08.11.1961
Sameinað þing: 13. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í D-deild Alþingistíðinda. (3671)

49. mál, öryggisráðstafanir á leiðinni Reykjavík - Hafnarfjörður

Fyrirspyrjandi (Sveinn S. Einarsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgmrh. fyrir þau greinargóðu svör, sem hann hefur hér gefið við fsp. minni, og það er ljóst af þeim, að það eru að sjálfsögðu verulegir praktískir örðugleikar á því að koma í framkvæmd endanlegri lausn þessa vandamáls, sem sé þeirri, að byggðar séu tvöfaldar akbrautir alla leiðina. En ég vil taka undir það og ég vil þakka þau orð ráðh., sem hann lét falla um það, að það yrði lögð megináherzla á að gera þær bráðabirgðaráðstafanir, sem í bili gætu bægt frá þeirri gífurlegu slysahættu, sem þarna er á vissum stöðum á veginum, bæði á brúnum, þar sem, eins og fram kom í ræðu hæstv. ráðh., er í rauninni enginn staður fyrir gangandi fólk, eins með því að merkja og leggja gangstéttir, þar sem gangandi umferð er mest, og svo koma vissulega til athugunar umferðarljós. Og ég vil benda á eitt atriði, sem kostar ekki mikið, en er mikið öryggisatriði, og það er að setja „eyjar“ á miðjum veginum, þar sem fólk þarf að ganga yfir, eins og t. d. uppi á há Kópavogshálsinum við biðskýlið, sem þar er. Þar stanza almenningsvagnar beggja vegna, en það er enginn hlutur, engin „eyja“ á veginum, sem skilur umferðina, sem þarna kemur frá báðum áttum. Bara þetta litla atriði, sem er tiltölulega kostnaðarlítið og fljótframkvæmt, mundi mjög auka öryggið. Eins þarf að sjálfsögðu að athuga aðrar ráðstafanir, svo sem jarðgöng eða brú. Ég er að vísu persónulega ekki mjög trúaður á, að þar fáist aukið öryggi í samræmi við þann kostnað, sem þessi mannvirki mundu hafa. Ég hygg, að „eyjar“ í umferðinni með t.d. hentugum blossaljósum og vel merktum gangbrautum og að sjálfsögðu ríku lögreglueftirliti, meðan verið er að kenna mönnum að virða þessar öryggisráðstafanir, — ég hygg, að það mundi geta borið mjög skjótan árangur til þess að bægja frá hættunni til bráðabirgða a.m.k.