06.04.1962
Sameinað þing: 50. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í D-deild Alþingistíðinda. (3557)

174. mál, raforkumál

Björn Pálsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég skal ekki endurtaka það, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG) sagði hér, og ekki fara út í miklar tölur. Ég vildi aðeins benda á það, sem flestum er sennilega ljóst, og það er, að fólkið, sem vantar rafmagn, þráir ekkert meira en að fá það. Og sveitafólkið spyr mann fyrst um það: Hvenær fáum við rafmagnið? Þetta veit ég að hæstv. raforkumálaráðherra er ljóst.

Það hefur tæplega helmingur af bændum landsins fengið rafmagn, og það er líklegt, að það kosti á milli 300 og 400 millj. kr. fyrir ríkissjóð að koma rafmagni á þau sveitabýli, sem hægt er að leggja rafmagn á vegna þess, hve mikil fjarlægð er á milli býlanna. En það er ákaflega mikils virði fyrir fólkið að fá ákveðið, hvort það eigi von á því að fá rafmagn frá rafstöðvum ríkisins eða ekki. Ef þeir eiga ekki von á því, þá geri ég ráð fyrir því, að margir reyni að koma sér upp dísilstöðvum. Það má ef til vill segja, að það sé erfitt að leggja fram mikið fé umfram það, sem nú er gert, til þessara hluta. En þó hygg ég, að fé ríkisins sé varið til ýmissa ónauðsynlegri hluta en að koma rafmagni til fólksins. Meðan allir voru rafmagnslausir í sveitum, undi fólkið frekar við það heldur en nú, þegar sumir eru búnir að fá rafmagn, því að maðurinn er þannig gerður, að hann óskar eftir því að njóta sömu þæginda og segja má að nágrannarnir hafi. Þess vegna held ég, að það sé ekki um annað að gera en reyna að hraða framkvæmdum í þessu efni, reyna að leggja raflínur til þeirra, sem gerlegt er að leggja rafmagn til á þann hátt, og stuðla þá að því, að hinir geti komið sér upp dísilstöðvum. Það er nú t.d. varið um 100 millj. kr. á ári í fjölskyldubætur með tveimur fyrstu börnunum. Ég er sannfærður um, að það væri betra fyrir þjóðfélagið í heild að taka þetta framlag í t.d. 3—4 ár og koma rafmagni til þeirra bæja, sem hægt er að koma rafmagni til með því að leggja raflínur. Ég er sannfærður um, að það yrði hagkvæmara fyrir þjóðfélagsheildina, því að flestir mundu komast þolanlega af, þó að þeir fengju ekki fjölskyldubætur með fyrstu tveimur börnunum. Það er varið sennilega fullum 30 millj. til atvinnuleysistrygginga árlega, sem ekki eru notaðar, vegna þess að það er ekkert atvinnuleysi um að tala. Ég er því sannfærður um, að ef áhugi er fyrir hendi, þá er hægt að verja miklu meira fé til þessara hluta en gert hefur verið. Ég er ekki með neinar aðdróttanir í garð núverandi raforkumálaráðherra í þessu efni, og ég veit og vona, að hann skilji þetta og geri það bezta, sem hægt er að gera í þessu efni. Og það, sem þarf að gera, er að hraða áætlununum.

Ég hef átt tal um þetta við forráðamenn raforkumálaskrifstofunnar, og þeir telja, að þá hafi skort tíma til að gera þessar áætlanir, þeir séu ekki búnir að því, svo að það liggur ekki alveg ljóst fyrir, hvaða býli það eru, sem gerlegt er að leggja rafmagn til með raftaugum. En þeir telja, að þeir muni ekki þurfa að eyða mjög miklum tíma í þetta. Ég spurði þá að því, hvort það væri hægt að fá aðstoð við þetta, en þeir töldu, að það kæmi ekki að notum, þeir yrðu að gera þetta sjálfir. En það er ákaflega áriðandi, ef hægt er að gera eitthvað til þess að stuðla að því, að þeir geti leyst þetta verk af hendi, að það sé gert og það verði búið að framkvæma það, áður en þing kemur saman næsta vetur. Vitanlega er ekki um auknar fjárveitingar að tala á þessu sumri til þessara hluta, en það væri hægt að athuga það við næstu fjárlög, hvort ekki væri hægt að veita meira fé til raflagna en verið hefur.

Nú er það svo, að verðgildi hverrar krónu hefur stórminnkað undanfarin ár, og þá er ekki óeðlilegt, að þeim krónum fjölgi, sem til þessara hluta er varið.

Ég veit, að raforkumálaráðherra hefur haft ýmsu að sinna, ýmsum stórum málum En það er nú þannig með öll ofurmenni, að þegar þeir eru búnir að gera eitt afrek, þá ráðast þeir í annað, og ég vænti þess, að það verði þannig með hæstv. raforkumálaráðh., að hann geri nú stórt átak í þessum efnum, því að fyrir sveitafólkið er ekkert betra hægt að gera heldur en að koma rafmagninu til þess. Það breytir algerlega lífsskilyrðum þess og skapar því meiri ánægju og lífsþægindi heldur en það hefur átt kost á til þessa tíma. Og ég hygg, að það muni ekki mikið skerða fjárhag þjóðarheildarinnar, þó að það væri lögð meiri áherzla á þessa hluti en verið hefur undanfarin ár, og vil ég þó ekki gera neitt litið úr því, sem gert hefur verið.