18.12.1961
Sameinað þing: 29. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (379)
1. mál, fjárlög 1962
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Fjárlög þau, sem nú er verið að ræða, eru nokkuð mikið á annan milljarð króna og þau hæstu, sem nokkru sinni hafa komið til umr. á hv. Alþingi. Margur mundi nú ætla að framlög ríkisins til opinberra framkvæmda mundu nema allháum upphæðum og miklu hærri upphæðum en verið hefur að undanförnu. En hið sorglega er, að staðreyndin er þveröfug. Til nýbyggingar þjóðvega er ekki einungis, að þær fjárhæðir, sem til þeirra eru ætlaðar, séu lægri hlutfallslega, miðað við fjárlögin sjálf, heldur og einnig tölulega lægri en á yfirstandandi ári, og mundu fáir trúa því.
Það er undarlegt viðreisnarástand í landi voru, og það byggist á því að hækka skattana á þegnunum, en jafnframt að minnka þjónustuna við þegna þjóðfélagsins. Þetta blasir alls staðar við, og sá hluti fólksins í landinu, sem venjulega hlýtur nafnið alþýða, er einna harðast úti í þessum efnum. Það kann að vera forsvaranlegt að skattleggja þjóðina, ef það er gert til nytsamlegra hluta, en þegar það er gert vegna eyðslu, þá er það ekki forsvaranlegt, eins og á sér stað og hefur átt sér stað í mjög ríkum mæli hjá hæstv. núv. ríkisstj.
Ég hef leyft mér að flytja hér nokkrar brtt. við fjárlögin ásamt hv. 3. þm. Vesturl., og þessar brtt. eru á þskj. 248, IV. liður.
Fyrst er Hvalfjarðarvegur. Til þessa vegar eru ætlaðar samkv. fjárlagafrv. nú 250 þús. kr. Aðaltillaga okkar er, að veittar verði 750 þús. til þessa vegar og varatillaga 550 þús. Sem kunnugt er, þá er Hvalfjarðarleiðin ein af aðalsamgönguæðum landsins til Vestur-, Norður- og Austurlands, og það gefur að skilja, hversu mikla þýðingu það hefur á sumrum og vetrum, að þessi vegur sé hlutverki sínu vaxinn. En við teljum, þm. Vesturl., flm. þessarar till., að svo sé ekki, eins og nú er, og því beri að hafa hraðan á að bæta úr því, sem brýnast er í þeim efnum, og vænti ég þess, að hv. þm. samþykki till. þessa.
Þá er 2. till. frá okkur undir IV. lið varðandi Fróðárhreppsveg eða Búlandshöfða. Eins og kunnugt er, komst þessi vegur í akfært samband á yfirstandandi ári. En til þess að hægt væri að gera það átak, varð að stofna til mikilla skulda, og þær eru flestar til skamms tíma og því útilokað að komast frá þeim málum sómasamlega nema fá töluvert fjármagn til þess á fjárlögum. Þess vegna höfum við nú flutt till. um, að Búlandshöfðavegurinn fái 500 þús. kr. að þessu sinni, en ef þm. finnst það of mikil rausn við þá samgöngubót, þá 300 þús. kr. til vara. Vegurinn má heita fullger, og hann tengir tvö mjög stór kauptún á Snæfellsnesi, þar sem annars vegar er Ólafsvík, en hins vegar Grafarnes. En skammt undan landi frá þessum kauptúnum eru hin aflasælustu fiskimið, sem eru til í landi voru. Það gefur því að skilja, að þessi samgöngubót milli þessara tveggja kauptúna er geysiþýðingarmikil, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, að á s.l. ári var brúaður fyrsti fjörður á Íslandi, Hraunfjörður, þ.e. brúin yfir Mjósund, sem bætir mikið úr samgöngubótum Grafarness eða Grundfirðinga við Stykkishólm og yfirleitt við umheiminn.
