21.03.1962
Sameinað þing: 44. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í D-deild Alþingistíðinda. (3751)
306. mál, gjald af innflutnings- og gjaldeyrisleyfum
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þegar frv. um skipan gjaldeyris- og innflutningsmála var til umr. hér á hinu háa Alþ. vorið 1960, urðu um það nokkur orðaskipti milli hv. fyrirspyrjanda og mín, hver upphæð væntanlegs gjalds af leyfum skyldi vera. í frv. var gert ráð fyrir því, að heimilt væri að hafa upphæð leyfisgjaldsins 1%, eins og það hafði verið. Ég lýsti því hins vegar yfir í umr., að þegar reglugerð yrði sett um þetta mál, þá mundi það verða tekið til rækilegrar athugunar, hvert gjaldið þyrfti að vera, og ég vonaði, að það þyrfti ekki að vera nema 1/2%. En vegna þess að nauðsynlegt væri að gera nákvæma áætlun um þann kostnað, sem bankarnir þyrftu að leggja í, um leið og þeir tækju að sér störf innflutningsskrifstofunnar, þá teldi ég rétt að hafa heimildina í lögunum rúma og miða þá við sama hlutfall og gilt hafi um mörg undanfarin ár. En ég hét því hins vegar, að gjaldið skyldi ekki verða haft hærra en bráðnauðsynlegt væri til að standast sannanlegan kostnað bankanna af þessum störfum til viðbótar kostnaði við verðlagseftirlitið.
Eftir að þingi lauk, lét viðskmrn. gera nákvæma athugun á því í samstarfi við bankana, með hvaða starfsmannahaldi og öðrum kostnaði bankarnir gætu tekið störf innflutningsskrifstofunnar að sér. Það kom í ljós, að sú von mín, sem ég hafði látið í ljós hér á Alþingi, reyndist á rökum reist, að unnt væri að inna þessi störf af hendi fyrir aðeins 1/2 %. Reynslan á s.l, ári, sem er fyrsta heila árið, sem þessi skipun hefur verið í gildi, hefur staðfest þá von, sem ég lét hér í ljós, og þá áætlun, sem gerð var af viðskmrn. og gjaldeyrisbönkunum, að það er unnt að komast af með aðeins 1/2 % gjald í þessu sambandi. Að vísu er það svo, að það rétt aðeins dugir til að standa straum af kostnaði bankanna og verðlagseftirlitsins, en það er heldur engin ástæða til þess að hafa gjaldið hærra en bráðnauðsynlegt er til að standa straum af óhjákvæmilegum kostnaði. En eins og ég gat um áðan, þá hefur þessi skipulagsbreyting haft í för með sér, að sparnaður hins opinbera af breytingunni nemur 2.9 millj. kr. og sparnaður neytenda, þ.e. þeirra, sem kaupa hina innfluttu vöru, nemur 3.9 millj. kr., eða 1 millj. kr. meira. Ríkið hefur misst tekjur sem þessu svarar.
Að því er það snertir, sem hv. þm. sagði, að tölurnar um kostnað gjaldeyrisdeilda bankanna séu ekki sambærilegar, þá er mér vel kunnugt um, við hvað hv. þm. á í því sambandi. Ástæða þess, að ég gat ekki um þetta þegar í fyrra svari mínu, er sú, að það er ekki aðeins, að gjaldeyrisdeildirnar inni ekki af hendi öll þau störf, sem innflutningsskrifstofan innti áður af höndum, heldur vinna þær líka ný störf, önnur störf, sem bankarnir inntu áður af höndum. Þau störf, sem fluttust ekki í gjaldeyrisdeildir bankanna, heldur Framkvæmdabankann, eru skýrslugerð í sambandi við fjárfestingarmál. Seðlabankinn hefur engin störf tekið að sér, sem áður voru unnin í innflutningsskrifstofunni. Það var Framkvæmdabankinn, sem tók að sér skýrslugerð, öflun upplýsinga, úrvinnslu og birtingu skýrslna um fjárfestingarmál. Það er um að ræða einn starfsmann með nokkurri aðstoð, svo að hér er um tiltölulega smávægilegan kostnað að ræða. Hins vegar vinnur gjaldeyrisdeild bankanna nú nokkur störf, sem áður voru unnin í sambandi við gjaldeyrisafgreiðslu bankanna. Þau hafa nú flutzt í gjaldeyrisdeildina og eru talin með þeim kostnaði við hana, sem ég gat um áðan.
Ég hika ekki við að fullyrða, að þau störf, sem gjaldeyrisdeild bankanna tók að sér og létti af hinum almennu gjaldeyrisafgreiðslum gjaldeyrisbankanna, kosta meira en þau störf kostuðu, sem innflutningsskrifstofan vann áður í sambandi við fjárfestingarmál og flutzt hafa í Framkvæmdabankann. Ef þessi samanburður er ekki fullkomlega nákvæmur, þá hygg ég, að hann sé gjaldeyrisdeildum bankanna í hag, en ekki óhag.