14.12.1961
Efri deild: 33. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (447)
36. mál, sveitarstjórnarkosningar
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég tel það vel farið, að félmrn. hefur beitt sér fyrir því að láta fara fram endurskoðun á lögum um sveitarstjórnarkosningar til samræmis við sveitarstjórnarlögin, sem sett voru á síðasta þingi. Og þetta frv., sem hér liggur fyrir, er þannig úr garði gert, að ég tel ekki ástæðu til að fara um það mörgum orðum. Það er aðeins eitt atriði, sem ég vil leyfa mér að vekja athygli á, áður en málið fer til nefndar.
Þegar sveitarstjórnarlögin voru sett á síðasta þingi, var nokkuð um það rætt hér í deildinni, hvaða reglur skyldi setja um kosningu varamanna í hreppsnefnd, þegar kosning er óhlutbundin. Og niðurstaðan varð sú, að í 20. gr. l. eru þessi ákvæði, með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar kosning er óbundin, skal kjósa jafnmarga varamenn og aðalmenn eru. Séu varamenn ekki kosnir sérkosningu, eftir að atkv. hafa verið talin við kosningu aðalmanna, þá er heimilt að láta kosninguna fara þannig fram, að kjósandi ritar á kjörseðil allt að tvöfalt fleiri nöfn en tala þeirra manna er, sem kjósa á sem aðalmenn. Rétt kjörnir aðalmenn eru þeir, sem hljóta flest atkvæði. Þeir, sem hlotið hafa flest atkvæði næst á eftir aðalmönnum, eru rétt kjörnir varamenn í þeirri röð, sem atkvæðatölur segja til um.“
Samkvæmt þessum ákvæðum er veitt heimild til þess að velja um tvær aðferðir, þegar kosnir eru varamenn og kosning er óhlutbundin. En mér virðist, að í þessu frv. sé eingöngu miðað við aðra regluna, sem til greina getur komið, því að í 12. gr. þessa frv., þar sem rætt er um talningu atkvæða, þegar kosning er óhlutbundin, segir svo í 2. mgr. gr.: „Þegar úrslit eru kunn um kosningu aðalmanna, byrjar kosning varamanna, og fer um hana á sama hátt.“ Ég hygg, að það sé ástæða til vegna samræmis milli þessara tvennra laga að koma því einnig að í þessu frv., hvernig með skuli fara, þegar hin reglan er viðhöfð, t.d. á þann hátt, að 2. mgr. 12, gr. verði orðuð þannig: „Þegar úrslit eru kunn um kosningu aðalmanna, byrjar kosning varamanna, og fer um hana á sama hátt, nema varamenn hafi verið kosnir jafnframt kosningu aðalmanna.“
Ég drep á þetta til athugunar fyrir þá nefnd, sem fær málið til meðferðar, og vænti þess, að hún gefi þessu gætur.