29.03.1962
Efri deild: 74. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (970)

15. mál, Seðlabanki Íslands

Gunnar Guðbjartsson:

Herra forseti. Það er nú búið að ræða mikið það mál, sem hér liggur fyrir til umr., frv. til I. um breyt. á l. um Seðlabanka Íslands. Og það eru einkum tvö meginatriði, sem um er deilt, þ.e.a.s. hvor eigi að hafa gengisskráningarvaldið, Alþingi eða Seðlabankinn, og svo hitt, hvort nauðsyn hafi borið til þeirrar gengisbreytingar, sem gerð var s.l. sumar.

Það hefur ekki verið deilt um það, að gengisskráningarvaldið hafi verið í höndum Alþ. til þess tíma, að þessi brbl., sem um er rætt, voru út gefin. Það hefur ekki heldur verið um það deilt og reyndar fullyrt af stjórnarandstöðunni, að það hafi ekki borið neina nauðsyn til að færa gengisskráningarvaldið úr höndum Alþingis til Seðlabankans, og ekki fullyrt af stuðningsmönnum stjórnarflokkanna, að nauðsyn hafi borið til að gera slíkt, heldur aðeins sagt, að það hafi verið eðlilegt. Nú er það upplýst og öllum vitað, að stjórnarskráin kveður svo á um, að því aðeins megi gefa út brbl., að brýna nauðsyn beri til. Af þessu virðist augljóst, að það hafi verið stjórnarskrárbrot, þegar brbl. voru gefin út í sumar, að færa gengisskráningarvaldið úr höndum Alþ. til Seðlabankans, án þess að brýna nauðsyn hafi borið til. Það hefur líka verið upplýst og stutt með tilvitnunum í umsögn fyrrv. prófessors við lagadeild háskólans, að því aðeins megi breyta lögum með brbl., að ekki hafi verið stutt frá meðferð þingsins á þeim lögum, sem um ræðir hverju sinni. Nú er það líka vitað, að seðlabankalöggjöfin, sem hér um ræðir, var sett á Alþingi í fyrra, aðeins fjórum mánuðum áður en þessi brbl. voru út gefin, og það verður því ekki sagt annað en það hafi verið stutt um liðið, frá því að Alþingi fjallaði um þessi lög, og að það kom fram við þá lagasetningu, að þingið vildi ekki afsala sér þessu valdi, sem hér um ræðir. Af þessum rökum öllum virðist það augljóst, að hér hefur verið um stjórnarskrárbrot að ræða.

Það var fullyrt af hæstv. viðskmrh. við framsögu þessa máls hér í þessari hv. d., að þingið hefði valdið enn þá, með því að það gæti fellt þessi brbl. Þetta er tæpast rétt. Eins og nú er komið eftir þá kjördæmabreytingu, sem nýlega var gerð, þar sem flokksvaldið er orðið ríkjandi í raun og veru og þm. orðnir fyrst og fremst fulltrúar flokkanna á Alþ., hefur ríkisstj. í hendi sér hverju sinni að fá samþ. þau lög, sem hún leggur áherzlu á að staðfest verði. Og þegar hún er búin að gefa út brbl. um þýðingarmikil málefni, þýðir það vantraust á hana, ef stjórnarflokkarnir fást ekki til að samþ. þau lög, sem hún hefur gefið út, og því getur hún jafnan skákað í því skjóli, að hennar eigin stuðningsmenn muni ekki samþ. vantraust á hana, og þannig neytt þá til þess að styðja mál, sem þeir væru kannske í eðli sínu á móti.

Af þessu öllu er augljóst, að þetta, að færa gengisskráningarvaldið úr höndum Alþ. til Seðlabankans, var rangt.

