04.04.1962
Sameinað þing: 48. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (3497)
151. mál, þyrilvængjur
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Á þskj. 300 flyt ég till. til þál. um, að ríkisstj. verði falið að festa kaup á tveimur þyrilvængjum til aðstoðar við landhelgisgæzluna. Jafnframt legg ég svo til, að önnur þyrlan verði að jafnaði staðsett á Vestfjörðum og sé henni ætlað að annast þar farþegaflug, póstflutninga og sjúkraflug, að svo miklu leyti sem slík þjónusta kynni að geta samrýmzt aðalstarfi hennar í þjónustu landhelgisgæzlunnar, sem að áliti flm. skal jafnan sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum störfum. Hin þyrlan legg ég til að verði staðsett á Austfjörðum og annist hún sams konar almenna þjónustu á Austurlandi og hin á Vestfjörðum auk aðalverkefnis síns í þarfir landhelgisgæzlunnar.
Fyrir tveimur árum flutti ég till. til þál. um kaup á þyrilvængju til samgöngubóta innanhéraðs á Vestfjörðum, og flutti þá einn af þm. Austf. samstundis brtt, við hana um, að einnig yrði keypt þyrilvængja, sem annaðist farþega og póstflutninga ásamt sjúkraflugi á Austurlandi. Samt sem áður fékkst till. þá ekki afgreidd, hana dagaði uppi í nefnd.
Þegar fullkomnasta varðskip okkar Íslendinga, Óðinn, var smíðað, var yfirbyggingu skipsins hagað þannig, að þyrilvængja gæti haft lendingarstað á þilfari skipsins. Sérfróðum mönnum á þessu sviði var þá þegar ljóst, að þyrilvængjurnar væru tæki, sem gætu hjálpað til við að leysa vissa þætti strandgæzlunnar, sem tæpast yrðu leystir á annan hátt. Síðan eru liðin nokkur ár, en ekki hefur orðið af framkvæmdum. Þó hefur ungur og efnilegur flugmaður aflað sér sérþekkingar á að stjórna þyrilvængjum, og nýlega voru gerðar tilraunir með lendingu þyrilvængju á þilfari varðskipsins Óðins, og er mér tjáð, að þessar tilraunir hafi vel tekizt. Þetta hvort tveggja virðist benda til þess, að enn þá hafi menn það í huga að taka þyrilvængjur í þjónustu landhelgisgæzlunnar. En þessar lendingartilraunir á Óðni varð þó að gera með þyrilvængju, sem varnarliðið á Keflavíkurflugvelli lánaði góðfúslega til þessara tilrauna.
Það hefur komið fyrir oftar en einu sinni, að íslenzkir aðilar hafa orðið að leita til varnarliðsins í alvarlegum slysa- og sjúkdómstilfellum um lán á þyrilvængju til þess að sækja fársjúka eða sárþjáða menn á staði, þar sem venjulegum flugvélum var með engu móti við komið. Það er skammt síðan þyrla frá varnarliðinu var fengin til að sækja sjúkan mann vestur í Dalasýslu, það var núna á þessum vetri, og tókst sú för giftusamlega, og töldu blöðin, að í því tilfelli hefðu engar aðrar leiðir verið færar til að koma hinum sjúka manni fljótt og vel og örugglega á sjúkrahús til sérfræðiaðgerða. Þessi dæmi, þótt ekki séu fleiri tekin, sýna, að Íslendingar þurfa að eignast þyrilvængju. Við þurfum a.m.k. að vera sjálfum oss nógir að þessu leyti í neyðartilfellum. En þörfin er samt miklu viðtækari að mínu áliti. Þar á meðal er verkefni fyrir þyrilvængju í sambandi við fullkomnari gæzlu landhelginnar og til samgöngubóta í strjálbýlum og afskekktum héruðum. En þetta tvennt tel ég, að geti samrýmzt á þann hátt, að sömu vélarnar gegni hvoru tveggja hlutverkinu, og ber þá auðvitað að staðsetja þær með sérstöku tilliti til þess. Ég hef trú á því, að þyrilvængja staðsett á Austfjörðum og Vestfjörðum hefði til dæmis mikla