má ráð fyrir því, að allverulegur hluti af hinum smyglaða varningi er keyptur á smásöluverði. Vörur, sem fluttar eru hins vegar almennt hingað til landsins, eru keyptar á verksmiðjuverði, eins og kunnugt er, og verðmismunurinn hér á milli er vitanlega allmikill, þó að það sé mismunandi fyrir mismunandi vörutegundir. En í ekki fáum dæmum má gera ráð fyrir því, að smásöluverðið sé allt að því helmingi hærra — og jafnvel meira — heldur en verksmiðjuverðið. Þetta gerir það að verkum, að ekki er hægt að selja smyglaðan varning, sem keyptur er á smásöluverði, með hagnaði, jafnvel þó að um verulega tolla sé að ræða. Þessi atriði ber auðvitað að hafa hugföst í þessu sambandi.
Þá vil ég aðeins víkja að einu atriði, sem hér hefur komið fram, nefnilega því, að það hefur verið spurt sem svo: Hvaða trygging er fyrir því, að sú verðlækkun, sem tollalækkunin gerir mögulega, komi neytendunum til góða í lækkuðu vöruverði, en komi ekki fram sem hærri álagning á þær vörutegundir, sem hér er um að ræða? Og vegna brtt., sem ég sé að hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur flutt einmitt varðandi Þetta atriði, þá er sérstakt tilefni til þess að ræða þetta lítils háttar.
Í þessu efni hefur verið bent á það, að samkvæmt ákvörðunum verðlagsyfirvalda á s.l. sumri hafi verið sleppt verðlagsákvæðum í bili á margar þær vörutegundir, sem hér er um að ræða. Varðandi spurningu, sem hér var borin fram við fyrri umr. málsins af sama hv. þm., hvort gert hefði verið ráð fyrir því, að allar þessar vörur yrðu undanþegnar verðlagsákvæðum og jafnvel samið um það við verzlunarstéttina, þá get ég aðeins upplýst, að mér, sem á einmitt eins og stendur sæti í verðlagsnefndinni, sem á þó að hafa æðsta vald í þessum málum, er algerlega ókunnugt um, að um neitt slíkt samkomulag sé að ræða, og undir öllum kringumstæðum er verðlagsnefndin ekki aðili að slíku samkomulagi. Hitt er ekki óeðlilegt, að það séu að nokkru leyti einmitt sömu vörurnar, sem á s.l. sumri voru undanþegnar þessum ákvæðum, og þær, sem tollarnir eru nú lækkaðir á, án þess að þarna sé nokkurt beint samband á milli. Sú eðlilega ástæða til þess er sú, að eins og kunnugt er, þá eru hæstu tollarnir á þeim vörutegundum, sem taldar eru miður nauðsynlegar. Þegar ekki þótti annað fært af ástæðum, sem ég sé ekki ástæðu til þess að rekja hér nánar, á s.l. hausti en að koma að nokkru til móts við kröfur frá verzlunarstéttinni, bæði kaupmönnum og kaupfélögum, um það, að slakað yrði á álagningarákvæðum, þá var það auðvitað ekki óeðlilegt, að í því skyni yrðu líka valdar vörutegundir, sem teldust ekki til brýnna nauðsynja, svo að þannig er sameiginleg ástæða til þess, að háir tollar eru á vörunum og að það eru einmitt þessar vörutegundir, sem voru valdar, þegar gerð var þessi tilslökun á verðlagsákvæðunum. Hitt er rétt að upplýsa, því að það er það, sem mestu máli skiptir í sambandi við það, sem hér er um að ræða, að bæði er það svo, að þetta afnám verðlagsákvæðanna er tímabundið, það gildir aðeins til 1. sept. n.k., og í öðru lagi væri það á algerum misskilningi byggt, að þetta þýði það, að þessar vörur séu nú undanþegnar öllu verðlagseftirliti. Það er eftir sem áður eftirlit með verðlagningu þessara vara, og verðlagsskrifstofan mun fylgjast með því eins og áður, hvað á þær er lagt. Ég tel ekki líklegt, bæði með tilliti til þess, að þetta afnám ákvæðanna er tímabundið og fylgzt er vitanlega með því, hvað á þessar vörur er lagt, að verzlunarstéttin mundi yfirleitt sjá sér hag í því að hækka mjög álagningu á slíkum vörum. Það mundi draga úr líkunum fyrir því, að þeirri tilraun, sem í litlum stíl hefur verið gerð til þess að slaka á verðlagsákvæðum, yrði haldið áfram. Ég tel mjög ólíklegt, þótt ekki sé nema aðeins frá hagsmunasjónarmiði verzlunarstéttarinnar séð, að hún mundi telja sér hag í því að misnota hvað þessar vörutegundir snertir það frelsi, sem hún hefur fengið. Jafnvel þó að svo yrði að einhverju leyti, sem ég tel ekki líklegt, þá má þó í þessu sambandi benda á, að ef það ætti að verða almennt, að lækkun tollanna kæmi fram í hærri álagningu, þá yrðu kaupfélögin líka að vera aðilar að slíku. En ég hygg, að þeir, sem mestan efa hafa látið í ljós um árangur þessara ráðstafana, mundu sízt væna kaupfélögin um aðild að slíku samsæri gegn neytendunum.
Mér er það ljóst, að því fylgir auðvitað áhætta að gera þá tilraun, sem hér er um að ræða. En ég tel samt sem áður sjálfsagt að gera hana, bæði vegna þess, að skynsamleg von er til þess, að draga megi á þennan hátt úr smygli, án þess að ríkissjóður þurfi að tapa í tekjum, og vegna þess, að lækkun tolla hefur einnig, svo sem ég hef gert grein fyrir, í ýmsu öðru tilliti hagstæð áhrif á þjóðarbúskapinn.