05.02.1962
Efri deild: 38. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (748)
131. mál, prentréttur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að ákæruvald í þeim málum, sem þar um ræðir, sé flutt frá dómsmrh. til saksóknara ríkisins, og er það í samræmi við þá breytingu, sem gerð var á síðasta Alþingi. Er nánast um leiðréttingu að ræða.
Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.