09.11.1961
Neðri deild: 15. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (923)

15. mál, Seðlabanki Íslands

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Hæstv. forseti. Þegar umr. hófust hér í þessari hv. d. um frv. það, sem nú er á dagskrá, og stjórnarandstæðingar hver af öðrum héldu því fram, með mismunandi rökstuðningi að vísu, að það hefði verið stjórnarskrárbrot að gefa út brbl. á s.l. sumri um gengisskráninguna, þá datt mér ekki í hug, það hvarflaði ekki að mér, að þeim væri nokkur alvara neinum þeirra í þessu tali. Það var að vísu búið að segja það í blöðum stjórnarandstöðunnar, þegar brbl. voru gefin út: Þetta er stjórnarskrárbrot o.s.frv. Og í raun og veru leit maður á það sem eðlilegt framhald af því, að viðkomandi aðilar kæmu nú og býsnuðust yfir því, að hér væri verið að draga eitthvert vald úr höndum Alþingis, valdníðsla gagnvart Alþingi, stjórnarskrárbrot o.s.frv. En þetta tal hefur haldið áfram, og þó dettur mér ekki í hug enn að álíta, að nokkur þeirra hafi mælt af alvöru í þessu sambandi.

Mér finnst ósköp eðlilegt að hafa visst umburðarlyndi gagnvart jómfrúræðum, sem hér eru fluttar á Alþingi, og vil gera það nú í sambandi við þessa ræðu, sem hér var síðast flutt af hv. 4. landsk. (IRH). En ég get þó ekki orða bundizt um það, að mér finnst, að allar, hver einasta tilvitnun, sem hv. þm. las hér upp úr stjórnlagafræði forsrh. og fyrrv. lagaprófessors í stjórnlagafræði í háskólanum, að hver einasta tilvitnun hafi einmitt verið í fullu samræmi við þá túlkun á lögmæti þessara brbl., sem forsrh. sjálfur flutti á síðasta fundi um þetta mál í þessari deild.

Hv. þm. vitnaði í ágrip af stjórnlagafræði, sem forsrh. hefur skrifað á sínum tíma, og það er alveg nákvæmlega samhljóða því, sem fram kemur hjá öðrum prófessor í háskólanum, Ólafi Jóhannessyni prófessor, í hans nýju fræðibók um stjórnskipun Íslands, þar sem hann segir, með leyfi hæstv. forseta: „Eftir orðanna hljóðan er ekki nægilegt, að löggjöf sé æskileg, skynsamleg eða jafnvel nauðsynleg, heldur er það skilyrði, að þörfin á löggjöf sé svo brýn, að ekki megi bíða næsta þings.“ Það er enginn ágreiningur um þetta á milli fræðimanna, hvorki fyrr né síðar. En það var einmitt í þetta, sem forsrh. vitnaði og rökstuddi í ræðu sinni á síðasta fundi þessarar hv. d., að útgáfa brbl. á s.l. sumri samrýmdist fullkomlega þessum skilningi á stjórnarskránni, og hans rök hnigu að því, að útgáfa brbl. hefði einmitt verið svo brýn, að það hefði getað skaðað og stórskaðað efnahag landsmanna að láta hana bíða til næsta þings. Ég skal ekki endurtaka þau rök, sem hann flutti hér í þessu sambandi, en þó minna á nokkur atriði í því sambandi.

