08.11.1961
Sameinað þing: 13. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í D-deild Alþingistíðinda. (3670)

49. mál, öryggisráðstafanir á leiðinni Reykjavík - Hafnarfjörður

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Í tilefni af þeirri þál., sem samþykkt var á síðasta Alþingi, var vegamálastjóra skrifað og hann beðinn að gera athugun á þessu, eftir því sem föng væru á. En tími hefur verið naumur, verkfræðingar fáir, og þess vegna er þessari athugun ekki lokið, enda þarf líka fleira að koma til, til þess að hægt sé að gera fullnaðarathugun á þessu, t.d. það að gera fullkomið skipulag um Kópavog og á þessu svæði. En í tilefni af þessum athugunum hefur vegamálastjóri sent frá sér svo hljóðandi greinargerð, með leyfi hæstv. forseta:

„Í þingsályktun þessari er beinlínis tekið fram, að þær úrbætur, sem gera skuli, eigi að miðast við lagningu tvöfaldrar akbrautar, þ.e. tvöfaldrar akbrautar til viðbótar þeim tveim akbrautum, sem fyrir eru. Er það ærið verkefni, þótt ekki væri tekið fyrir nema sá hluti vegarins, sem ríkið sér nú algerlega um viðhald á, þ.e. frá hitaveitustokk á Öskjuhlíð að frystihúsinu Frost norðan við Hafnarfjörð, en þetta eru alls 7.3 km. Tæplega kemur þó til greina tvöföld akbraut í hvora átt lengra en að Álftanesvegamótum, en þar greinist vegurinn ofan við Hafnarfjörð frá vegi til Hafnarfjarðar, en við það styttist leiðin með tvöföldum akbrautum í 6.3 km. Með bréfi til rn., dags. 6. des. 1960, var sent samrit af grg. um ofangreinda þál. til fjvn., dags. 24. nóv. sama ár. Var þar á það bent, að umferðin á kaflanum Miklatorg—Fossvogslækur hafi á s.l. ári verið orðin yfir 10 þús. bifreiðar á dag, en um helmingur þessarar umferðar fer áfram suður fyrir Kópavog og um Kópavogsbrú, eða um 5 þús. bifreiðar á dag. Umferð um Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur hefur aukizt mjög hratt á undanförnum árum, eins og sjá má á eftirfarandi: 1955 var umferðin um Fossvogslæk 5125 bifreiðar, 1960 10 630 bifreiðar og áætlað 1965 16 000 bifreiðar. Um Kópavogslæk var umferðin 1955 2600 bifreiðar, 1960 5250 bifreiðar og áætlað 1965 80 000 bifreiðar. Um Kapelluhraun var umferðin 1955 730 bifreiðar, 1960 1055 og áætlað 1965 1500 bifreiðar. Er þá gert ráð fyrir því, að aukning byggðar í Kópavogskaupstað og Garðahreppi verði svipuð á næstu fimm árum og verið hefur. Aukist byggðin hraðar, mun umferðin að sjáifsögðu aukast að sama skapi, þar sem flest það fólk, sem bætist við í þessum byggðarlögum, stundar atvinnu í Reykjavík eða Hafnarfirði.

Þar sem vegur með einni akbraut í hvora átt annar ekki með góðu móti meira en 10 þús. bifreiðum á dag, er ljóst, að tvöfaldar akbrautir í hvora átt þurfa að vera komnar frá Miklatorgi að Kópavogslæk 1965 og fljótt þar á eftir, a.m.k. fyrir 1970, alveg að Álftanesvegamótum. Kaflar þeir, sem byggja þarf á tvöfaldar akbrautir, eru eins og hér segir:

Fyrsti kafli Miklatorg—hitaveitustokkur, áætlað 1961—1965, það er 1.05 km, og er gert ráð fyrir, að Reykjavíkurbær geri þetta. Annar kafli, hitaveitustokkur að Fossvogi, áætluð framkvæmd 1961—1965 1.55 km. Þriðji kafli, Fossvogslækur–Kópavogslækur, einnig áætlað að framkvæma 1961—1965, 1.65 km. Og fjórði kafli Kópavogslækur–Álftanesvegamót 1965–1970, 3.10 km. Þetta eru samtals 6.3 km, sem ríkið ætti að sjá fyrir, en 1.05 km, sem kæmu beint á Reykjavíkurbæ.

Samkvæmt þeim áætlunum, sem nú eru til hjá Reykjavíkurbæ um aðalumferðaræðar í bæjarfélaginu, þá mun ekki gert ráð fyrir því, að Reykjanesbraut verði byggð með tvöföldum akbrautum frá Miklatorgi og suður í Fossvog, en hins vegar gert ráð fyrir því, að Kringlumýrarbraut hafi tvöfaldar akbrautir og taki við miklu af umferð um Reykjanesbraut úr Fossvogi á Miklubraut og yfir á núverandi Suðurlandsveg. Enn er ekkert afráðið um það, hvernig Kringlumýrarbraut tengist við Reykjanesbraut, og verður tæpast fyrr en gengið hefur verið frá skipulagi á þessu svæði, en það verður, eins og áður er getið, fyrst á árinu 1962. Ég tel ólíklegt, að framkvæmdum við Kringlumýrarbraut og Miklubraut verði það langt komið, að hægt verði að hleypa á þær teljandi umferð af Reykjanesbraut fyrr en á árunum 1963—1964 eða jafnvel síðar.

