16.10.1961
Efri deild: 4. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

12. mál, skemmtanaskattsviðauki

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég er hv. þm. alveg sammála um, að sú breyting á skemmtanahaldi í veitingahúsum hér í höfuðstaðnum, sem orðið hefur á undanförnum árum, gefur tilefni til þess að endurskoða framkvæmd á innheimtu skemmtanaskatts. Og ég er alveg sammála efni ræðu hans hvað þetta snertir. Einmitt vegna þess, að ég er þessarar skoðunar, fól ég fyrir alllöngu, það var snemma á s.l. vori, embættismönnum í menntmrn. að eiga viðræður við samtök gistihúsaeigenda um þetta efni. Það, sem þeir í umboði mínu sögðu vera fyrirætlun menntmrn., sem fer með innheimtu skemmtanaskattsins, var, að það væri skoðun rn., að þau veitingahús, sem annaðhvort hefðu á boðstólum sérstök skemmtiatriði á þeim tíma, sem veitingahúsin eru venjulega opin, þ.e.a.s. frá kl. 9–11.30, eða létu dansa lengur en til kl. 11.30 að kvöldi, væru skemmtanaskattsskyld, jafnvel þó að þau seldu ekki sérstaklega aðgang að veitingasölum sínum. Þessum skilningi hefur verið mjög eindregið andmælt af hálfu samtaka veitingahúsaeigenda og jafnvel dregið í efa af þeirra hálfu, að gildandi lög um innheimtu skemmtanaskatts veiti ríkisvaldinu heimild til þess að innheimta skemmtanaskatt af veitingahúsunum, þegar um þess konar skemmtanahald er að ræða, sem ég lýsti, þ.e. annaðhvort sérstakar sýningar á venjulegum opnunartíma eða þá dans eftir kl. 11.30.

Vegna þess að í ljós hefur komið við lögfræðilega athugun á málinu, að réttur ríkisvaldsins til innheimtu slíks skemmtanaskatts að lögum óbreyttum kann að orka tvímælis, hef ég ekki viljað gera ráðstafanir til þess enn, að skemmtanaskattur verði innheimtur af þeim veitingahúsum, sem hér eiga hlut að máli. Og það er enn í athugun, hvort hægt er með einfaldri stjórnarvaldsákvörðun að kveða á um skemmtanaskattsskyldu þessara aðila eða hvort nauðsynlegt er að breyta lögunum til þess að gera innheimtu slíks skemmtanaskatts mögulega. Þetta mál er í athugun í stjórnarráðinu, og ég vona, að þeirri athugun geti orðið lokið innan skamms. En ég vil láta það koma skýrt fram, að ég er persónulega þeirrar skoðunar, að skemmtanaskatt eigi að greiða af þess konar samkomuhaldi, sem ég hef nefnt, jafnvel þótt ekki sé um sölu aðgangseyris að samkomunum að ræða, og er ég að þessu leyti algerlega sammála þeim ummælum hv. þm., sem fram komu í ræðu hans um þetta efni.

Ef sú lögfræðilega athugun, sem nú stendur yfir á málinu, leiðir til þess, að gildandi lög veiti menntmrn. og tollstjóra heimild til þess að heimta skemmtanaskatt af þeim veitingastöðum, sem hafa sýningaratriði á boðstólum á venjulegum opnunartíma eða láta dansa eftir kl. 11.30, mun menntmrn. ákveða, að þessi hús skuli greiða slíkan skemmtanaskatt. Ef lögfræðileg athugun leiðir til þess, að lagaheimild skorti til slíkrar ákvörðunar, mun ég beita mér fyrir því, að lagt verði fyrir Alþ. frv. til breyt. á skemmtanaskattslögunum, sem heimili slíka skattheimtu.

Í þessu sambandi vil ég líka láta það koma fram, að til athugunar eru og tvenns konar aðrar breytingar á skemmtanaskattslögunum. Annars vegar er það til athugunar að láta greiðsluskyldu ná til fleiri aðila en nú. Svo sem kunnugt er, er skemmtanaskattur nú ekki innheimtur á stöðum, sem hafa færri en 1500 íbúa. Þetta hefur valdið því, að skemmtanahald hefur flutzt úr bæjum, sem hafa fleiri en 1500 íbúa, í nálægar sveitir, þar sem þarf ekki að greiða skemmtanaskatt. Skemmtanahaldið hefur flutzt aðeins út fyrir kaupstaðar- eða bæjarmörkin á þeim stöðum, þar sem skemmtanaskatt er skylt að greiða, þótt skemmtanirnar séu aðallega sóttar af fólki, sem býr á stöðum, þar sem búa fleiri en 1500 manns, og því er um skemmtanaskattsskyldu að ræða. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um, hvort ríkisstj. leggur til breytingar á skemmtanaskattslögunum í samræmi við þetta, en það er til athugunar.

Þriðja breytingin, sem til athugunar er, er sú að undanþiggja leiksýningar Leikfélags Reykjavíkur greiðslu skemmtanaskatts til jafns við leiksýningar Þjóðleikhússins hér í Reykjavík. Ákvörðun um, hvort þetta verður gert, hefur ekki heldur verið tekin enn. En þetta vildi ég láta koma fram, fyrst skemmtanaskattinn almennt bar á góma hér við þessa umræðu.