14.02.1962
Sameinað þing: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í D-deild Alþingistíðinda. (3440)
93. mál, haf- og fiskirannsóknir
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 143, er flutt að beiðni 20. þings Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, sem haldið var á s.l. hausti. Í grg. er m.a. bent á, að hið mikla hrygningarsvæði þorsksins við Suðvesturland hafi verið talið svo sjálfsagt og eðlilegt fyrirhæri, að vísindalegar haf- og fiskirannsóknir hafi að mjög takmörkuðu leyti beinzt að því þorskurinn kemur og fer á svipuðum tíma á þessi mið, innlend og erlend veiðiskip moka honum upp á skarpasta hrygningartímanum í marz og apríl. Við suðvesturströnd Íslands og í Faxaflóa berst að landi undirstaðan að útflutningsverðmætum, sem nema öðru hvorum megin við 1500 millj. íslenzkra króna. Og svo þegar veiðitímabili lýkur, þá er rætt um annaðhvort góða eða lélega vertíð. En ,jafnhliða bættri veiðitækni og meiri aflasókn telja menn, sem vit hafa á, að um árvaxandi aflarýrnun sé að ræða, og um þetta hafa margar tilgátur komið fram. Flestir tilgreina, — og það er margt, sem bendir til, að svo sé, — að um ofveiði á stofninum sé að ræða, en vísindaleg þekking okkar á lífsskilyrðum og lífsafkomu fisksins á veiðisvæðinu er svo takmörkuð, að vel mætti vera, að fleiri atriði kæmu til greina.
Fiskideild atvinnudeildar háskólans hefur á að skipa færum vísindamönnum og starfsmönnum við sjó- og svifrannsóknir, bæði þorsk-, karfa og síldarrannsóknir og botndýra- og flatfisksrannsóknir, en þetta fellur allt í nokkuð sama farveg og tengir hvað annað saman að meira eða minna leyti. Þeir hafa nú orðið ágæt vinnuskilyrði í landi til vísindalegra afreka fyrir sjávarútveg þjóðarinnar, en verkefni og verknýting hefur ávallt takmarkazt og gerir það enn að verulegu leyti af því, að þá skortir skip undir eigin umsjón til gagnasöfnunar og rannsóknar á sjónum. Sú tilhögun, sem verið hefur um skipakost þessarar vísindastofnunar, er veiki hlekkurinn í starfsemi hennar. Nokkur skilningur hefur vaknað fyrir þessu í samhandi við síldarrannsóknir fyrir Norðurlandi á sumrin, og þar hafa verið gerðar skipulagsbundnar rannsóknir.
Með þessari till. er stefat að því, að hér eftir verði lögð áherzla á ríkar rannsóknir um lífsafkomu þorsksins hér við land. Þar kemur að sjálfsögðu margt til greina, og það má t.d. nefna rannsóknir á hafstraumum og hitabreytingu sjávar og svifi, hrygningu þorsksins og magni á ýmsum svæðum, og þá jafnframt, eins og t.d. margir sjómenn hafa viljað benda á, hvort umferð tuga og jafnvel hundraða skipa ásamt lögn og tilfærslu veiðarfæra yfir og um þau svæði, þar sem fiskseiðin við þroskun koma upp undir eða í yfirborð sjávarins til fæðuöflunar, gæti haft einhver áhrif á uppvaxtarmöguleika ungviðsins. Í framhaldi af bættri og aukinni stækkun landhelginnar og viðurkenningu annarra þjóða á mikilvægi fiskveiða okkar er það siðferðileg skylda okkar að sýna þeim, að við höfum sjálfir skilning á og vilja til að kynna okkur allt, sem snertir mikilvægi hrygningarstöðva nytjafiska okkar hér við land. Og stórt skref í því sambandi er að hefjast nú þegar handa um víðtækar og samfelldar vísindarannsóknir fyrir Suðvesturlandi á komandi þorskvertið. Að í þessari till. er bent á skip frá landhelgisgæzlunni, er í fyrsta lagi vegna þess, að eitt eða tvö þeirra eru útbúin fyrir rannsóknir og skipverjar þeirra þjálfaðir í slíkum störfum. Það væri ekki fráleitt að hugsa sér, að þetta skip gæti einnig stundað eftirlit með veiðisvæðum, ef af skiptingu þeirra yrði. Slík tilhögun með skip landhelgisgæzlunnar hefur verið í framkvæmd af hálfu ríkisvaldsins í sambandi við síldarrannsóknir norðanlands, meðan það ástand ríkir, að fiskideild atvinnudeildar háskólans hefur ekki fengið fullkomið rannsóknarskip til sinna umráða.
Það hefur því miður dregizt að taka till. þessa fyrir vegna hins langa þinghlés, en hins vegar getur samþykkt hennar enn orðið að því gagni, sem henni er ætlað að verða, jafnvel þótt meginverkefninu yrði frestað um nokkra mánuði. En ég er hins vegar viss um, að flutningur hennar og þær umsagnir frá væntanlegum aðilum, sem till, verður send til umsagnar, mun vekja marga til umhugsunar um það, hve nauðsynlegt er, að fiskideild atvinnudeildarinnar fái sitt eigið rannsóknarskip til umráða hið fyrsta, sem sé smíðað eftir þörfum í hvívetna. Þetta verður enn brýnna, þegar haft er í huga, að slíkt skip gæti að miklu leyti annað þeirri fiskileit, sem við höfum haft með höndum að undanförnu.
Það hefur verið rætt mikið um hjálp til handa útgerðinni eða hluta hennar nú upp á síðkastið. En það hefur farið fram hjá mörgum, að haf og fiskirannsóknir auk fiskileitar eru beint framlag til aukins afraksturs og hagkvæmni hjá útgerð okkar, sem skilar sér ekki aðeins í bættum hag hennar, heldur fiskimannanna sjálfra og þjóðarinnar í heild.
Ég vil, herra forseti, leggja til, að umr. um þetta mál verði frestað og því vísað til allshn.