Þriðji kaflinn, Fossvogslækur–Kópavogslækur: Á skipulagsuppdrætti þeim, sem nú er byggt eftir í Kópavogskaupstað, er gert ráð fyrir fjórum akbrautum á Reykjanesbraut í Kópavogi, en jafnframt nokkurri breytingu á legu núverandi akbrauta norðan í Kópavogshálsi. Þessi skipulagsuppdráttur hefur þó ekki verið staðfestur, og komið hefur til orða að breyta honum allverulega á Kópavogshálsi eða jafnvel efna til samkeppni um skipulag á því svæði. Er þá að sjálfsögðu ekki auðið að hefja lagningu nýrra akbrauta við Reykjanesbraut, fyrr en því verki er lokið. Virðist því eins og er ekki auðgert að hefja framkvæmdir á lagningu nýrra akbrauta á þessu svæði.

Kaflinn Kópavogslækur—Álftanesvegamót: Á þessu svæði hefur einnig verið gert ráð fyrir fjórum akbrautum á skipulagstillögum, sem þó hafa ekki verið staðfestar. Eins og er tel ég ekki, að veruleg vandkvæði væru á því að byrja undirbúning framkvæmda á þessum kafla af þeim ástæðum. En að mínu áliti ætti ekki að þurfa að byggja hér fjórar akbrautir umferðarinnar vegna fyrr en 1965.

Af framangreindu er ljóst, að á þeim hlutum Reykjanesbrautar eða kafla I–III, sem nauðsyn ber til að leggja á fjórar akbrautir, er af skipulagsástæðum ekki unnt að hefja undirbúning framkvæmda alveg á næstunni. Hins vegar er án efa hægt að gera ýmsar bráðabirgðaráðstafanir á núverandi vegi til þess að draga úr slysahættu og þá einkum að tryggja betur en nú er öryggi gangandi fólks. Á þetta ekki hvað sízt við um kafla III, en mikil umferð gangandi fólki og barna er yfir veginn á Kópavogshæð. Hafa komið fram ákveðnar raddir í Kópavogskaupstað um það, að byggja þurfi jarðgöng undir veginn fyrir gangandi umferð og sérstaklega umferð skólabarna. Slíkt er að sjálfsögðu mjög kostnaðarsöm framkvæmd og tæpast í það leggjandi, nema slíkt mannvirki geti síðar meir fallið inn í framtíðarskipulag umferðar á þessu svæði. Þyrfti þá án efa að girða af veginn að mestu í Kópavogi, til þess að tryggja það, að slík göng yrðu notuð. Einnig þyrfti að fjarlægja þá starfsemi frá veginum á Kópavogshæð, sem ekki á þar beinlínis heima, svo sem leigubifreiðastæði og benzínstöðvar. Einnig kæmi til mála að láta setja uppi á hæðinni sérstök umferðarljós fyrir gangandi fólk, og yrði það án efa margfalt kostnaðarminna en bygging jarðganga undir veginn. Það má einnig benda á það, að ástæða væri til að breikka núverandi brýr á Fossvogslæk, Kópavogslæk og Hraunsholtslæk, svo að gangandi fólk geti verið þar óhult, og jafnframt þyrfti að ganga frá gangstígum meðfram veginum, bæði í Kópavogi, Silfurtúni og einnig í Fossvogi.

Með tilvísun til þess, er að framan greinir, virðist mér ekki auðgert að hefja nú þegar vinnu við áætlanir um lagningu tveggja nýrra akbrauta á kafla I—III, en hins vegar vildi ég leggja til, að athugað yrði vandlega, hvaða úrbætur til bráðabirgða gætu aukið á umferðaröryggi yfir Reykjanesbraut frá því, sem nú er, og reyna jafnframt að láta hraða þeim athugunum á skipulagi, sem gera verður, áður en endanlegar áætlanir er hægt að gera um lagningu tveggja nýrra akbrauta á ofangreindum vegaköflum:

Af þessari skýrslu er ljóst, að ekki er auðvelt að framkvæma fljótt það, sem í þál. felst. En eigi að síður ber að athuga vandlega úrbætur til bráðabirgða, sem miða að því að auka umferðaröryggi um Reykjanesbraut, og jafnframt að hafa til athugunar að hraða skipulagi, sem gera verður í Kópavogi, áður en unnið verður að frambúðaröryggi á þessum stað. Vegamálastjóri hefur lofað því að gera þessar athuganir svo fljótt sem auðið verður, en það hefur tafizt af eðlilegum ástæðum, þar sem hann hefur nú um sinn ekki nema lítinn vinnukraft til þess að framkvæma þetta. En sem sagt, hann hefur lofað að gera það svo fljótt sem auðið verður.