24.10.1961
Efri deild: 8. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

12. mál, skemmtanaskattsviðauki

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Menntmn. hefur haft til meðferðar frv. það, sem hér liggur fyrir, og eins og álit n. á þskj. 48 ber með sér, hefur hún orðið sammála um að mæla með því, að það verði samþykkt óbreytt. Eins og nál. ber með sér, var einn hv. nm., hv. 5. þm. Reykn., Finnbogi R. Valdimarsson, fjarstaddur, þegar málið var afgreitt, þannig að hann er óbundinn af þessu nál.