16.11.1961
Efri deild: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (47)

74. mál, lækkun aðflutningsgjalda

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það var tekið fram við 1. umr. þessa máls, að það væri nauðsynlegt að hraða afgreiðslu þess sem mest. Eins og þá var skýrt frá og kunnugt er, hafa allar tollafgreiðslur á þeim vörum, sem frv. fjallar um, stöðvazt, frá því að frv. kom fram. Það er því í fullu samræmi við þær óskir, sem bornar hafa verið fram af ríkisstj. hálfu, sem hæstv. forseti telur ekki rétt né fært að fara nú að draga afgreiðslu þessa máls, og ég held, að hv. 1. þm. Vesturl. geti ekki átalið það með fullri sanngirni, þó að reynt sé að hraða máli eins og þessu, því að ég ætla, að þess séu ótalmörg fordæmi, að þegar svona stendur á, er talin brýn nauðsyn að hraða málum. Hins vegar hafa hv. deildarmenn fengið, eins og hæstv. forseti tók fram, allmikinn tíma til þess að kynna sér málið, og það hefur verið athugað rækilega í hv. fjhn., og þar hafa þeir þrír trúnaðarmenn eða embættismenn, sem sérstaklega hafa undirbúið frv., verið kvaddir til þess að gefa upplýsingar, og hef ég ekki heyrt annað en þeir hafi gefið greiðlega allar þær upplýsingar, sem um var beðið.

En í sambandi við þessa ósk hv. 1. þm. Vesturl. kemur það í rauninni í ljós, að sumir hv. þm. vilja taka tollskrármálin og tollamálin í heild inn í þetta frv. eða meðferð þess, sem er náttúrlega alger misskilningur. Tollskrármálin í heild eru til endurskoðunar, og sú löggjöf, hin endurskoðaða tollskrá, verður ekki tilbúin fyrr en næsta haust, en verður þá lögð fyrir þing, er það kemur saman haustið 1962. Hins vegar hafa nokkrar hátollavörur, sérstaklega vörur, sem mikið er um ólöglegan innflutning á, verið teknar inn í þetta frv. sem alveg sérstakt mál, sem þolir ekki bið. Það kemur fram, bæði hjá hv. 1. þm. Vesturl. og í þeim brtt., sem minni hlutar fjhn. hafa borið hér fram, að þeir vilja blanda öllum mögulegum tollamálum öðrum inn í þetta frv. T.d. hef ég skýrt frá því hér áður, að inn í frv. eru eingöngu teknar hátollavörur, þ.e.a.s. þær, sem eru með yfir 100% samanlögð heildargjöld nú. En í brtt. hv. minni hl. fjhn. eru teknar ýmsar vörur, sem er mjög mikill innflutningur á, þar sem heildargjöld eru ekki 100% eða yfir það, heldur allt niður í, að ég ætla, 20% og í lægsta flokki tæplega 15% heildargjöld. Hér er þá komið út á allt aðra braut, og ef ætti að fara að taka einhverjar slíkar vörur, sem eru ekki hærri gjöld en þetta á, erum við náttúrlega komnir út á hálan ís í sambandi við þetta, því að þá koma ekki aðeins tugir, heldur hundruð annarra vörutegunda til athugunar, sem vissulega væri æskilegt að lækka toll á. Ég skal geta þess t.d. út af þeim brtt., sem hér voru til atkvgr. áðan, á þskj. 109 og 111, frá hv. minni hlutum fjhn., að ef þær tillögur hefðu verið samþykktar, væri samkv. þeim um að ræða tekjutap fyrir ríkissjóð um 43 millj. kr., sem ætti þá að samþykkja hér án þess undirbúnings, sem málið að öðru leyti hefur fengið mánuðum saman. Um það tekjutap, sem frv. í heild er talið hafa í för með sér, hafa verið nefndar tölurnar milli 40 og 50 millj., en um leið er tekið fram, að það er gert ráð fyrir að vinna það tekjutap upp að mestu með auknum löglegum innflutningi þeirra vara. Nú eru margir stórir liðir í þessum brtt. á þskj. 109 og 111, sem hvorki eru hátollavörur í þeim skilningi, sem lagður er í það orð, né heldur eru fluttar ólöglega til landsins að neinu marki. Gagnstætt því, sem er um frv. sjálft, annars vegar tekjutap af því, hins vegar von um að vinna það tekjutap upp, þá mundu þessar brtt. hv. minni hl. í meginatriðum, vil ég segja, ekki í öllum greinum, þýða beint og öruggt tekjutap fyrir ríkissjóð, sem í heild er talið að nemi um 43 millj. kr.

Ég vildi aðeins benda hv. þm. á að blanda ekki almennum tollamálum eða almennri endurskoðun tollskrárinnar í þetta mál, sem hér liggur fyrir. En ég get tekið það skýrt fram, að öll þau atriði, sem hér hefur verið bent á í þessum umræðum og í brtt. minni hlutanna, verða að sjálfsögðu tekin til gagngerðrar athugunar í sambandi við hina almennu endurskoðun tollskrárinnar.