17.11.1961
Neðri deild: 20. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (60)
74. mál, lækkun aðflutningsgjalda
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það ber margt til þess, að ég mun ekki verða langorður um þetta mál. Í fyrsta lagi hefur það verið rætt í Ed. og þar á meðal af mínum flokksbræðrum og afstaðan til þess í raun og veru mótuð. Í annan stað stendur þannig á, að ég þarf að víkja af fundi eftir örstutta stund. Og loks er líka efni þess þannig, að það er engin ástæða til þess að hafa um það mjög langar umr. Ég vildi aðeins taka þetta fram núna:
Ég veit, að það vakti undrun margra 1960, þegar gengislækkunin var innleidd, að nær öllum þeim álögum, sem lögleiddar höfðu verið til þess að standa undir útflutningsuppbótum, var haldið í gildi, og átti fjármagnið að renna framvegis til ríkissjóðs, en uppbæturnar voru að sjálfsögðu felldar niður, því að gengislækkunin kom í staðinn. Þetta vakti undrun margra, að það skyldu ekki þá strax vera felld úr gildi þau gjöld, sem höfðu verið lögð á í því skyni að standa undir uppbótunum. Síðan var lögleiddur söluskattur á innflutninginn ofan á þetta, 8.8%, og loks almennur söluskattur innanlands í viðskiptum. Þá var gengið lækkað á nýjan leik nú í sumar. En allan þennan tíma var álögunum haldið. Það er ekki fyrr en nú með þessu frv., að hæstv. ríkisstj. leggur til að lækka tolla á þeim vörum, sem mest höfðu orðið fyrir barðinu á þessari þróun. Það hafði verið innleitt sérstakt gjald á hátollavörur, sem átti að renna í útflutningssjóðinn.
Það má því segja, að þetta frv. sé sízt fyrr fram komið en vænta mátti, en er þó að sjálfsögðu betra seint en aldrei. Mér skilst, að ef innflutningur á þessum vörum helzt óbreyttur, muni hér vera um tilslökun að ræða, sem nemur 45 millj. kr. En ríkistekjurnar munu hafa vaxið á þessum tveimur árum frá 1958 um hartnær 1000 millj. kr. Ég hef ekki tölurnar hjá mér, en það mun ekki vera langt undir 1000 millj., sem ríkistekjurnar hafa vaxið á þessum tveimur árum. Það er því ekki há fjárhæð, sem hér er gert ráð fyrir að sleppa af öllu því, sem bætzt hefur við tekjur ríkissjóðs undanfarið, sumpart fyrir nýjar álögur beinar og sumpart fyrir verðhækkunaráhrif gengislækkananna.
Hæstv. ráðh. gerir ráð fyrir, að tekjur ríkissjóðs muni í rauninni ekkert skerðast vegna þessarar lagasetningar, því að smygl muni minnka svo mikið og löglegur innflutningur aukast að sama skapi á þessum vörum. Um þetta skal ég ekkert segja fyrir fram. Það væri vonandi, að smygl færi minnkandi. En það er, held ég, hættulegt fyrir hæstv. ráðh. að treysta á, að ekki verði leitazt við að smygla eftir sem áður, þótt tollarnir séu lækkaðir á þá lund, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., því að gífurlegur hagnaður er auðvitað af smygli, ef það tekst, þótt þessi tollalækkun eigi sér stað. Ég held, að hæstv. ráðherra hljóti því að vera ljóst, að smyglvandamálið verður ekki leyst með þessu frv., enda heyri ég, að hann ráðgerir aukna tollgæzlu, og er ekki nema gott um það að segja.
Ég býst við, að að baki þessa frv. liggi tvennt fullt eins mikið og baráttan við smyglið. Annað, að hæstv. ríkisstj. og hæstv. ráðherra hafa séð, að verðlag á þessum vörum, sem hér er fjallað um, er komið langt úr öllu hófi, þar sem tvennar gengislækkanir eru komnar og hátollunum haldið, sem fóru í uppbæturnar. Hitt sé, að hæstv. ráðherra hafi komizt að þeirri niðurstöðu við nánari athugun, að ríkissjóður mundi geta séð af einhverju af tekjum sínum til tollalækkunar á móti þeim ógnarverðhækkunum, sem stafað hafa af gengislækkunum undanfarið og nú t.d. þeirri síðustu. Síðasta gengislækkunin færði ríkissjóði stórkostlegar tekjur, og ráðherrann mun hafa séð, að því er mér getur helzt skilizt, við nánari athugun, að það var hægt að sjá af einhverju af þessum nýju tekjum til þess að lækka tollana.
En þá kemur spurningin um, hvort ekki sé sjálfsagt, að sú tollalækkun, sem ríkissjóður þannig hefur ráð á að gera vegna þess, hversu gjöldum hefur verið haugað á nú nýlega, hvort sú tollalækkun á ekki að ná enn meira til almennings en hægt er með því að einskorða sig við þær vörur, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Það var meginstefnan í þeirri vinnu, sem mínir flokksbræður lögðu í þetta mál í Ed., að reyna að fá því til vegar komið, og munum við beina áhrifum okkar í sömu átt í þessari hv. d., jafnframt því sem við fylgjum frv.