Þá vil ég víkja í fáeinum atriðum að nauðsyn sjálfrar gengisbreytingarinnar, sem gerð var á s.l. sumri. Hæstv. viðskmrh. studdi nauðsyn hennar með þeim rökum, að almennar kauphækkanir hefðu orðið í landinu að meðaltali um 14–15%. Það var sýnt fram á það hér í umr. í gær mjög glögglega bæði af hv. 5. þm. Austf. (PÞ) og öðrum, sem hér töluðu um málið, að þetta var ekki rétt. Launahækkanirnar voru ekki svona miklar almennt, og allar stéttir þjóðfélagsins fengu ekki þessar launahækkanir, — eða hvenær fengu sjómenn launahækkanir á s.l. ári, hvenær fengu bændur þær? Og svona mætti nefna ýmsar fleiri stórar stéttir. Það er því alls ekki rétt að reikna þetta þannig, að allar stéttir þjóðfélagsins hafi fengið þessar almennu launahækkanir, sem hæstv. viðskmrh. ræddi hér um. Auk þess studdi viðskmrh. nauðsynina með því, að gera yrði ráð fyrir, að kauphækkanir vegna fólksfjölgunar og færslur milli launaflokka væru allt að 300 millj. kr. á ári. Er ekki fráleitt að hugsa sér það að þurfa alltaf að lækka gengið, ef fólkinu fjölgar í landinu? Getur ekki það unga fólk, sem kemur til með að leggja vinnu sína fram í þjóðfélaginu, unnið fyrir sér? Verður alltaf að lækka gengið, þegar fólkinu fjölgar? Slíkt er fáránleg fullyrðing, því að hver vinnandi hönd hlýtur að skapa aukin verðmæti í þjóðfélaginu og þann veg ætti hún að gera og gerir þjóðinni léttara að sækja fram til bættra lífskjara, en ekki öfugt. Þess vegna er alveg fráleitt að taka þessa upphæð með í þetta dæmi, eins og hæstv. viðskmrh. gerði hér í sinni framsögu.

Þá hefur hæstv. ríkisstj. stutt nauðsyn gengisbreytingarinnar með þeim hagfræðilegu rökum, að útlit hafi verið fyrir minni þjóðarframleiðslu s.l. sumar en áður og af þeim sökum hefði verið hætta á gjaldeyrisskorti og ójafnvægi í viðskiptunum við útlönd. Hv. 5. þm. Austf. sýndi glögglega fram á það hér í umr. í gær, að þetta var algerlega röng forsenda. Þjóðarframleiðslan var mörg hundruð milljón krónum meiri s.l. ár en nokkru sinni áður, og að því leyti var það hagstæðara fyrir þjóðfélagið að hækka laun manna í landinu en nokkru sinni áður, og að því leyti var algerlega rangt, að það þyrfti að lækka gengið af þeim sökum. Það er upplýst, að sjávaraflinn einn reyndist 14% meiri á s.l. ári en árið áður og meiri en nokkru sinni áður í þjóðfélaginu.

Það er því sýnt, að sá hagfræðilegi grundvöllur, sem gengisbreytingin var byggð á, er algerlega brostinn. En það, sem mun hafa valdið ákvörðun ríkisstj. í þessu máli, kom raunverulega fram í lokaorðum hæstv. viðskmrh. við framsögu þessa máls. Hann sagði: „Það var rétt að afstýra tilræði við viðreisnina með því að lækka gengið.“ Það var af því að þetta vandræðabarn ríkisstj., viðreisnin, var orðið svo óvinsælt og var búið að leiða svo margt illt af sér fyrir allan almenning í þjóðfélaginu, að stjórnin var farin að hafa áhyggjur af því sjálfu. Þetta vandræðabarn hafði í för með sér ekki aðeins almennar verðhækkanir á öllum nauðsynlegum neyzluvörum, það hafði líka í för með sér, að tollabyrðar jukust á öllum almenningi, þar sem grunnverð allrar innfluttrar vöru hækkaði alveg stórkostlega. Það hafði í för með sér, að söluskattur, stórfelldur söluskattur, var á lagður, sem hækkaði allt vöruverð í landinu og skapaði margháttaða erfiðleika við allar framkvæmdir og kaup á nýjum framleiðslutækjum. Það hafði í för með sér stórfellda vaxtahækkun, sem öllum var hvimleið. Það hafði líka í för með sér lánasamdrátt, sem stórskerti aðstöðu framleiðsluatvinnuveganna til stofnunar, framkvæmda og rekstrar.

