07.03.1962
Sameinað þing: 40. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í D-deild Alþingistíðinda. (3727)
163. mál, tónlistarfræðsla
Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Á þinginu 1959—60 kom hér fram till., sem hv. 6. þm. Norðurl. e. (MJ) var aðalflutningsmaður að, ásamt tveimur öðrum hv. þingmönnum, og fjallaði þessi þáltill. um tónlistarfræðslu, en hún hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að undirbúa löggjöf um tónlistarfræðslu, þar sem m.a. séu sett skýr ákvæði um aðild ríkisins að þessari fræðslu, hlutdeild ríkissjóðs í greiðslu kostnaðar við tónlistarskóla og hvaða skilyrði skólar þessir þurfi að uppfylla til að njóta ríkisstyrks:
Þessi tillaga var rædd hér í Sþ. og síðan skotið til fjvn. og var þar tekin fyrir og mælt einróma með því í fjvn., að hún væri samþykkt óbreytt, og var það loks gert í lok þingsins, 27. maí 1960, og eru senn tvö ár liðin, frá því að þessi till. var samþykkt. Og þar sem mér er kunnugt um, að mjög margir, sem fjalla um mál tónlistarskólanna, hafa áhuga á því, að þessi tillaga verði framkvæmd og eitthvað í því gert, sem þarna er farið fram á, þá vildi ég leyfa mér að bera fram þá fsp. til hæstv. ríkisstj., hvað liði framkvæmd hennar.