Þá vil ég örlítið minnast á það, að við vorum að hugsa um að flytja tillögu um fjárveitingu til Ólafsvíkurennis, en gerum það ekki, vegna þess að það eru líkur til, að það verði byrjað að vinna í þeim vegi nú á næsta ári, þótt ekki verði hækkaðar fjárveitingar til þess vegar. Þarna er um allmikla samgöngubót að ræða milli Hellissands annars vegar og Ólafsvíkur hins vegar, og tekur mörg ár að gera þann veg, þar sem við þetta er nokkurra milljóna króna kostnaður. En þegar sá vegur kemst á, er búið að leysa samgöngumálin á Snæfellsnesi á nokkuð viðunandi hátt og tengja saman þessi sjávarkauptún þar, sem hvert um sig liggur mjög nærri góðum fiskimiðum. Á s.l. ári mun aflamagnið, sem hefur borizt á land á Snæfellsnesi hjá fjórum sjávarkauptúnum þar, nema sem næst 120 millj. kr. að útflutningsverðmæti. Ég ætla því, að hv. þm. sé nokkuð ljóst, að á Snæfellsnesi er verið að ráðast í framkvæmdir á sjó og landi fyrir þá aðila, sem eru fullkomlega þess verðir, sem til þeirra er lagt. En betur þarf að gera við þessa staði og endurbæta aðstöðu þeirra til þess að nýta sjávaraflann umfram það, sem þeir hafa möguleika til nú.
Þá flytjum við einnig till., sem er 4. undirliður undir rómv. IV á þskj. 248, það er Heydalsvegur. Við leggjum til, að fjárveitingin til Heydalsvegar sé 650 þús. — og varatillaga 450 þús. En sem kunnugt er, þá er Heydalur snjóléttasta leiðin á milli Breiðafjarðar annars vegar og Faxaflóa hins vegar. Þeir fjallvegir, sem nú eru lagðir yfir þann fjallgarð, sem er þarna á milli, eru allir mun hærri en Heydalur, hann er þeirra lægstur og er hæstur 180 m yfir sjávarmál. Það gefur því auga leið, að þegar sá vegur kemst á, þá losnar ríkissjóður við gífurlega mikil útgjöld í snjómokstri, sem hann hefur orðið að inna af hendi oft og mörgum sinnum á undanförnum árum, og það er því stórsparnaður að geta hraðað þessari vegalagningu allmikið frá því, sem verið hefur.
Þá er það 3. till., Vesturlandsvegur, Gilsfjarðarvegur. Sem kunnugt er, liggur vegur þessi í fjöruborðinu, og eru vegfarendur því háðir því, hvernig stendur á sjó, þegar leið þeirra liggur þarna um. Á s.l. sumri var gert stórt átak til að reyna að bæta úr í þessum efnum. Það var undirbyggður vegurinn á svokallaðri Holtahlíð, inn undir Ólafsdal. En það á eftir að setja nokkur ræsi og bera ofan í þennan veg, og er sá kostnaður talinn munu nema 375 þús. kr., en til þess að hægt væri að undirbyggja veginn á s.l. sumri, var stofnað til töluverðra skulda, og sú fjárveiting, sem nú stendur í fjárlagafrv., hrekkur engan veginn til að greiða þær skuldir, sem á þessum vegi hvíla. Þess vegna höfum við lagt til, að fjárveitingar þessar yrðu hækkaðar úr 225 þús. kr. í 725 þús. kr. — og til vara 525 þús. Ef þessi fjárveiting fæst nú, þá eru líkur til þess, að hægt verði á næsta sumri að ljúka við þennan veg, en Vestfirðingum hefur fundizt þetta vera mjög þýðingarmikil samgöngubót fyrir þá, þar sem þeirra leiðir liggja oftast nær og a.m.k. yfir sumarmánuðina allmikið suður á bóginn, og Austur-Barðstrendingar hafa lagt alveg sérstakt kapp á það, að þessi vegur, þar sem Gilsfjörður er verstur, komist á hið allra fyrsta, og hafa þeir sjálfir lagt töluvert af mörkum á þessu ári, til þess að svo mætti verða. Það er því mjög slæmt að geta ekki komið á móts við þá áhugamenn nú og fulllokið þessu verki á næsta sumri. En ef þessi till. okkar verður ekki samþ., eru litlar líkur til þess, að svo verði. Umferð til Vestfjarða hefur vaxið mjög ört hin síðari ár, ekki sízt eftir að hin nýja leið til Ísafjarðarkaupstaðar og Ísafjarðarsýslna opnaðist nú fyrir skömmu, og það var mjög réttilega mælt hjá hv. þingmanni, varaþm. Sjálfstfl., Sigurði Bjarnasyni, þegar hann sagði um Gilsfjörðinn, að það yrði að vinda bráðan bug að því að tryggja aðalsamgönguæðina til Vestfjarða hið allra fyrsta. Og ég vænti þess, að a.m.k. hv. þingmenn Vestfirðinga sýni þessu máli svo mikinn skilning, að tillagan nái fram að ganga, því að það er ekki svo lítið, sem Vestfirðingar eiga undir þessari samgöngubót komið.
