22.03.1962
Efri deild: 68. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (833)

156. mál, húsnæðismálastofnun o.fl.

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Hv. formaður heilbr.- og félmn. hefur tekið því vel og heitið því að athuga þá brtt. á milli umr., sem ég flyt, og mun ég því taka hana aftur hér með við þessa umr.

Hv. 10. þm. Reykv. gerði hér nokkrar athugasemdir við það, sem ég sagði áðan. Meðal annars reyndi hann að halda enn fram fyrri fullyrðingum um það, að byggingarkostnaður hefði ekki aukizt meira nú síðustu árin en á tímum vinstri stjórnarinnar. Hann hafði ósköp handhæga aðferð til þess að komast hjá því að bera saman annars vegar vinstristjórnartímabilið og hins vegar viðreisnarstjórnartímabilið. Það þurfti ekkert annað en að taka með árið 1959, þegar viðreisnin var ekki byrjuð, og deila svo með 3. Þá er hægt að fá út lægri tölu. En viðreisnin byrjaði ekki 1959, heldur 1960, og það er það, sem verið er að bera saman, og þá standast þær tölur, sem ég nefndi. Það er alveg rétt, byggingarkostnaður mun ekki hafa hækkað á árinu 1959, m.a. af því, að þá var við völd stjórn, sem lækkaði allt kaupgjald í landinu með lögum, og ég gæti trúað því, að hæstv. ríkisstj. gæti lækkað byggingarkostnaðinn núna með því að taka enn upp þá stefnu og lækka enn kaupgjald allt í landinu með lögum. Þá fengi hún þessa vísitölu niður. Það er því staðreynd, sem ég nefndi og hann reyndar vefengdi ekki: Byggingarkostnaðurinn hefur aukizt á tveimur árum, þannig að vísitalan hefur hækkað um 41 stig og 320 m3 íbúð hefur hækkað um 120 þús. kr. á tveimur árum. Hv. þm. sleppti líka að nefna vísitölu byggingarkostnaðar eins og hún er núna í febrúar, en því er ég ekki að finna að, því að það kann að vera, að hann hafi ekki vitað um hana, þar sem hún er ekki komin á prent, þó að búið sé að reikna hana út.

Þá nefndi hann fiskimálasjóð og taldi, að ég hefði borið saman byggingarsjóð og fiskimálasjóð og talið hliðstæður. Ekki gerði ég það. En ég nefndi sem dæmi, að í sjútvn. urðum við sammála um það — og harðastur fylgismaður þess var hv. 10. þm. Reykv. — að hækka hámarkslán úr fiskimálasjóði úr 150 þús. kr. í 400 þús. kr., þó að vitað sé, að sjóðurinn geti ekki lánað svo mikið almennt, af því hann hefur ekki peninga til þess, eins og sakir standa. En það skaðar engan, því að ef sjóðurinn fær möguleika til að gera það, þá kemur það að fullu gagni. Hvern skaðar það þá, þó að heimild sé til að lána 200 þús. kr. úr byggingarsjóði? Nei, það skaðar engan. Hv. þm. sagði: Það eru engar hagsbætur fyrir byggjendur, þó að hámarkið sé hækkað, ef þeir fá ekki peningana. Til hvers var þá 100 þús. kr. heimildin í lögunum, þó að menn fengju ekki nema 70 þús.? Hefur hún ekki komið nú að gagni? Nú eru menn farnir að fá 100 þús. kr. lán, án þess að búið sé að breyta lögunum enn. Þetta hefur því komið að gagni og getur komið að gagni, hvenær sem lánsstofnunin hefur fjárhagslega möguleika til þess að ná hámarkinu. Þess vegna sé ég engin rök gegn því, að hámarkið megi vera 200 þús. kr., eins og ég legg til, jafnvel þótt sjóðurinn hafi ekki eins og sakir standa peninga til að fullnægja öllum umsóknum.