16.11.1961
Efri deild: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
74. mál, lækkun aðflutningsgjalda
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Sú till., sem hér er flutt, fer fram á, að ein tegund véla, hjóladráttarvélar, verði tollfrjáls og sama gildi um hluta til þeirra. Í sambandi við þetta er það aðallega tvennt, sem ég vildi taka fram. Heildaraðflutningsgjöld af þessum vélum og hlutum til þeirra munu vera nú kringum 34%. Í því frv., sem hér liggur fyrir, er hvergi lagt til að lækka gjöld á vörum, sem hafa heildaraðflutningsgjöld undir 100%. í öðru lagi: í sambandi við meðferð þessa máls hafa komið fram óskir frá iðnaðinum um það, að lækkaðir yrðu tollar á vélum til iðnaðar. Einnig hafa komið fram óskir frá forráðamönnum sjávarútvegsins um, að lækkaðir yrðu tollar á vélum til sjávarútvegsins og fiskiðnaðar. Nú er það svo, að á þessum vélum til iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar eru svipaðir tollar nú, þó einna lægstir á landbúnaðarvélum. Ég tel, að ef ætti að lækka tolla á einni tegund véla, til eins af þessum atvinnuvegum, þá verði ekki hjá því komizt að taka málið á miklu víðtækari grundvelli vegna jafnréttis og jafnræðis milli atvinnuveganna og láta þá einnig vélar til hinna atvinnuveganna fylgja með.
Þar sem fyrir liggur í fyrsta lagi, að frv. er eingöngu miðað við hátollavörur, en ekki vörur eins og þessar, í öðru lagi, að hér er ekki um að ræða atriði í frv., sem það að meginstofni er byggt upp á, að um verulega mikið magn af ólöglegum innflutningi sé að ræða, og auk þess, að hér er visst samræmi í tollalögum milli atvinnuveganna innbyrðis, þá tel ég ekki fært annað en að mæla gegn þessari tillögu, eins og sakir standa. Hins vegar vil ég ítreka það, sem ég hef áður sagt hér, að þessir tollar á vélum, bæði til landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar, verða teknir til alveg sérstakrar meðferðar við undirbúning þeirrar nýju tollskrár, sem marglýst hefur verið yfir að stendur nú yfir, og sú hin nýja tollskrá eða frv. að henni verður lagt fyrir haustþingið 1962. Af þessum ástæðum hlýt ég að leggja gegn því, að þessi till. verði samþykkt, enda náttúrlega er flm. fyllilega ljóst, að hér er verið að ræða um mál, sem stendur ekki í samhengi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, heldur hina almennu endurskoðun tollskrárinnar.