28.03.1962
Sameinað þing: 46. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í D-deild Alþingistíðinda. (3757)

193. mál, lausn verkfræðingadeilunnar

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er ekki rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði, að ég hefði talið, að verkfræðingaskorturinn mundi ekki valda neinum baga. Það var einmitt það, sem ég sagði, að hann mundi valda nokkrum baga, en ekki þó verða til að hindra, að það væri unnt að framkvæma það, sem fyrirhugað væri á þessu ári. Það var þetta, sem ég sagði. Hv. þm. harmar það, að ekki hefur verið samið við verkfræðingana, og í því felst það þá, að hann harmar, að það hefur ekki verið gengið að þeim kröfum, sem þeir gerðu. En hverjar voru kröfurnar? Kröfurnar voru þær að fá 17 þús. kr. í mánaðarlaun fyrir byrjendur og 22 þús. kr. fyrir hina eldri á mánuði. Þetta er ágætt að fá upplýst, að formaður Alþýðusambands Íslands harmar, að það hefur ekki verið gengið að þeim kröfum, sem verkfræðingarnir gerðu á þessum grundvelli.

Svo vil ég aðeins mótmæla því, sem hv. þm. fullyrti, að vitanlega hafi verið samið um kröfurnar, fyllstu kröfur, þegar samið var um verk í ákvæðisvinnu. Ég vil leyfa mér að mótmæla því. Það var samið við verkfræðingana um nokkur atriði í ákvæðisvinnu, og það er ekki samningur, ef gengið er algerlega að kröfum annars aðilans. Ég geri ráð fyrir því, — vegna þess að það felst ekki í fsp. hv, þm., þá hef ég ekki kynat mér þetta nægilega vel, — en ég geri ráð fyrir því, að duglegir verkfræðingar geti haft meira en mánaðarkaup út úr þessari ákvæðisvinnu, ef þeir vinna vel, og ég geri ráð fyrir því, að samningarnir í ákvæðisvinnunni geti verið hagkvæmir fyrir báða aðila, bæði fyrir vinnuveitandann og verktakann, þótt ekki hafi verið gengið nálægt því að kröfunum, sem gerðar voru.