09.04.1963
Efri deild: 70. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

214. mál, þátttaka síldarverksmiðja ríkisins í útgerðarfélagi

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, byggist afkoma Siglufjarðarkaupstaðar og íbúa staðarins að mjög verulegu leyti — og hefur gert um langan tíma — á síldveiðum. Þegar síldin lagðist frá og veiði minnkaði geigvænlega upp úr 1944, horfði þess vegna til mikilla vandræða á staðnum. Þá var ráðizt í það af bæjarstjórn Siglufjarðar að kaupa togara og gera þá út, fyrst einn og síðan annan, sem gerðir voru út og bættu nokkuð úr þeim atvinnumissi, sem orðinn var á staðnum, vegna þess að síldin hvarf eða þegar síldveiði minnkaði. En togaraútgerð á þeim tíma og alla stund síðan hefur verið ákaflega erfið og það svo, að þessi útgerð Siglufjarðarbæjar komst í verulega erfiðleika strax upp úr árinu 1952. Þá voru af hendi þáv. ríkisstj. gerðar ráðstafanir til, að síldarverksmiðjur ríkisins kæmu sér upp hraðfrystihúsi og tækju að sér rekstur togaranna, á ábyrgð bæjarins þó og fyrir hans reikning. Við svo búið stóð svo fram á árið 1959, en þá samþ. stjórn síldarverksmiðjanna að segja upp þeim samningi, sem hún hafði við Siglufjarðarkaupstað um rekstur skipanna. Togararnir höfðu þá safnað allverulegum skuldum, og erfiðleikar voru á útgerð þeirra. Þessi uppsögn samninganna 1959 var miðuð við það, að síldarverksmiðjurnar hættu þessum rekstri á árinu 1960, en samkomulagið var þó framlengt, og hefur ekki komið til þess, að síldarverksmiðjurnar hafi horfið frá því að reka skipin enn, en erfiðleikar hafa verið miklir á rekstrinum og uppsögnin stöðugt yfirvofandi.

Þess vegna var það, að árið 1960 skipaði ráðuneytið n. til þess að athuga þessi mál öll. Í n. voru skipaðir form. stjórnar síldarverksmiðja ríkisins, Sveinn Benediktsson, bæjarstjórinn á Siglufirði, Sigurjón Sæmundsson, og Birgir Finnsson alþm. Þessi n. tók þá til starfa, og henni var ætlað það verkefni að finna eitthvert rekstrarform, sem hæfði á staðnum og gæti komið í staðinn fyrir það fyrirkomulag, sem var. Í skipunarbréfi n. var út frá því gengið, að hraðfrystihús síldarverksmiðjanna og togararnir væru reknir af sama aðila og á ábyrgð sama aðila. N. skilaði svo áliti 3. maí 1961, en varð ekki sammála. Niðurstaða meiri hl. n., þeirra Sigurjóns Sæmundssonar og Birgis Finnssonar, var í aðalatriðum þessi:

Sett verði lög, sem heimili stofnun sameignarfélags ríkisins, eða SR fyrir þess hönd, og Siglufjarðarkaupstaðar. Skyldi það félag taka við eignum og skuldum bæjarútgerðar Siglufjarðar, eins og þær yrðu, þegar skuldir hefðu verið eftir gefnar eða greiddar og umsamdar. Einnig skyldi félagið taka við eignum og skuldum hraðfrystihúss SR á Siglufirði, eins og þær verða, eftir að samkomulag hefur verið gert við stjórn síldarverksmiðja ríkisins um skiptingu eigna og skulda hraðfrystihúss SR og síldarverksmiðjanna. Heimilisfang félagsins skal vera Siglufjörður og tilgangur þess útgerð fiskiskipa og rekstur hraðfrystihúss. Eignahlutföll verði: ríkissjóður, eða SR fyrir ríkisins hönd, með 4/5 og bæjarsjóður Siglufjarðar með 1/5. Ábyrgð takmarkist við stofnframlög hvors aðila, en þau verði 1 millj. 600 þús. kr. frá ríkinu og 400 þús. kr. frá Siglufjarðarkaupstað.

