12.12.1961
Sameinað þing: 20. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (417)
114. mál, fjáraukalög 1960
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Yfirskoðunarmenn hafa lokið endurskoðun á ríkisreikningnum fyrir 1960. Frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningnum hefur verið lagt fyrir hv. Ed. Alþingis og vísað til fjhn. þar. Þetta frv. til fjáraukalaga er samið að vanda eftir tillögum yfirskoðunarmanna, og legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjvn.