28.03.1962
Sameinað þing: 46. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í D-deild Alþingistíðinda. (3577)

191. mál, byggingarannsóknir

Flm. (Gunnar Guðbjartsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja þáltill. á þskj. 428 um byggingarannsóknir, sem fjallar um það, að Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta nú þegar koma til framkvæmda ákvæði 77.—79. gr. laga um landnám, ræktun og byggingar í sveitum frá 28. maí 1957 um byggingarannsóknir með það að markmiði, að í senn fáist ódýrari og hagkvæmari gerð útihúsa í sveitum, þar sem hægt er að koma við meiri vinnutækni við bústörf heldur en nú viðgengst.

Þau ákvæði, sem hér er rætt um, eru svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Landbrh. skipar 5 manna n., er hafi það verkefni í samvinnu við teiknistofu landbúnaðarins að gefa sem ákveðnastar leiðbeiningar um hagkvæmustu gerð bygginga á sveitabýlum og þá sérstaklega peningshúsa. N. lætur rannsaka verð og gæði húsa, sem nú eru til eða reist verða, með tilliti til þess, að með því fáist grundvöllur undir öruggari leiðbeiningarstarfsemi í byggingarmálum sveitanna. Í n. skulu vera forstöðumaður teiknistofu landbúnaðarins, yfirdýralæknir, nautgriparæktarráðunautur og sauðfjárræktarráðunautur Búnaðarfélags Íslands og einn maður, er landbrh. skipar í n. án tilnefningar. Landbrh. ákveður, hver skuli vera formaður n: Auk þess er í 79. gr. ákvæði um það, að n. megi ráða sér sérfræðing til aðstoðar við ýmis störf, og enn fremur, að kostnaður við störf n. skuli greiðast úr ríkissjóði.

Þegar þessi ákvæði höfðu verið samþ. á Alþingi eða stuttu eftir það, þá var það ákveðið af þáv. landbrh. að skipa þessa n., og fór sú skipun fram 6. febr. 1958. Til viðbótar við þá 4 sérfræðinga, sem um er rætt í 1., að skuli vera í n., var skipaður í n. Sveinbjörn Jónsson byggingameistari, en Halldór Pálsson ráðunautur var skipaður formaður n. N, hóf störf sín í marz 1958, og á því ári hélt hún alls sex fundi og næstu árin á eftir nokkra fundi. Ég hef fengið frá ritara þessarar n. útdrátt úr því, hvernig n. vann eða hugsaði sér að vinna, og þau helztu verk, sem hún taldi nauðsyn á að gerð yrðu, og ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa nokkur atriði úr þessari skýrslu.

N. ákvað að byrja á því að kynna sér gerð og fyrirkomulag peningshúsa á ýmsum stöðum á landinu með tilliti til búnaðarhátta og veðurfars eða sjá, hvað þar kynni að vera til fyrirmyndar og eftirbreytni og hvað til viðvörunar. Í þeim tilgangi var ferðazt um flest héruð landsins, svo sem hér segir: Árið 1958 var ferðazt um í 2 daga í Árnessýslu og fjós og fjárhús og fleiri byggingar skoðaðar á 14 bæjum. Önnur ferð var gerð til Norðumlands, og voru þá einkanlega skoðuð fjárhús, en aðrar byggingar eftir því sem tími vannst til. Komið var á 44 býli í þeirri ferð milli Langaness og Borgarfjarðar, flest þó í Þingeyjarsýslu. Árið 1959 var síðari hluta vetrar ferðazt um Húnavatnssýslur báðar og skoðuð peningshús, meðan féð var á gjöf, alls á 13 býlum. Önnur ferð var farin snemma vors um Árnes- og Rangárvallasýslu og þar aðallega skoðuð básafjós með rimlaflórum. Var í þeirri ferð komið á átta býll. Þá var einnig um hvítasunnu sama ár ferðazt um Fljótsdalshérað og einkum skoðaðar sambyggingar peningshúsa, þar sem mjólkurframleiðsla er samhliða sauðfjárbúskap. Árið 1960 skoðuðu formaður og ritari fjós og fjárhúsbyggingar á 7 bæjum í Dalasýslu, og formaður skoðaði fjárhús á nokkrum bæjum í Strandasýslu sama ár. Auk þess leituðust nm. við að kynna sér byggingar hver í sínu lagi á embættisferðum sínum um landið.

