16.02.1962
Efri deild: 48. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

36. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Eftir að 2. umr. fór fram um þetta frv., hefur allshn. d. haft það til athugunar, og sú athugun hefur reynzt tafsamari en gert hafði verið ráð fyrir og er enn ekki lokið. Hins vegar geri ég mér vonir um, að henni kunni að geta orðið lokið í dag. Ég mælist því til þess, herra forseti, að umræðunni verði enn frestað og málið tekið út af dagskrá að þessu sinni.