þýðingu í þjónustu öryggis- og heilbrigðismála í þessum landshlutum. Fjórðungssjúkrahús eru á Ísafirði og í Neskaupstað, en oft er miklum erfiðleikum bundið að koma sjúklingum þangað úr fjarlægum og afskekktum byggðarlögum, einkum að vetrinum. Þessi vandi væri leystur á hinn ákjósanlegasta hátt með þyrilvængju. Sumir hafa nú þegar vakið máls á því, að leysa mætti vandræði fólksins í þeim læknishéruðum, sem langtímum saman hafa verið og eru læknislaus, með stækkun og þar með fækkun læknishéraða. Gæti þar með sparazt nokkurt fé, sem kæmi þá upp í hluta af rekstrarkostnaði þyrlunnar. Það má geta þess, að á fulltrúafundi í Bjarkarlundi s.l. haust með þm. Vestfjarða hreyfði fulltrúi úr Breiðafjarðareyjum því, að tryggja mætti íbúum Flateyjarlæknishéraðs betri læknisþjónustu með því að sameina það hérað t.d. Reykhólahéraði, einkum ef þyrilvængja væri tekin í þjónustu heilbrigðismálanna. Þannig hefur fólkið úti í dreifðum byggðum landsins þegar komið auga á hina miklu og margvíslegu möguleika, sem þyrilvængjurnar opna til bættra samgangna. Víst eru þyrilvængjur dýr tæki, og einnig er talið, að rekstrarkostnaður þeirra sé nokkuð mikill. Úr þessu skal ég engan veginn draga. En það sparar líka mikið fé að losna við alla flugvallargerð í sambandi við nýtingu þeirra, og þá er sú bílaþjónusta, sem nauðsynleg er ávallt í sambandi við aðrar flugvélar að flugvöllum og frá þeim, ekki heldur lítill kostnaðarliður. En þeirrar aðstoðar er ekki þörf í sambandi við þyrilvængjur.
Það fer ekki á milli mála, að Vestfirðir og Austfirðir búa við ófullkomnari og erfiðari samgöngur en aðrir landshlutar. Þess vegna er hér lagt til, að þyrlur þær, sem tillagan fjallar nm, verði þar staðsettar. Einmitt þar hefðu þær brýnustu verkefni að gegna um farþegaflug, póstflutninga og sjúkraflug milli einangraðra staða. En jafnframt eru fyrir Vestfjörðum þau fiskimið, sem útlend fiskiskip sækja einna mest á, sérstaklega að vetrinum, þegar öll gæzla landhelginnar er hvað erfiðust. Þá kemur það og til, að meðan sjóflugvélar voru notaðar í innanlandsfluginu, nutu Vestfirðingar dágóðra flugsamgagna. En á þessu hefur orðið stórbreyting til hins verra. Flug hefur lagzt niður til Patreksfjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar og Hólmavíkur. Ísafjörður er sem stendur eini staðurinn á Vestfjörðum, sem nýtur beinna flugsamganga við Reykjavík. Það getur enga furðu vakið, þó að Vestfirðingar uni allir þessari afturför í samgöngumálum þeirra. Að vísu væri ekki mjög kostnaðarsamt að lengja svo flugbrautirnar við Þingeyri og Hólmavík, að flug gæti hafizt þangað fljótlega. En vafalaust verður þess nokkuð langt að bíða, að flugvellir verði fullgerðir á Patreksfirði, í Bíldudal og í Önundarfirði, en þá fyrst, þegar þetta væri gert, væru þó flugsamgöngur Vestfirðinga aðeins komnar í svipað horf og áður var. En þar að auki eru mörg byggðarlög þannig sett á Vestfjörðum, að í grennd við þau eru engin skilyrði til meiri háttar flugvallargerðar. Þeirra þörf fyrir flugsamgöngur verður því aldrei leyst með öðru móti en með þyrilvængju. Mér koma í hug staðir í þessu sambandi eins og Súgandafjörður, Tálknafjörður, Ingjaldssandur, Rauðasandur, Barðaströnd, Austur-Barðastrandarsýsla, norðurhluti Strandasýslunnar, ýmsar byggðir við Ísafjarðardjúpið og raunar fleiri staðir og byggðarlög, sem þyrlur gætu veitt ómissandi þjónustu.
Það, sem hér hefur verið sagt um Vestfirði, á í flestum tilfellum einnig við um Austfirðina, og skal ég ekki fara nánar út í það.
Ég get búizt við, að einhverjum fyndist e.t.v. óþarflega mikið í fang færzt með því að kaupa tvær þyrilvængjur í upphafi, ein gæti dugað í tilraunaskyni. Og á það skal að vísu fallizt, að víst væri það spor í rétta átt og til nokkurra bóta að kaupa eina þyrilvængju, því að ef svo væri gert, værum við Íslendingar ekki lengur á slíku bónbjargastigi á þessu sviði gagnvart setuliðinu sem við höfum verið til þessa. En þó er sannleikurinn sá, að helzt þyrfti að kaupa þrjár þyrilvængjur samtímis, eina staðsetta á Vestfjörðum, aðra á Austfjörðum og þá þriðju staðsetta hér suðvestanlands. Það mundi fljótt sannast, að þeirra væri allra full þörf, og það getur leyst margan vanda, sem ekki er auðleystur með öðrum hætti.
Það er mesti misskilningur, að nokkurra tilrauna sé þörf með þyrilvængjur. Þær eru nú þegar þrautreynd farartæki erlendis. Þær eru orðnar mjög algengar til farþega- og póstflutninga á styttri flugleiðum á meginlandi Evrópu, einkum milli hinna stærri flugvalla álfunnar, og hef ég t.d. sjálfur ferðazt með 12 farþega þyrilvængju milli Brüssel og Kölnar. Og það er líka algengt að heyra það í heimsfréttunum, þegar sagt er frá stórslysum og náttúruhamförum, að þyrlur hafi þá þegar verið sendar á vettvang til björgunar, og verður þetta að gerast oft og tíðum við hin erfiðustu veðurskilyrði. Nú fyrir skemmstu, — það var ná í vetur, fyrir um tveimur mánuðum eða svo, — var sagt frá því, að fjöldi húsa hrundi í einni af stórborgum Bretlands og óðar voru þyrlur sendar á vettvang til þess að bjarga fólki úr rústunum. Þá veit ég og, að margir minnast þess, að stundum er frá því sagt, að forseti Bandaríkjanna bregði sér á milli borga, frá og til Hvíta hússins, í þyrilvængju. Bendir það til þess, að tækið þyki nú þegar svo öruggt, að lífi hans sé með því ekki stofnað í neinn háska. Þá muna menn það og, að geimfarinn Glenn ofursti var fiskaður upp af þyrilvængju, þar sem hann hafði lent á hafinu eftir geimflug sitt. Og enn má geta þess, að danska landhelgisgæzlan keypti nýlega tvær hraðfleygar þyrilvængjur, svokallaðar þotuþyrlur — eða jet-helikopter — til aðstoðar við strandgæzluna á Norðursjó. Annars hygg ég, að ekki þurfi miklar orðræður að hafa um það við hv. alþm., að þyrilvængjur séu gagnlegar og geti leyst ýmiss konar vanda, sem ekki verði leystur með öðrum flugvélum. Þeirra mestu yfirburðir liggja í því, að þær geta lent og tekið sig upp nálega hvar sem er, jafnvel af þilfari skips eða flötu húsþaki, og þurfa þannig enga flugvelli. Slíkur eiginleiki getur sparað mikið fé og verður að teljast ómetanlegur í okkar strjálbýla fjallalandi. Takmörkun þyrilvængnanna er hins vegar minni hraði en annarra flugvéla, og því henta þær síður til flugs á langleiðum. En í sambandi við það hlutverk, sem hér hefur verið rætt um að leysa, er það ekki hraðinn, sem mestu máli skiptir. Hitt er aðalatriðið, að þyrlurnar geta komið að gagni við ýmisleg skilyrði, þar sem öðrum flugvélum verður ekki við komið. Þess vegna tel ég, að það eigi að samþykkja þessa till. Með samþykkt hennar væri þrennt unnið: Stórt skref væri stigið áfram í öryggismálum vorum, landhelgisgæzlan væri efld og þær umbætur fengnar í samgöngumálum dreifbýlisins, sem tæpast geta orðið að veruleika með neinum öðrum hætti.
Herra forseti. Ég legg til, að till. verði að þessari umr. lokinni vísað til síðari umr. og hv. fjvn.