27.10.1961
Sameinað þing: 9. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í D-deild Alþingistíðinda. (3664)

301. mál, hækkun framfærsluvísitölu

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið hér. Ég býst við, að það megi átta sig betur á þeim með því að fá þær til yfirlesturs, því að hér er um margar tölur að ræða og hlaupið þar úr einu í annað. Hins vegar vil ég strax vekja athygli á því í sambandi við þetta mál, að upplýst er, að heildarhækkunin á vísitölunni muni nú verða um 14 stig eða þó öllu heldur um 15 stig frá því í júnímánuði, að mér skilst, miðað við það, sem ég miðaði mína fsp, við. Af þessari hækkun, 14 stigum, telst vegna kauphækkana vera um að ræða beinlínis 3.9 stig, eða eins og hæstv. ráðh. sagði 5.1 stig, en þar af 1.2 stig, sem eru vegna sérstakrar vörudreifingar. En hins vegar er um að ræða beina hækkun af völdum gengislækkunarinnar á vísitölunni, sem nemur 6.1 stig. Það. sem mér þykir þó athyglisverðast í þessu, er, um hvað mikla hækkun er að ræða á vísitölunni vegna annarra verðlagsbreytinga, sem leyfðar hafa verið. En þar skildist mér, að um væri að ræða 3.6 stiga hækkun á vísitölunni vegna annarra verðlagsbreytinga, sem samþykktar hafa verið og ekki koma beinlínis við, hvorki kauphækkunum né gengislækkuninni sem slíkri.

Ég þakka sem sagt hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið hér, og vænti þess, að mér gefist kostur á að athuga þessar upplýsingar betur en hægt er að átta sig á þeim við snöggan yfirlestur.