Prófessor Ólafur Jóhannesson segir einnig í sinni fræðibók um þetta atriði, með leyfi hæstv. forseta: „Einhverjir verulegir hagsmunir verða að vera í húfi.“ Dettur nú nokkrum hv. þm. í hug að halda því fram, að ekki neinir verulegir hagsmunir hafi verið í húfi á s.l. sumri í sambandi við útgáfu brbl.? Prófessorinn heldur áfram og segir: „Sé hægt að ráða fram úr aðsteðjandi vanda án löggjafar, t.d. með stjórnarathöfnum eða almennum fyrirmælum framkvæmdarvaldshafa, ber vitaskuld að velja þann kost í stað þess að grípa til brbl.“ Ríkisstj. átti ekki þessara kosta völ. Það var með engu móti hægt að ráða fram úr þessu mikla vandamáli, sem hér var uppi, með stjórnarathöfnum eða almennum fyrirmælum framkvæmdarvaldshafa. Og þá er spurningin, og það er kannske það, sem við erum að deila um: Var nægjanlega brýn nauðsyn til þess að réttlæta útgáfu brbl.? Prófessor Ólafur Jóhannesson segir um þetta, með leyfi hæstv. forseta: „Annars er skilyrði þetta,“ — þ.e. skilyrðið um brýnu nauðsynina, — „óneitanlega matskennt og teygjanlegt.“ Og ég held, að við verðum að viðurkenna það allir, að það er auðvitað matskennt og teygjanlegt. En hitt er staðreynd, að það hafa í fjölmörgum tilfellum öðrum verið gefin út brbl. af miklu minna tilefni, minna brýnni nauðsyn en hér var um að ræða. Og þegar á það er litið, hver eigi að meta hina brýnu nauðsyn, þá er það einnig skoðun fræðimanna, að hér hafi a.m.k. almennt verið litið svo á, að þetta yrði bráðabirgðalöggjafinn sjálfur að gera. Bráðabirgðalöggjafinn sjálfur verður að skera úr um þetta, og meginrök ræðu þeirrar, sem forsrh. flutti hér um þetta mál, hnigu einmitt að því að styðja það, að nauðsynin hefði verið svo brýn, að það samrýmdist fullkomlega stjórnarskránni og réttlætti útgáfu brbl.

Nú vil ég vekja athygli í þessu sambandi á einu atriði, sem óefað hefur verið mjög mikill galli á okkar löggjöf í sambandi við gengisskráninguna, því ákvæði okkar löggjafar, að Alþingi skyldi ákveða gengisskráninguna. Ég ætla ekki hér að fara út í deilur um, hvort það sé út af fyrir sig rétt, að Alþingi ákveði gengisskráninguna, Seðlabankinn eða einhver annar aðili. En við höfum þó hins vegar búið fram til þessa við það fyrirkomulag, að Alþingi ákveði gengisskráninguna. Við vitum, að þetta hefur hvað eftir annað orsakað ákaflega mikla örðugleika. Hér hafa verið til meðferðar í þinginu, — ég held mér sé óhætt að segja í margar vikur, áreiðanlega þrjár vikur um gengisskráninguna 1950, — frumvörp um gengisbreytingu, en áður en frv. kom inn í þingið þá og enda oft áður, hefur það verið í almæli kannske vikum og jafnvel mánuðum saman, að gengisbreyting væri í uppsiglingu. Og það var vitað 1950, að minnihlutastjórn Sjálfstfl., sem þá fór með völd, hafði samið frv. um gengisbreytingu á árinu 1949 eða um áramótin þá, og hún hafði a.m.k. afhent tveimur þingflokkunum drög að þessu frv., áður en það var lagt fram, og þeir haft það langan tíma til meðferðar, til þess að átta sig á því, og það var almæli, að það væri í uppsiglingu gengisbreyting. Eins var þetta mjög augljóst 1960, eftir að ríkisstj. er mynduð í nóvembermánuði 1959. Það er í margar vikur og í þessu tilfelli mánuði búizt við gengisbreytingu. Það getur enginn neitað því, að þetta fyrirkomulag á gengisskráningu er ákaflega bagalegt og hefur mjög margvísleg og truflandi áhrif á efnahagslífið í landinu, og það er sennilega ekki sízt af þessum sökum, sem gengisbreyting víðast hvar annars staðar í hinum vestræna heimi er ákvörðuð á annan hátt, af seðlabönkunum eða þjóðbönkunum, og kemur mönnum á óvart og er ákveðin í skyndingu, án þess að menn fyrir fram geti með svo og svo miklum líkum reiknað með henni og sumir hagað sinni fjármálastarfsemi í efnahagslífinu í samræmi við það og efnahagsstarfsemin í heild beðið mikið tjón og vandkvæði hlotizt af. Og það eru óteljandi þau vandkvæði, sem gjaldeyrisbankarnir eiga við að stríða undir slíkum kringumstæðum, þegar lengi hefur verið yfirvofandi gengisbreyting og einnig tekur nokkuð langan tíma að afgreiða hana á Alþingi. Af þessum sökum einum er það auðvitað æskilegra, að gengisskráningarvaldið sé í höndum Seðlabankans. En þó skal ég ekki á þessu stigi málsins fara að rökræða það frekar, og menn geta haft mikið til síns máls, þeir sem segja, að það sé réttara, að Alþingi fari með gengisskráninguna. En það er þó a.m.k. þessi mjög verulegi annmarki á því, að Alþingi sjálft ákveði gengisskráninguna.