Ég er sannfærður um það, að þingmenn skilja þýðingu þess, hve öruggt samgöngukerfi er þjóðinni nauðsynlegt og hve þessir vegir eru þýðingarmiklir eins og Hvalfjarðarvegur, Búlandshöfðavegur, Heydalsvegur og góður vegur í Gilsfirði, og ég vænti þess, að þeir sýni skilning á þessum málum. Þetta eru svo almennar tillögur, að það þyrfti enginn þeirra að skammast sín fyrir það að ljá þeim atkvæði sitt hér á hv. Alþingi, og mundu þeir verða meiri menn eftir en áður.
Þá er það I. till. á þskj. 248, sem við höfum flutt, hv. 3. þm. Vesturl. ásamt mér, og er hún um löggæzlu í Ólafsvík yfir vetrarvertíðina. Nú kann það að vera, að Ólafsvíkurbúum sé ætluð fjárhæð í 11. gr. fjárlaga, þar sem stendur: annar lögreglukostnaður. En það er okkur ekki kunnugt um. Og ef svo er, að Ólafsvík sé ætlað fjármagn af þeirri upphæð, þá vænti ég þess, að hv. formaður fjvn. og frsm. eða hæstv. fjmrh. eða dómsmálaráðherra geti upplýst það mál hér, og er þá tillaga sú. sem við flytjum, óþörf, og mundum við þá taka hana til baka. En að öðrum kosti vænti ég þess, að þingmenn ljái henni atkvæði sitt.
Það er að sjálfsögðu margt annað, sem mætti ræða við þessa fjárlagaafgreiðslu, en það ætla ég ekki að gera, vegna þess að það hefur verið gert mjög vel af mörgum mínum samflokksmönnum, og get ég því látið staðar numið. En ég get þó ekki látið hjá líða að minnast á 18. gr. fjárlaga, vegna þess að mér finnst, eftir því sem hv. frsm. meiri hl. fjvn. upplýsti hér í dag, að það sé meira og meira brugðið út af því prinsipi, sem sú fjárlagagrein byggðist upphaflega á, og ég tel, að það sé nauðsynlegt, ekki af því, að ég telji neitt eftir, sem þarna er greitt, heldur hitt, að nauðsynlegt sé vegna annarra aðila í þjóðfélaginu, sem hafa ekki möguleika á að fá neitt af 18. gr., að þessi grein verði endurskoðuð með hliðsjón af því, sem aðrir sambærilegir þegnar í landinu fá frá Tryggingastofnun ríkisins og öðrum lífeyrissjóðum. Ef réttlæti á að ríkja hjá Tryggingastofnun ríkisins, tel ég brýna nauðsyn, að þetta mál sé endurskoðað í samráði við hana og þess gætt, að mikils misræmis gæti ekki í þeim efnum hjá þeim, sem á annað borð nauðsynlega þurfa á fjárhagslegri stoð ríkisins að halda.
Ég vænti svo þess, að hv. þingmenn ljái tillögum okkar atkvæði sitt og að við getum að þessu sinni stutt að aðalsamgöngukerfinu í Vesturlands- og Vestfjarðakjördæmi á myndarlegan hátt og miklu myndarlegri hátt en við höfum haft tækifæri til áður.