03.04.1962
Neðri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

156. mál, húsnæðismálastofnun o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um breyt. á lögum nr. 42/1957, um húsnæðismálastofnun, byggingarsjóð ríkisins, sparnað til húsbygginga o.fl., hefur nú talsvert verið rætt hér á hv. Alþ., enda er hér um að ræða slíkt stórmál, að það er ofur eðlilegt, að talsverðar umr. verði um málið.

Það fer ekkert á milli mála, að það er brýn þörf á því að gera aðstöðu húsbyggjenda eða þeirra, sem eru að byggja sér íbúðarhús, betri en aðstaðan hefur verið nú um nokkurn tíma. Mér sýnist, að litlu fáist áorkað í þeim efnum samkv. þessu frv. Það vita allir, að það, sem sérstaklega stendur á í þeim efnum að gera aðstöðu manna til byggingar íbúðarhúsa sæmilega, er fé til útlánastarfsemi á vegum hins almenna íbúðalánakerfis ríkisins. Þar hefur um langan tíma skort stórkostlega mikið fé, og því hefur ekki verið hægt að sinna nema litlum hluta af þeim umsóknum, sem borizt hafa, og nauðsynlegt hefur reynzt að kurla lánin svo smátt, að í mjög mörgum tilfellum hafa þessi lán orðið að sáralitlum notum fyrri húsbyggjendur. Ég held því, að það sé ekki hægt fyrir hv. Alþ. að afgreiða þetta frv. um breytingar á húsnæðismálalöggjöfinni svo, að það séu ekki gerðar einhverjar ráðstafanir til þess að tryggja byggingarsjóði ríkisins meira fé til útlána en hann hefur nú yfir að ráða.

Það er auðvitað engin bót í þessum efnum, þó að ákveðið sé að fjölga stjórnarmönnum húsnæðismálastjórnar úr 4 í 5. Ég vil fyrir mitt leyti út af fyrir sig ekkert mótmæla því, að í slíkri n. sem þessari séu 5 menn starfandi, ég tel það á margan hátt eðlilegt, að Alþ, kjósi 5 menn í slíkar stjórnir sem þessa. En auðvitað er það ekki það, sem hefur háð byggingarstarfsemi í landinu að undanförnu, að það hafa setið 4 menn í þessari stjórn í staðinn fyrir 5. Það er vitanlega allt annað, sem hefur verið vandamál í þessum efnum. Því finnst mér, að þessi breyting á húsnæðismálastjórn, sem mér virðist vera aðalefni þessa frv., hefði kannske mátt fljóta með öðrum gagnlegum ráðstöfunum. En að samþ. breytingar á þessari löggjöf, þar sem slík breyting er aðalbreytingin, eins og málin standa nú, það tel ég með öllu ósæmilegt.

Það er rétt, að það má benda á, að tvö önnur atriði er að finna í þessu frv. heldur en um breytinguna á stjórnarmönnum í húsnæðismálastjórn. Það er gert ráð fyrir því bæði í 2. og 3. gr., að tilteknar hámarksfjárhæðir, sem eru nefndar í lögunum, megi hækka nokkuð. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því, að heimilt sé að hækka hámark, sem verið hefur nú um skeið varðandi útlán á vegum húsnæðismálastjórnar, úr 100 þús. kr. á hverju einstöku láni upp í 150 þús. kr. Þetta er auðvitað sáralítils virði, ef ekkert annað fylgir með til breytingar á húsnæðismálalöggjöfinni, því að það er staðreynd, að langflestir þeir, sem sótt hafa um lán til húsnæðismálastjórnar, hafa ekki hingað til fengið þetta hámark. Þeir eru aðeins fáir, sem hafa fengið lánað úr þessu kerfi 100 þús. kr. eða það sem hámarkið ákveður. Að hækka þetta hámark úr 100 þús. kr. upp í 150 þús. kr. er því sáralítils virði, ef ekki eru gerðar einhverjar ráðstafanir til þess að auka við það fé húsnæðismálastjórnar, sem til lánveitinganna fer. Það er auðvitað mergurinn málsins í þessum efnum, hvernig á að útvega meira fé í byggingakerfið.

