10.10.1961
Sameinað þing: 0. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (4)
Varamenn taka þingsæti
Aldursforseti (GíslJ):
Alþingi hefur borizt bréf frá Gunnari Gíslasyni alþm.:
„Glaumbæ, 7. okt. 1961.
Vegna anna á ég óhægt með að mæta til þings fyrstu daga þess og óska þess, að fyrsti varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Jón Pálmason, taki sæti mitt á Alþingi um sinn.
Virðingarfyllst,
Gunnar Gíslason.
Til forseta sameinaðs þings, Reykjavík.“
Þá hefur einnig borizt bréf frá formanni þingflokks Alþýðuflokksins:
„Reykjavík, 10. okt. 1961.
Þar sem Birgir Finnsson, 5. þm. Vestf., er fulltrúi Íslands á allsherjarþingi Hinna sameinuðu þjóða og getur ekki setið á þingi næstu vikur, er hér með samkvæmt beiðni hans farið fram á, að varamaður, Hjörtur Hjálmarsson skólastjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.
Emil Jónsson,
form. þingflokks Alþýðuflokksins.
Til forseta sameinaðs þings.“
Þá hefur enn fremur borizt hér skeyti frá Jónasi Péturssyni:
„Skrifstofa Alþingis,
Reykjavík.
Vegna ólokinna starfa við tilraunabúið á Skriðuklaustri get ég ekki mætt á Alþingi nú og óska, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Einar Sigurðsson, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.
Jónas Pétursson.“
Að síðustu er svo bréf hér frá framkvæmdastjóra Sjálfstfl.:
„Reykjavík, 9. okt. 1961.
Samkvæmt beiðni Ólafs Thors, 1. þm. Reykjaneskjördæmis, sem að læknisráði hefur tekið sér frí frá störfum næstu mánuði, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Sveinn S. Einarsson verkfræðingur, taki á meðan sæti hans á Alþingi.
Virðingarfyllst,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Til forseta sameinaðs þings.“
Þessu bréfi fylgir og kjörbréf herra verkfræðings Sveins S. Einarssonar, og ber því að skipa í kjördeildir, þar sem kjörbréf hans hefur ekki verið rannsakað. Kjörbréf allra hinna þriggja hafa verið rannsökuð áður, enda hafa þeir allir tekið sæti á þingi.
Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Matthías A. Mathiesen, 3. þm. Reykn., og Skúla Guðmundsson, 1. þm. Norðurl. v.
Rannsókn kjörbréfs.
Þessu næst skiptust þingmenn í kjördeildir, og urðu í
1. kjördeild:
AGl, AB, BGr, HH, BK, BGuðm, BP, EggÞ, FS, GeirG, GJÓh, HA, HermJ, JSk, JR, KGuðj, KK, MAM, SE, ÞÞ.
2. kjördeild:
AuA, BBen, BFB, EOl, EmJ, GíslJ, GÞG, HV, IngJ, IG, JA, JÞ, EinS, MJ, ÖB, ÓlJ, SvE, RH, SA, SÓÓ.
3. kjördeild:
AGb, ÁÞ, BjörnJ, EðS, EI, EystJ, FRV, GíslG, GuðlG, GÍG, JPálm, GTh, HS, JóhH, KJJ, LJós, PÞ, PS, SI, SkG.
Fyrir lá að rannsaka kjörbréf Sveins S. Einarssonar, 1. (vara)þm. Reykn., og fékk 3. kjördeild bréfið til athugunar, svo sem þingsköp mæla fyrir.
Var nú gert fundarhlé, er kjördeildin gekk út úr þingsalnum til starfa sinna, en að rannsókn kjörbréfsins lokinni var fundinum fram haldið.