Ef Alþingi hefði verið kvatt saman í sumar, mátti það vera öllum ljóst, hvað til stóð. Það tekur nokkurn tíma að kalla Alþingi saman. Meðferð málsins á þinginu hefði líka tekið nokkurn tíma. Og eins og kringumstæður voru hér í okkar efnahagsmálum, gat að dómi ríkisstj., sem átti að meta hina brýnu nauðsyn, valdið verulegum truflunum og kannske stórskaða í okkar efnahagslífi sá tími, sem farið hefði í að viðhafa þessa meðferð málsins.

Mér datt í hug áðan, þegar ég sagði, að a.m.k. hefðu oft verið sett brbl. af miklu minna tilefni og hin brýna nauðsyn verið minni en nú, að ég man ekki betur en sá hv. þm., sem hv. 4. landsk. þm. nú situr á þingi fyrir, þáv. félmrh., Hannibal Valdimarsson, hafi í tíð vinstri stjórnarinnar gefið út brbl., eftir að stjórnin var mynduð í júlímánuði eða um það bil gefið út brbl., líklega í ágústmánuði — og Alþingi átti að koma saman fyrst í október — um breyt. á húsnæðismálalöggjöfinni, og það var til þess að fjölga mönnum í húsnæðismálastjórninni. Og hin brýna ástæða var þá færð fyrir því, — ég held, að þar hafi ekki verið nema tveir eða þrír, en það þurfti endilega að fjölga þessum mönnum upp í fjóra, og það mátti ekki bíða mánaðartíma eða þangað til þing kæmi saman að leggja það fyrir Alþingi.

En þetta er nú ekkert einsdæmi. Ef út í það væri farið, — ég hef ekki haft aðstöðu til þess, — eru áreiðanlega fjölmörg dæmi þess, að hin brýna nauðsyn getur verið nokkuð hæpin, og alveg eins og prófessor Ólafur Jóhannesson segir, að það sé óneitanlega matskennt og teygjanlegt, hver hin brýna nauðsyn kunni að vera. Ég viðurkenni, að það á auðvitað að gera meiri kröfur til þessa í mikilvægum málum, en einmitt mikilvægi málanna leiðir líka oftast til þess, að hin brýna nauðsyn sé tvímælalausari en ella mundi.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri. En mig furðar á því, að hér skuli haldið uppi umr. um það, hvort þessi brbl. hafi farið í bága við stjórnarskrána eða ekki, því að það verður víst áreiðanlega tvímælalaust, og það mætti segja mér, að fræðimenn í háskólanum síðar meir kenndu nemendum sínum þá, að auðvitað hefðu þessi brbl. ekki farið í bága við stjórnarskrána. Kannske þessi hv. þm., ef það ætti fyrir honum að liggja að verða prófessor og fræðimaður, mundi þá hafa aðra afstöðu en hann hafði hér í sinni jómfrúræðu.