26.02.1962
Efri deild: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (822)
156. mál, húsnæðismálastofnun o.fl.
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Út af síðustu orðum hv. 10. þm. Reykv. vil ég aðeins segja þetta: Mig undrar, að hann gagnrýnir það, að bornar skuli fram tillögur á Alþingi um 200 þús. kr. lánveitingu. Þá vil ég spyrja hann: Hvernig hefur hæstv. ríkisstj. tryggt, að menn fái þessi 150 þús. kr., sem gert er ráð fyrir í þessu frv.? Er það tryggt?
Hæstv. félmrh. gagnrýndi nokkur atriði í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v. um þær hækkanir, sem hefðu orðið á byggingarkostnaði á undanförnum árum, og taldi, að þar hefði verið mjög ýkt, slíkar hækkanir hefðu ekki átt sér stað sem hann nefndi dæmi um. Ég bjóst við, að hæstv. félmrh. hefði svo að segja í höndunum gögn yfir þetta, mér hefði fundizt viðeigandi a.m.k., að hann hefði þau. Það eru nefnilega gefin út Hagtíðindi, og þar eru gefnar upplýsingar um hækkun á byggingarkostnaði. Þessar skýrslur koma fjórum sinnum á ári. Vísitölur byggingarkostnaðar eru þar tilkynntar fjórum sinnum á ári fyrir hið svokallaða vísitöluhús. Þetta eru opinberar skýrslur, sem liggja fyrir öllum, og kostar ekki mikið að kynna sér það, hver hækkun kostnaðarins hefur orðið samkv. þessum skýrslum. Samkv. Hagtíðindum var byggingarvísitalan í okt. 1958, gamla vísitalan, 1298, en nýja vísitalan, sem þar er líka birt, 134. En í okt. 1961 eru hliðstæðar tölur 1628 í staðinn fyrir 1298, sem var 1958, og 168 í staðinn fyrir 134 fyrir 1958. Hækkunin er eftir mínum reikningi 25.4%. Ég get ekki séð, að það þurfi að fara mikið á milli mála, ef á að byggja á þessum tölum hagstofunnar. En hagstofan birtir líka í krónutölu, hvað rúmmetrinn hefur hækkað í verði, svo að þetta liggur líka fyrir þannig. Samkv. þessum skýrslum kostaði rúmmetrinn í okt. 1958 1249.12 kr., en í október 1961 1562.33 kr. Hækkunin á þessum þremur árum er samkv. þessum skýrslum 313.21 kr. á hvern rúmmetra. Nú ætti að vera auðvelt að sjá, hvað meðalíbúð hefur hækkað í verði. Mér reiknast, að íbúð, sem er ekki nema 300 m8 — og er það alls ekki algeng stærð, heldur fyrir neðan það, — hún muni hafa hækkað í verði um tæpar 94 þús. kr. Ef íbúðin er 320 m3, hefur hún hækkað um 100227 kr. Ef hún er 340 m3, hefur hún hækkað um 106 þús. og hér um bil 500 kr. Og ef hún er 360 m3, — og það þykir ekki lúxusíbúð hér eða a.m.k. lánar húsnæðismálastjórn út á slík hús, — sú íbúð hefur hækkað um tæpar 113 þús. kr. Ég vænti, að þetta verði leiðrétt, ef þetta er rangt, en þetta er reiknað út eftir tölum hagstofunnar. Það þarf því ekki einhverjar handahófsáætlanir um, að þetta muni ekki vera nema 80 þús. kr. hækkun eða eitthvað þessháttar. Það á að vera hægt að sjá þetta nokkurn veginn glöggt.
Ég ætla mér ekki að tala frekar á þessu stigi um þetta mál, en ég vil undirstrika það, sem hér hefur komið fram, reyndar hjá öllum hv. ræðumönnum, hversu gífurlega mikils virði það er, að bætt verði úr ástandinu í þessum málum, sérstaklega fyrir alla, sem hafa ekki fyrir nokkru komið sér upp íbúð, og hvar sem menn búa, hvort sem það er í sveit eða við sjó. Þetta er svo mikið mál fólksins og þá fyrst og fremst unga fólksins, að það skiptir ekki minna máli um þetta heldur en hvaða kaupgjald er hjá því. Það er bókstaflega óskiljanlegt, hvernig ungt fólk og efnalítið fer að ráðast út í að byggja sér hús, jafnvel þó að það eigi nokkra tugi þúsunda kr. í vasanum til að leggja í byggingu. Jafnvel þó að það eigi foreldra, sem gætu lagt fram nokkra tugi þús. kr., þá eru horfurnar svo ískyggilegar, að það er varla skiljanlegt, hvernig fólk getur farið út í þetta. Hvaðan á þetta fólk að fá peninga annars staðar en frá húsnæðismálastofnun ríkisins? Og ef menn fá bráðabirgðalán, sem allir reyna að afla sér á einhvern hátt, þá er það með þeim vöxtum, sem allir þekkja. Ef fólk er nú farið að taka 300 þús. kr. bráðabirgðalán til þess að koma sér upp íbúð og borgar af því 9½% í vexti, hvað fer mikið af árslaunum slíkra manna í þetta, aðeins í vextina? Ég ætla ekki að fara að reikna slíkt dæmi. Það er svo ískyggilegt, hvernig sem á það er litið. Ég tel það virðingarvert, svo langt sem það nær, þetta frv., og ég efast um, að nokkur andstaða komi fram gegn því. En mér finnst það ná svo stutt, að ég óttast alvarlega, að ráðagerðirnar um þessi 150 þús. kr. lán, verði bara ráðagerðir, og ef svo fer, þá horfir ískyggilega.