06.04.1962
Sameinað þing: 50. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í D-deild Alþingistíðinda. (3560)

174. mál, raforkumál

Flm. (Skúli Guðmundason):

Ég vil taka undir þau orð hv. 1. þm. Vestf. (GíslJ), að þetta sé svo mikið nauðsynjamál, að það sé tæplega hægt að hugsa sér í framtíðinni byggð á þeim stöðum, sem ekki njóta rafmagnsins.

Ég vildi aðeins segja út af því, sem hæstv. ráðh. sagði hér um fjölda býla, sem hefðu fengið rafmagn síðustu árin, að tölur þær, sem hann nefndi fyrir árin 1958, 1959 og 1960, standa ekki heima við það, sem ég hef hér á skýrslu frá raforkumálaskrifstofunni. Þetta yfirlit, sem ég fékk, er dagsett 9. marz nú í vetur, og þar er gefinn upp fjöldi tengdra býla við héraðsrafmagnsveitur ríkisins, og fyrir 1961 er gefin upp talan 158, og það held ég hljóti að vera rétt tala. Hitt er annað mál, að þarna eru talin hvert ár tengd býli við héraðsrafmagnsveiturnar, en oft stendur þannig á, að um áramót er búið að vinna við ákveðnar línur að verulegu leyti, setja upp staura og vinna að þessu kannske að nokkuð miklu leyti, þó að tenging fari ekki fram fyrr en á næsta ári. En þessi skýrsla, sem ég hef hér, er sjáanlega gerð þannig, að það eru talin þau býli, sem hafa verið tengd við aðalveiturnar á hverju ári, án tillits til þess, hvort það hefur verið unnið á því ári algerlega að framkvæmdum fyrir þau býli eða ekki, og ég hugsa, að þessi skýrsla sé alveg örugg. En það er rétt, að það hefur verið unnið að þessari 10 ára áætlun undanfarið, eins og ráð var fyrir gert. Þó er það svo, að það hefur ekki verið framkvæmt enn allt, sem gert var ráð fyrir, að því er snertir byggingu orkuvera og lagningu aðalorkuveitna frá þeim. Eins og við munum, þá var ákveðið 1959, fyrir forgöngu þeirrar stjórnar, sem þá sat hér, að hætta við a.m.k. um sinn að byggja nokkrar vatnsaflsstöðvar, sem gert var ráð fyrir í 10 ára áætluninni, en setja upp dísilstöðvar í staðinn. Þannig hafa orðið frávik veruleg frá þessari 10 ára áætlun. En hvað snertir dreifilínurnar um héruðin, þá hefur verið unnið að þessu öll árin með svipuðum hætti.

Ég vil svo aðeins þakka þær góðu undirtektir, sem till. hefur fengið, og vildi vænta þess, að samkomulag gæti orðið um afgreiðslu málsins, þótt mjög sé liðið á þingtímann, og síðan verði unnið að þessum áætlunum og framkvæmdum, sem till. fjallar um, með þeim hraða, sem unnt er.