22.03.1962
Neðri deild: 71. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (728)
132. mál, almenn hegningarlög
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Hæstv. forseti. Allshn. hefur farið yfir frv. það, sem hér er til umr„ en það er frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febr. 1940, sbr. lög nr. 22 3. maí 1955, um breyt. á þeim 1., og leggur nefndin til, að frv. verði samþ. óbreytt. Einn nm., hv. 4. þm. Sunnl., var ekki viðstaddur, þegar málið var afgreitt frá n. Frv. þetta hefur áður verið afgreitt óbreytt frá Ed.
Þær breytingar, sem í frv. Þessu er lagt til að gerðar verði á almennum hegningarlögum, varða aðallega skilorðsbundna frestun ákæru og atriði, sem snerta skilorðsdóma í opinberum málum, þ.e.a.s. að ákvörðunarvaldið um þessi atriði færist frá dómsmrh. til saksóknara ríkisins, en með l. um breyt. á l. um meðferð opinberra mála, sem samþykkt voru hér á Alþingi í fyrra, var ákæruvaldið í sakamálum flutt frá dómsmrh. í hendur saksóknara ríkisins. Þær breytingar, sem í frv. þessu er lagt til að gerðar verði á almennum hegningarlögum, leiðir af þeim breytingum, sem í fyrra voru gerðar á fyrrnefndum lögum, og samræma ákvæði hegningarlaga við þær.
Eins og ég áðan gat um, leggur allshn. til einróma, að frv. verði samþykkt óbreytt.