Eitt af þeim verkefnum, sem n. taldi í upphafi að hún hlyti að hafa afskipti af, voru rannsóknir á byggingarefnum ýmiss konar, enda nauðsynlegt og viðurkennt, að ekki sé skynsamlegt að nota önnur efni til bygginga en þau, sem hafa viðunandi varanleika og ná því takmarki, sem gera verður kröfur til, en á þetta hefur mjög skort, svo sem víða má sjá dæmi um. Átti n. í upphafi um þetta tal við landbrh., framkvæmdastjóra rannsóknaráðs, iðnaðardeild atvinnudeildar og stjórn Búnaðarbankans. Enda þótt allir þessir aðilar viðurkenndu nauðsyn úrbóta í þessum efnum, vantaði fjármagn, og varð n. sammála um að stuðla að úrlausn þessara mála. Á árinu 1959 varð Búnaðarbankinn við óskum n. um 80 þús. kr. framlag til rannsókna á malar og sandnámum í þeim héruðum, þar sem erfiðast er um steypuefni. Hefur iðnaðardeild atvinnudeildar háskólans séð um þessar rannsóknir í samráði við forstöðumann teiknistofu landbúnaðarins og í samvinnu við verkfræðinga vegamálastjórnar. Voru árið 1959 einkum gerðar athuganir í Mýrasýslu og Vestur-Húnavatnssýslu, og aðstoðuðu byggingarfulltrúar og byggingarnefndir hver á sínum stað við þessar rannsóknir, sem gáfu góða raun. Hefur þessum rannsóknum síðan verið haldið áfram á vegum iðnaðardeildarinnar með fjárframlagi frá Búnaðarbankanum.

N. hafði frá upphafi líka áhuga á því, hvaða gerðir bygginga væru heppilegastar, bæði með tilliti til byggingarkostnaðar og fyrirkomulags. Má í því sambandi nefna grindafjós í samanburði við básafjós, einangrun fjárhúsa eða ekki, fóðrun og þrif sauðfjár á grindum, borið saman við þrif þess í fjárhúsum af öðrum gerðum. N. ákvað að byrja með samanburðartilraunir á þrifum sauðfjár og hafði undirbúið það mál við bændur, sem voru í þann veginn að hefja byggingu fjárhúsa. Beiðni um fjárveitingu til þeirra var þó synjað og varð ekki úr framkvæmdum.

Ég hef hér drepið á örfá atriði úr þessum útdrætti úr starfsskýrslu þessarar n., sem skipuð var, sem sýnir það, að starf hennar var mjög fjölþætt. Það var bæði um það að —rannsaka byggingarefni og gerðir bygginga og hvernig skepnur þrifust við mismunandi skilyrði og enn fremur um það, hvernig hægt væri að fá hagkvæmar byggingar og góðar til þess að vinna í þeim. En það kom fljótt í ljós, að n. fékk ekki það fjármagn til síns starfs, sem hún taldi nauðsyn til bera og hún hafði þörf fyrir, til þess að árangur gæti orðið af vinnu hennar, og það fór svo, að eftir margendurteknar og ítrekaðar tilraunir til þess að fá fjárframlög í þessu skyni, bæði af hennar sjálfrar hálfu og af hálfu landnámsstjóra og hæstv. landbrh., þá lagði n. niður störf sín og síðasti fundur hennar var haldinn 16. jan. 1961, og það má telja, að þetta hafi eingöngu verið vegna fjárskorts til þessarar starfsemi.

Það verður ekki um það deilt, að mikil þörf er á því, að þetta starf verði unnið. Það er mikil byggingarþörf í sveitum á hverjum tíma, og eftir því sem fjármagnsþörf er meiri til bygginga, þeim mun meiri nauðsyn er á því, að gerð séu átök til þess, að byggingarnar verði eins ódýrar og hagkvæmar og frekast er kostur. Það er talið, að það muni vera hægt að lækka byggingarkostnað með nýjum byggingaraðferðum og með nýjum byggingarefnum. Í því sambandi hafa komið fram ýmsar nýjungar mjög athyglisverðar. M.a. hefur fyrirtæki, sem er að hefja starfsemi hér í Reykjavík og heitir Byggingariðjan, nú hug á því að framleiða ný byggingarefni eða svokallaða strengjasteypu, sem yrði notuð í því skyni að koma upp útihúsum í sveitum m.a. Þetta fyrirtæki telur, að með þeirri byggingaraðferð mundi vera hægt að lækka byggingarkostnaðinn verulega, kannske allt að 20%, og líka kunni að vera hægt að fá hagkvæmari byggingar, ef teknar væru upp nýjungar, sem till. hafa komið fram um í þessu sambandi.

Það virðist því vera eðlilegt að styðja þá viðleitni, sem fram kemur í þessu efni eins og ýmsum öðrum, og fá úr því skorið, hversu hagkvæmt þetta er, og reyna að stuðla að því, að bændur taki upp þær nýjungar, sem reynast vel og hafa í för með sér minni kostnað en nú er við gerð bygginga.

Þá er mikið rætt um nauðsyn þess að fá hagkvæmari gerð bygginga í sveitum en tíðkazt hefur nú um skeið, m.a. talað um rimlafjós og rimlabásafjós og aðra staðsetningu eða skipulagningu á milli hinna einstöku bygginga, þannig að hægt væri að koma við meiri vélavinnu, notkun rafmagns og annars þess háttar við bústörfin og skepnuhirðinguna. Það hafa komið líka þar mjög athyglisverðar till., sem æskilegt er að verði reyndar, en það má gera ráð fyrir því, að það sé ofvaxið einstökum bændum að leggja í slíkar tilraunir, og þess vegna ekki nema eðlilegt, að ríkisvaldið sjálft taki að sér að leggja fé til þess, að þessum tilraunum verði haldið áfram eða þær teknar upp að nýju.

Það er mjög þýðingarmikið atriði fyrir okkur Íslendinga eins og aliar þjóðir að tileinka okkur hina nýjustu tækni og vísindi á öllum sviðum. Það mun hjálpa framþróun í okkar þjóðfélagi meir en flest annað, ef við höfum skilning á því og reynum að tileinka okkur nýjungarnar eins og aðrar þjóðir. En allt slíkt kostar fjármuni. Allar rannsóknir kosta mikla fjármuni, og eins og ég sagði, þá er ekki hægt að ætlast til þess, að einstök fyrirtæki eða einstakir bændur leggi fé í slíkar rannsóknir, heldur verður að gera ráð fyrir því og gera kröfur til þess, að þjóðfélagið sjálft kosti þær, að þjóðfélagið í heild nýtur arðsins, sem fæst af öllum slíkum rannsóknarstörfum.

Íslenzkur landbúnaður er sérstaklega fjárfrekur, og þess vegna er alveg sérstök ástæða til þess að reyna að draga úr, ef kostur er, fjármagnsþörf hans með því að tileinka sér nýjungar á þessu sviði, og ég hef þá trú, að ef unnið er skipulega að þessu, þá kunni að vera hægt einmitt að draga sérstaklega úr fjárþörf hans með þessum hætti, og þess vegna er það, sem ég flyt þessa till., að ég tel þörf á því, að þarna verði úr bætt.

Ég vil því mælast til þess, hæstv. forseti, að þessari till. verði vísað til fjvn. og umr. frestað.