Það hefur verið sýnt fram á það í umr. um þetta mál, að sumir atvinnuvegir, eins og t.d. iðnaðurinn, hefðu getað borið kauphækkunina, sem varð s.l. sumar, án þess að hækka verðlag á vöru sinni. Og það hafa verið færð sterk rök fyrir því, að einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar, frystihúsareksturinn, hefði getað borið kauphækkunina, hefði hann getað fengið 2% vaxtalækkun. Hæstv. viðskmrh. vildi gera mjög litið úr vaxtalækkun í þessu efni, taldi hana lítilsvert úrræði, sem engan veginn hefði fullnægt þörfum þessa atvinnuvegar. Ég vildi nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér umsögn aukafundar Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á s.l. hausti um þetta atriði, sem skýrir raunverulega málið miklu betur en þjark okkar hér á Alþ., því að þeir menn, sem þar voru, standa í eldinum sjálfir og skilja, hvaða áhrif þetta hefur á þeirra atvinnurekstur:

„Aukafundur SH, haldinn í Reykjavík í febrúar 1962, samþ. að beina því til hæstv. ríkisstj., að nú þegar verði athugað, hvort ekki sé unnt og tímabært að lækka vexti Seðlabankans á afurðalánum sjávarútvegsins þannig, að 7% vextir þriggja fyrstu mánaðanna lækki í 5% og 71/3 % vextirnir í 51/2%.“

Sem rökstuðning fyrir samþykktum þessum lýsti fundurinn því yfir sem skoðun sinni:

„1. Þörf framleiðslufyrirtækja sjávarútvegsins fyrir lánsfé er svo mikil, að notkun þess er ekkert minni þrátt fyrir háa vexti, og þó fjárþörf þeirra hvergi nærri fullnægt.

2. Fundurinn fær ekki séð, hvernig það þjónar hag þjóðfélagsins að íþyngja framleiðslunni með háum vöxtum á framleiðsluvíxlum sjávarafurða, er teknir eru af fyrirtækjum, sem fjárhagslega berjast í bökkum, en stunda þó framleiðslu, sem öll þjóðin byggir afkomu sína á.

3. Fundurinn álítur, að hækkun útlána á sjávarafurðir sé vissasta leiðin til að gera fyrirtækjum þessum kleift að reka starfsemi sína af fullum krafti og auka þar með framleiðsluna og þar með gjaldeyrisöflunina.“

Þetta er samþykkt Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, og það kemur þar glöggt fram, að þessir aðilar, sem eru langkunnugastir þessum efnum, þessum þætti atvinnulífsins, telja vaxtalækkunina vissustu leiðina til að bæta afkomu þeirra og tryggja framleiðslumöguleikana. En hæstv. viðskmrh. neitar því, að vaxtalækkun geti orðið að gagni í þessum efnum eða verið til bóta fyrir framleiðsluna. Það sýnir, hvað hann, hæstv. viðskmrh., er langt utan við það að fylgjast með atvinnulífinu í þjóðfélaginu.

Það muna allir loforð hæstv. stjórnarflokka við síðustu kosningar, loforðin um bætt lífskjör þjóðfélagsþegnanna. Og þegar viðreisnin var sett, þá var boðað, að hún ætti að skapa aðstöðu til þessara bættu lífskjara, sem lofað hafði verið í kosningunum 1959. Það hefði því mátt ætla, að eftir á annars árs bið, eftir að viðreisnin var sett, þegar kauphækkanirnar voru framkvæmdar s.l. sumar, hafi verið farin að koma fram þau jákvæðu áhrif viðreisnarinnar, sem áttu að tryggja grundvöllinn undir bætt lífskjör, enda yfirlýst af hæstv. stjórnarflokkum, að þau áhrif hefðu verið farin að koma fram og viðreisnin heppnazt. En þrátt fyrir það þó að þeir lýstu yfir, að viðreisnin hefði heppnazt, og teldu, að möguleikarnir fyrir bætt lífskjör væru að koma fram, taka þeir aftur af öllum launþegum kauphækkunina, sem varð s.l. sumar, með gengisbreytingu. Það sýnir, að eitthvað er bogið við röksemdafærsluna.

