22.11.1961
Sameinað þing: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í D-deild Alþingistíðinda. (3684)

80. mál, öryrkjamál

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Mér er þetta mál dálítið kunnugt, vegna þess að ég var í þessari milliþn., sem fjallaði um málefni öryrkjanna.

Ég vil rifja það upp núna, að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að mæla með því, að félagsskapur öryrkjanna, sem stofnaður hefur verið, og félagsskapur til stuðnings þeim verði efldur áfram og málum komið þannig fyrir, að allir öryrkjar gætu stuðzt við einhvern félagsskap. Nefndin lagði nokkuð mikla vinnu í að koma þessu svona fyrir, að félagsskapur öryrkja yrði skipulagður á þennan hátt, og ég held, að segja megi, að því sé mjög langt komið að brúa þau bil, sem í því voru, enn fremur að stofna allsherjarfélagsskap, öryrkjasamband, eins og frsm. fyrirspurnarinnar gat um.

Þegar nefndin hafði komizt að þeirri niðurstöðu að styðja þessa stefnu, var spurningin, hvort félagsskapurinn væri nógu sterkur fjárhagslega til að leysa af hendi eðlilegan stuðning við öryrkjana. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu, að það væri sæmilega fyrir þessu séð, nema í þeim tilfellum, sem fjallað er um í nál. Það þyrfti að auka það fjármagn, sem rynni til Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, og það þyrfti líka að auka stuðning við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Þess vegna voru lagðar fram tillögur af nefndarinnar hendi um þessi tvö atriði.

Ég vil mjög eindregið skora á hæstv. ríkisstj. annaðhvort að taka þessar tillögur óbreyttar, eins og þær liggja fyrir, eða þá að gera aðrar ráðstafanir, sem væru jafnþýðingarmiklar fyrir þessi félög, og gera það strax í vetur, en fara nú ekki að láta þetta bíða eftir nýrri allsherjarendurskoðun á þessum málum, þar sem slík endurskoðun hefur einmitt nýlega átt sér stað.

Hæstv. ráðherra talaði nokkuð í þá átt, þó að hann segði það ekki með þeim orðum, að það væri kannske nokkuð tætingslegt að hafa ýmis ákvæði í lögum um stuðning við mörg öryrkjafélög, gjald hér og gjald þar. En sannleikurinn er bara sá, að þó að þessi aðferð sýnist kannske ekki að öllu leyti skipuleg, er það þó staðreynd, að með þessu móti hefur meiri stuðningur komið við samtök öryrkja í landinu og handa öryrkjum en hægt hefði verið að fá fram með nokkru öðru móti. Ef það ætti að setja stuðning við öryrkjamál í eina fúlgu á fjárlög, þá mundi það verða ómynd samanborið við það þó, sem farið hefur til stuðnings þessum samtökum með þessari aðferð. Ég held því, að þó að benda megi á ýmsa galla á þessari aðferð, þá eigi að halda henni áfram, og ef frá henni væri horfið, þá mundi það verða til tjóns fyrir öryrkjastarfið.

Af þeim kynnum, sem ég fékk við að vinna í þessari milliþn., og eldri kynnum hika ég ekki við að segja, að mér finnst félagssamtökin, sem hafa unnið að málefnum öryrkjanna, hafa komið furðulega miklu í verk og létt alveg stórkostlega á ríkisvaldinu. Ég er alveg sannfærður um, að þessi mál hafa komizt inn í réttan farveg með því að hafa starfsemina á vegum þessara félaga, en ekki á vegum ríkisins.

Meginstefna mþn. varð sú, að lækningar skyldu vera á vegum ríkisins og þjálfun að vissu marki, en önnur starfsemi, eins og vinnustöðvar og alls konar önnur hjálp við öryrkjana að öðru leyti, á vegum félaganna. Þess vegna lagði nefndin mikla vinnu í að gera öryrkjafélagakerfið fullkomnara og átti þátt í að gera gleggri starfsskiptingu á milli félaga. Hún var dálítið óglögg áður. — Ég held, að þetta hafi batnað við afskipti nefndarinnar og góða samvinnu við félagssamtökin og sé allt á góðri leið, ef ríkisvaldið vildi halda áfram að styðja þessi samtök á svipaðan hátt og gert hefur verið og með þeim endurbótum, sem nefndin lagði til.

Ég vil því mjög eindregið skora á hæstv, ríkisstj. að salta ekki þessi mál og fara að bíða eftir nýrri endurskoðun, þar sem slík endurskoðun hefur einmitt alveg nýlega farið fram og glöggt álít liggur fyrir.