19.03.1962
Efri deild: 66. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (640)
14. mál, heyrnleysingjaskóli
Frsm. (Auður Auðuns):
. Herra forseti. Menntmn. hefur rætt frv. það, sem hér liggur fyrir, á fundi. Það skal tekið fram og kemur reyndar fram í nál., að einn nefndarmanna, hv. 5. þm. Reykn. (FRV), var fjarverandi, þegar málið var rætt og afgreitt í nefndinni.
Frv. fjallar um heyrnleysingjaskóla, en sú löggjöf, sem nú er í gildi um kennslu heyrnar- og mállausra, er mjög úrelt orðin, og er þessu frv. ætlað að ráða bót á í þeim efnum. Ég skal ekki fjölyrða um efni frv. Fyrir því var gerð grein við 1. umr. málsins. Í neðri deild voru gerðar smávægilegar breytingar á frv. Það var aðallega breyting á nafni skólans og svo einnig á 10. gr. varðandi orlof kennara við skólann.
Menntmn. leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt.