21.02.1962
Sameinað þing: 37. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í D-deild Alþingistíðinda. (3713)
148. mál, framkvæmdaáætlun til 5 ára
Eysteinn Jónsson:
Það voru fáein orð aðeins. — Það var fyrst út af því, sem hæstv. forsrh. sagði. Ég spurði, til hvaða stofnana hefði verið leitað um álit og tillögur varðandi áætlunina. Hæstv. ráðh. hafði ekki, sem varla var von, á takteinum upptalningu þeirra stofnana, en hann sagði, að það hefði verið sagt við þá, sem unnu að þessu, að þeir skyldu leita þangað, sem þeim sýndist. Þetta eru vafalaust fyrst og fremst þessir erlendu sérfræðingar, sem þarna voru kvaddir til. Ég vil mjög finna að því, ef þessi háttur hefur verið á hafður. Ég á bágt með að trúa því, að hann hafi verið á hafður, að útlendingum hafi verið sett það í sjálfsvald, til hvaða íslenzkra stofnana þeir leituðu um tillögur í sambandi við áætlunargerðina um íslenzka þjóðarbúskapinn á næstu árum. Um slíka handahófsaðferð væri náttúrlega hægt að hafa sterk orð. Ég tel alveg sjálfsagt, eins og hæstv. forsrh. tók fram, að þeir leituðu til þeirra ríkisstarfsmanna, sem standa fyrir stórum starfsgreinum, eins og vegamálastjóra o.fl., o.fl., en ég vil mjög finna að því, ef það hefur verið hafður sá háttur á að setja þessum útlendu mönnum í sjálfsvald, til hvaða stofnana að öðru leyti þeir leituðu, hverjir skyldu fá rétt til að koma fram með sín sjónarmið og sínar óskir um framkvæmdir á næstu árum. Enda hef ég dálitla hugmynd um, að mikils handahófs hafi gætt að þessu leyti. En ég fer ekki lengra út í það núna. Ég mundi nú vilja ráðleggja hæstv. ríkisstj., ef þessi háttur hefur verið á hafður, og að setja sig vel inn í, til hvaða stofnana hefur verið leitað, og gefa þeim stofnunum, sem kynnu að hafa orðið skágengnar að þessu leyti, kost á því að koma fram með sín sjónarmið, áður en málinu verður lengra haldið. Ég skil ekki í öðru en hæstv. ríkisstj. sé samþykk því, að í þessum efnum eigi að ríkja sem mest samræmi varðandi undirbúning málsins.
Hæstv. ráðh. sagði, að á þessu stigi hefðu þessi drög ekkert verið send út fyrir pollinn, og tek ég það gott og gilt, og rétt er það hjá hæstv. ráðh., að ýmsar áætlanir verður að senda í stofnanir erlendis til að vinna þeim málum fylgi, sem Ísland hefur áhuga fyrir þá og þá. En ég vildi leggja hina mestu áherzlu á, og það var þess vegna, sem ég bar þetta í tal, að áður en slíkar áætlanir eru sendar í önnur lönd eða valdamiklar stofnanir erlendis, þá sé búið að ganga að fullu frá þeim hjá þeim aðilum hér, sem með réttu eiga um þær að fjalla, og þar moð meina ég ríkisstj. og Alþingi, að ekki sé farið að flytja mál eða sjónarmið um íslenzkan þjóðarbúskap erlendis og afla stuðnings við þau, án þess að búið sé að ganga áður í gegnum þær stofnanir, sem með réttu móti eiga um þau efni að fjalla. Ég vil leggja aukna áherzlu á þetta.
Varðandi það, sem Alþýðublaðið sagði, hafði ég ekki tíma til að fletta blaðinu, áður en kom að mér að tala, en ég held ég fari ekki rangt með, að blaðið hafi sagt, að þetta væri þáttur úr framkvæmdaáætlun ríkisstj. Það er þá mikill misskilningur hjá mér, ef það er rangt. En það var víst ekki hægt að misskilja þetta, því að ég man eftir, að mér kom þetta ákaflega mikið á óvart. Hitt er sjálfsagt alveg rétt, sem Alþýðublaðsritstjórinn, hv. þm., sagði hér áðan, að þess hafi líka verið getið, að það væri úr Árbók landbúnaðarins. En ég kann satt að segja ekki við, að það sé verið að reyna að gera það að einhverri villu, sem ég sagði um þetta, því að ég veit, að það er rétt hjá mér, að þetta var sett upp í blaðinu eins og áætlun Stéttarsambandsins hefði verið tekin upp í framkvæmdaáætlunina og þarna því kominn liður úr henni. Það var ekki hægt að skilja það öðruvísi.
En eins og ég sagði, þá var ég ekki að finna að þessu, því að ég álit, að það ætti sem mest að birta af því, sem búið er að vinna til undirbúnings. En ég benti á þetta til rökstuðnings því, að Alþingi fengi nú áætlanirnar sem skýrslu.
Mér urðu það vonbrigði, að forsrh. sagði nokkurn veginn afdráttarlaust, að ríkisstjórnin treysti sér ekki til að leggja málið fyrir þetta þing. En ég held kannske, að hæstv. ráðh. hafi dálítið misskilið mig. Ég átti við, hvort hæstv. ríkisstj. treysti sér ekki til að leggja málið á því stigi, sem það er eða verður fljótlega, fyrir hv. Alþingi sem skýrslu. Ég átti ekki við, að ríkisstj. væri tilbúin að leggja fram drög að áætluninni sem frv. eða tillögur frá sinni hendi, heldur legði hana fram sem skýrslu.
Sannleikurinn er sá, að það er hægt að viðhafa í þessum stóru málum tvenns konar vinnubrögð. Önnur vinnubrögðin eru þau, eins og mér skilst að viðhöfð séu víða í þjóðþingum erlendis. Stærstu málin eru fyrst lögð fyrir sem skýrslur, — þannig hafa t.d. Norðmenn haft það með efnahagsbandalagsmálið, ef ég hef skilið rétt, - og þá án þess, að tillögur frá ríkisstj. fylgi með. Það er gert til þess, að þingin geti lagt í þessi mál einhverja vinnu, sem vit er í, og byggist á því, að þingmenn hafi tóm til þess að skoða málin. Verður þá líka meiri samvinna á milli þings og stjórnar að öllu leyti og miklu merkilegri vinna lögð fram í þinginu með þessu móti en ef hinn hátturinn er á hafður: að halda öllum skýrslum og upplýsingum í stjórnarráðunum og hjá hæstv. ríkisstj. og á hennar vegum, þangað til hún hefur alveg ákveðið, hvað hún ætlar sér að leggja til og setja í lög í einstökum atriðum. Ég skil vel, að þennan hátt verður að hafa á um margvisleg málefni. En sum málefni eru svo viðtæk og þýðingarmikil, að ég held, að það væri mjög hyggilegt að breyta um vinnuaðferð í þeim og taka upp þann hátt að leggja fram skýrslur á Alþingi, áður en málin eru komin á lokastig.
Ég vil biðja hæstv. forsrh. að athuga þetta sjónarmið, því að máske hefur það misskilizt, sem ég sagði áðan um þetta.