Sama er að segja um hina heimildina, sem þetta frv. fjallar um, en það er að hækka þá heimild, sem í lögum er nú um sölu á skuldabréfum, úr 100 millj. kr. í 150 millj. kr. Þetta er ekkert aðkallandi málefni, á meðan a.m.k. engin vissa er fyrir því, að það megi takast að fá þessi lán. Hitt hefði vitanlega verið miklum mun álitlegra, ef hæstv. ríkisstj, hefði treyst sér til þess að setja í löggjöfina ákveðna skyldu t.d. á Seðlabankann til þess að lána til húsbyggingastarfseminnar ákveðna fjárhæð eða ákveðið hlutfall af sparifjáraukningunni í landinu á hverju ári.

Það er auðvitað enginn vafi á því, að það er sanngjarnt að ætlast til þess, að ákveðinn hluti af sparifjármynduninni í landinu á hverjum tíma gangi til íbúðabygginga, og það hefur oft verið bent á, að það þurfi einmitt að verða aukinn sparnaður hjá landsmönnum til þess að tryggja aukin íbúðalán. Nú liggur það fyrir óumdeilanlega, að sparifjármyndun hefur orðið allmikil og að sá háttur hefur verið hafður á, að Seðlabanki landsins hefur tryggt sér verulegan hluta af þessari sparifjáraukningu til umráða og bundið hann samkv. tilteknum reglum hjá sér. Ég hygg, að binding sparifjár samkv. þessum reglum á s.l. ári hafi numið 253.2 millj. kr. samkv. skýrslum Seðlabankans. Það er alveg augljóst, að það væri auðvelt fyrir ríkisstj. í samningum við Seðlabankann að tryggja íbúðalánakerfinu álitlegan hluta af þessu sparifé til útlána einmitt til íbúðabyggjenda. Það eru ákvæði um þetta efni, sem vantar í frv. Það vantar einmitt að ákveða það í frv., að byggingarsjóður ríkisins fái t.d. hluta af sparifénu til sinnar starfsemi eða þá einhverja aðra beina tekjustofna, sem mættu verða til þess, að sjóðurinn gæti raunverulega innt af höndum það verkefni, sem honum er ætlað.

Að samþ. frv. í því formi, sem það er, tel ég alveg fráleitt. Við 2. umr. málsins hér í d. komu fram allmargar brtt., sem einmitt stefndu í þessa átt, sem ég hef hér bent á, sem miðuðu að því að reyna að tryggja byggingarsjóði ríkisins auknar tekjur, svo að hægt væri að lána út meira fé til íbúðabygginga en verið hefur. Þessar till. voru felldar hér allar við 2. umr. málsins, en svo hafa engar nýjar till. komið fram við 3. umr. Það er auðvitað mál út af fyrir sig, þó að stjórnarflokkarnir geti ekki fallizt á þá tekjuöflun, sem fram kom í brtt., sem voru fram lagðar við 2. umr. málsins, því að sitt sýnist hverjum, hvernig teknanna skuli aflað. En ég trúi því ekki, að fulltrúar stjórnarflokkanna viðurkenni ekki eins og aðrir þörfina á því að tryggja byggingarsjóði auknar tekjur, aukið fjármagn til sinnar starfsemi. Ef þeir viðurkenna það, en geta hins vegar ekki fallizt á þær till., sem fluttar hafa verið hér frá stjórnarandstöðunni í þessum efnum, þá vitanlega hljóta stuðningsmenn ríkisstj, að koma með sínar till. um það, hvernig á að sjá byggingarsjóði ríkisins fyrir eðlilegu fjármagni.

Að undanförnu hefur það verið svo, að það fé, sem byggingarsjóður ríkisins hefur haft yfir að ráða til sinnar starfsemi, hefur einkum komið frá tveimur aðilum. í fyrsta lagi eru það fastar tekjur byggingarsjóðs ríkisins samkv. lögunum frá 1957, en þá var fyrst horfið að því ráði að reyna að tryggja byggingarsjóði ríkisins nokkrar fastar árlegar tekjur. Þessar tekjur sjóðsins munu nú vera, að mér skilst, hartnær 30 millj. kr. á ári. En auðvitað eru þessar tekjur allt of litlar fyrir byggingarsjóðinn til þeirrar miklu starfsemi, sem hann á að sinna. Í öðru lagi hefur sjóðurinn fengið með sérstakri milligöngu eða fyrirgreiðslu atvinnuleysistryggingasjóðs um 25 millj. kr. flest árin að undanförnu. Og þetta hefur verið meginfjármagnið, sem sjóðurinn hefur haft yfir að ráða til útlána, annað hefur verið tiltölulega lítið. Samkv. lögunum frá 1957 um byggingarsjóð ríkisins var gert ráð fyrir því, að sjóðurinn ætti að fá miklum mun meiri tekjur en hann hefur nú fengið, því að þá var gert ráð fyrir því, að verulegur hluti af stóreignaskattinum rynni til byggingarsjóðsins. En framkvæmdin á þeirri ákvörðun hefur verið sú, að núv. stjórnarflokkar hafa beinlínis gert ráðstafanir, sem leitt hafa til þess, að byggingarsjóður ríkisins hefur misst þennan tekjustofn, svo að enn þá fremur hvílir sú skylda á núv. stjórnarflokkum að ætla þessum sjóði einhverjar nýjar tekjur, ef ekki er meiningin að gera starfsemi sjóðsins gersamlega gagnslausa eða að engu.