Þetta var í aðalatriðum niðurstaða meiri hl. n. En minni hl. n. ræddi í sínu álíti nokkuð, hvernig þróun þessara mála hefur orðið á staðnum, og síðan segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Með tilvísun til framanritaðs legg ég til, að SR eigi hraðfrystihús sitt áfram og leitist við að efla rekstur þess með auknum viðskiptum við báta, eins og þegar hefur verið reynt með nokkrum árangri. Stjórn SR hefur samþ. að koma upp veiðarfærageymslu og beitingaraðstöðu fyrir nokkra báta í þessu skyni.“ Síðan segir: „Þegar afskrift skulda bæjarútgerðar Siglufjarðar hefur farið fram og útvegað hefur verið lánsfé til greiðslu á lausaskuldum skv. hinum sameiginlegu till. n., þá legg ég til, að stofnað verði hlutafélag með 3 millj. kr. höfuðstól og leggi síldarverksmiðjur ríkisins fram tvo þriðju hluta fjárins og Siglufjarðarkaupstaður 1/3. Gengið verði út frá, að stjórnin verði skipuð 2 mönnum frá SR og einum frá Siglufjarðarkaupstað. Félag þetta kaupi togarann Elliða á matsverði, eða 5 millj. kr., og geri hann út, en togarinn Hafliði verði afhentur ríkinu upp í skuldir. Greiðsla kaupverðs fari eftir nánari samningum.“

M.ö.o.: samkomulag náðist ekki í n., og gekk í nokkru þófi um málið nokkurn tíma. Tap útgerðarinnar var orðið mjög mikið og erfiðleikar á að greiða það og gera hreint borð, sem svo aftur olli því, að niðurstöður fengust ekki um málið. Þá skeði það á fyrri hluta árs 1962, að togarinn Elliði fórst. Það var náttúrlega mikið áfall fyrir Siglufjarðarkaupstað að missa þetta skip, þar sem atvinnuvonir staðarins voru þá að verulegu leyti bundnar við togarann, þó að nokkuð hefði úr rætzt með tilkomu síldarinnar á ný. En með vátryggingarfé togarans var hægt að greiða upp verulegan hluti af skuldum fyrirtækisins og gera ráðstafanir til þess, að bátar væru keyptir í staðinn til þess að reyna að halda fiskveiðunum gangandi. Þetta breytti þannig viðhorfunum, að möguleikar voru til þess, að nefndarhlutarnir, sem hafði mest greint á, vegna þess að fé var ekki til til að greiða upp í skuldirnar eða semja um þær, gátu fundið hvor annan, og þeirra skoðanir tóku nú að verða mjög á einn veg í aðalatriðum.

Bæði bæjarstjórn Siglufjarðar og stjórn síldarverksmiðja ríkisins skrifuðu nú ráðuneytinu og óskuðu, að málinu væri ráðið til lykta á þann hátt, sem meiri hl. n. og raunar varatill. minni hl. benti á í sínu álíti frá 1960. Bréf SR er prentað sem fskj. með frv. því, sem hér liggur fyrir, og fer það í aðalatriðum í sömu átt og till. meiri hl. n. Í þessu frv. er lagt til, að síldarverksmiðjum ríkisins verði heimilað að leggja fram allt að 2 millj. kr. sem hlutafé í hlutafélag, sem stofnað yrði á Siglufirði í samvinnu við Siglufjarðarkaupstað til þess að reka vélbáta frá Siglufirði svo og botnvörpunginn Hafliða, sem nú er í eign Siglufjarðarkaupstaðar. Framlag síldarverksmiðjanna verði 55% af hlutafé félagsins.

Ég skal í þessu sambandi geta þess, að sá einasti ágreiningur, sem er um málið í stjórn síldarverksmiðja ríkisins, er sá, að meiri hl. stjórnarinnar vill, að togarinn Hafliði verði tekinn inn í þetta félag, en minni hl. hefur ekki óskað eftir því. Í frv. er, eins og fram kom, þegar ég las upp 1. gr. þess, þessum möguleika einnig haldið opnum, þannig að þessu væntanlega hlutafélagi er heimilt að taka einnig að sér rekstur togarans, ef um það semst.

Þetta frv. er fram komið vegna þess, að nauðsynlegt er að ráða þessu máli til lykta á einhvern hátt. Þegar hraðfrystihús síldarverksmiðjanna var byggt árið 1953, var ekki leitað heimildar Alþ. til þess, og getur það ef til vill orkað tvímælis, hvort það hefði þurft að gera eða ekki. En með þessu frv, er gert ráð fyrir, að það verði gefin heimild til þess að reka hraðfrystihúsið einnig, eins og þau fiskiskip, sem frv. nefnir. Ég veit, að það er mikill áhugi fyrir því hjá bæjarstjórn Siglufjarðar og sennilega hjá Siglfirðingum öllum, að þessi lausn fáist á málum þeirra. Mér er líka ljóst, að síldarverksmiðjur ríkisins hafa af því nokkurn hagnað að geta fengið fastamönnum sínum nokkur verkefni við hraðfrystihúsið og vélaverkstæði fyrir skipin, þegar síldarvertíðin stendur ekki yfir, þannig að þetta getur einnig stutt að hagkvæmum rekstri fyrir síldarverksmiðjur ríkisins.

Um þetta mál var fullt samkomulag í hv. Nd., og ég vænti þess, að hv. þm. þessarar d. geti einnig fallizt á að afgreiða málið á þennan hátt.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.