Gengislækkun er jafnan vandræðaráðstöfun, og ætti ekki að nota hana nema í hreinum neyðartilfellum. En það virðast ekki hafa verið þau skilyrði fyrir hendi s.l. sumar, að það teldist nauðsynlegt að leggja í þessa neyðarráðstöfun. Gengislækkanir þrengja kjör yfirleitt allra vinnandi stétta í þjóðfélaginu og skapa atvinnuvegunum margvíslegan vanda vegna þess, að stofnkostnaður við framkvæmdir eykst stórkostlega, og það verður til þess, að miklu erfiðara verður að fullnægja stofnfjárþörf atvinnuveganna. Þetta dregur úr nauðsynlegum framkvæmdum, sem bezt lýsir sér í því, að bæði byggingarframkvæmdir dragast stórlega saman nú eftir þessar tvær gengisbreytingar, skipakaup minnka stórkostlega, ræktunarframkvæmdir minnka stórkostlega, og svona mætti halda áfram að telja fjölda greina í þjóðfélaginu, sem hafa dregizt saman, en þó mjög nauðsynlegar til þess, að þjóðin geti bætt lífskjör sín og bætt afkomu sína í framtíðinni. Allur rekstrarkostnaður allra atvinnuvega hækkar stórkostlega, og við það skapast margvíslegir erfiðleikar, eins og aukafundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna bendir réttilega á, vegna þess að það er erfitt að fullnægja rekstrarfjárþörf fyrirtækja, sem framleiða og velta miklu af afurðum. Þetta hefur lýst sér glöggt í rekstri togaranna. Þrátt fyrir tvær gengisbreytingar og kannske meðfram fyrir tvær gengisbreytingar eru þeir svo komnir núna, að þeir eru nálega allir að verða gjaldþrota. Þessi atvinnuvegur, sem um langa hríð var einn mesti gróðaatvinnuvegur í þjóðfélaginu, er nú kominn á vonarvöl og í svo miklar þrengingar, að liggur við borð, að allir togarar landsins stöðvist.

Þetta sýnir, að gengisbreyting er ekkert allsherjar lækningalyf fyrir erfiðleika atvinnulífsins, heldur þvert á móti miklu líklegri til þess að skerða möguleika atvinnuveganna til framþróunar í þjóðfélaginu. Og þessi gengislækkun s.l. sumar var, frá hvaða sjónarmiði sem á hana er litið, hrein endileysa og vitleysa. Það, sem einkum virðist hafa valdið því, að hæstv. stjórnarflokkar réðust í það að lækka gengið, virðist vera ótti þeirra við sitt vandræðabarn, viðreisnina. Þegar launastéttirnar gátu ekki lengur unað við þá skerðingu, sem fyrri gengislækkunin hafði haft í för með sér, og fengu hækkað kaupið, þá virðast þeir hafa óttazt um afkomu ríkissjóðs, og meðfram vegna þess, eins og ég gat um áðan í sambandi við togarana, að það hafði komið í ljós, að ýmsir aðilar höfðu orðið svo hart úti vegna viðreisnarinnar, að þeir gátu ekki staðið undir sínum skuldbindingum og staðið skil á þeim lánum, sem ríkið hafði ábyrgzt greiðslur á. Það var upplýst hér nýlega í Alþingi, að ríkið hefði greitt í ríkisábyrgðir á árinu 1960 tæpar 50 millj. kr. og árið 1961 um 68 millj. kr. Þetta sýnir, hvaða áhrif viðreisnin hefur á ýmsar greinar þjóðlífsins og atvinnulífsins, þegar þeir aðilar, sem hafa mest fé í rekstri sínum að láni og hafa það með ríkisábyrgð, geta ekki staðið í skilum með sínar skuldbindingar. Það sýnir, að viðreisnin hefur komið svo hart við þessa aðila, að þeir sjá ekki fram á, að þeir geti rétt sig úr kútnum fjárhagslega. Og það virðist vera, að þessi ótti um það, að ríkissjóður yrði hart úti vegna þessara ábyrgða og vegna þeirrar kauphækkunar, sem hann varð að taka á sig að sjáifsögðu eins og aðrir aðilar s.l. sumar, og gæti ekki staðið í skilum, hafi valdið því, að hæstv. ríkisstj. gekk í það að lækka gengið. Það virðist því liggja beint við, að það væri óttinn við hennar eigin króga, sjálfa viðreisnina, sem hafi valdið því, að hún greip til þess óyndisúrræðis, sem öllum hlýtur að verða til ills.