Mér sýnist, að nærtækasta leiðin til bess að tryggja byggingarsjóði ríkisins fjármagn til útlánastarfseminnar sé einmitt að taka tiltekinn hluta af sparifjármynduninni og tryggja það til íbúðalána. Auðvitað þyrfti að gera miklu meira í þessum málum en að tryggja byggingarsjóðnum aukið fjármagn, því þó að gott sé fyrir þá, sem standa í húsbyggingum, að geta fengið nokkur lán til byggingarframkvæmdanna, þurfa þó kjörin á þessum lánum að vera þannig, að unnt sé að rísa undir þeim fyrir meðalfjölskyldu. En það vita allir, að kjör þau, sem nú eru í gildi á lánum byggingarsjóðs ríkisins, eru þannig, að það er engin von til þess, að fjölskylda með meðaltekjur geti risið undir slíkum lánum. Vextirnir eru þar allt of háir, og lánin eru einnig til of stutts tíma. Það er því auðvitað mikil nauðsyn á því, þegar þessi lög eru tekin til meðferðar og fyrirhugað að gera á þeim breytingar hér í þinginu, að ákveða að lækka vaxtakjörin á lánum byggingarsjóðsins og að lengja lánstímann til að bæta kjör þeirra, sem í byggingarframkvæmdum standa. Það er rétt, að það verður auðvitað erfitt að lækka vextina á þessum lánum til verulegra muna, nema ríkisstj. fallist á að lækka vextina almennt í landinu, og þá með því að útvega þessum sjóði nokkuð myndarlegan árlegan tekjustofn, svo að hann væri sjálfur fær um að greiða nokkurn vaxtamismun. En það er þetta tvennt, sem ég álít að þurfi að vera í þessu frv.: það er ákveðin fjáröflun fyrir byggingarsjóð ríkisins eða lánsútvegun, sem eitthvað dregur, og um leið ákvörðun um að lækka vextina á byggingarlánum og lengja lánstímann og bæta þannig lánskjörin. Þetta held ég að sé alveg nauðsynlegt að gert sé, þegar þessi lög eru hér til endurskoðunar í þinginu.

Þá verð ég einnig að segja það, að ég tel, að ákvæði 4. gr. frv. séu sízt til bóta, eins og þau eru í þessu frv. Það er kunnugt, að það hefur verið bundin, fastákveðin fjárhæð, sem varið hefur verið af hálfu ríkisins til útrýmingar heilsuspillandi íbúða. En með þeirri breytingu, sem gerð er á þessum ákvæðum í 4. gr. frv., sýnist mér, að allar líkur séu til, að framlög ríkisins í þessum efnum í krónum talið muni lækka nokkuð frá því, sem verið hefur. Ég hef að vísu ekki flutt hér brtt. við 3. umr. þessa máls. En ég átti fyllilega von á því, að þeir aðilar hér á þingi, sem stóðu fyrir því að fella þær till., sem mér sýndust vera sjálfsagðar og nauðsynlegar og hér voru fluttar við 2. umr. málsins, hlytu nú fyrir 3. umr. að leggja fram sínar brtt. í þessum efnum, því að það er auðvitað hvorki boðlegt fyrir þá né aðra að afgreiða þetta frv. í þeirri mynd, sem það er hér nú.

Ég skal svo ekki ræða frekar um málið að sinni, en vænti þess, að það eigi eftir að koma fram brtt. við málið í þá átt, sem ég hef lýst.