08.02.1962
Efri deild: 41. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

138. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér er til umr., var í dag samþ. í hv. Nd. Það er gamall gestur hér á Alþingi og öllum alþingismönnum kunnugt um efni þess og ástæðu fyrir því, að það er flutt. Í þeirri stuttu grg., sem frv. fylgir, er auk þess það tekið fram, sem segja þarf um málið, og sé ég ekki ástæðu til að bæta neinu við það. Ég vænti þess, að nú sem fyrr þyki það rétt meðferð málsins, að því sé ekki vísað til nefndar, og hygg ég einnig, að það sé venja við afgreiðslu sams konar máls á fyrri þingum að afgreiða það á þremur fundum í röð. Ég legg þess vegna til, að frv. verði samþ., ekki vísað til n., og tekið aftur til umr. að lokinni þessari umr. og afgreitt þannig.