13.11.1961
Neðri deild: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (934)

15. mál, Seðlabanki Íslands

Forseti (RH):

Ef hv. þm. telur, að hann geti ekki flutt eins og 10 mín. kafla af ræðu sinni að ráðh. fjarstöddum, þá mun verða orðið við þeirri ósk að taka málið aftur út af dagskránni í bili í þeirri von, að hæstv. ráðh. geti hlustað á allt mál hv. þm. án þess að fara þar nokkurs á mis.