08.04.1963
Neðri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

205. mál, Kennaraskóli Íslands

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Menntmn. hefur athugað frv. til l. um Kennaraskóla Íslands og rætt það allýtarlega við hæstv. menntmrh. og við fulltrúa frá tveimur aðalsamtökum kennarastéttarinnar. Frv. þetta virðist vera mjög vel undirbúið og virðist sérstaklega sem hinir ýmsu aðilar, er hlut eiga að máli, hafi þegar um það fjallað og reynt hafi verið sem framast er unnt að samræma ólík sjónarmið.

Menntmn. mælir með samþykkt frv. með þrem brtt.

1. brtt. er við 2. gr. Þar stendur í 1. lið: „Almenn kennaradeild, 4 ára nám, sem endar með almennu kennaraprófi og veitir kennararéttindi í barna- og unglingaskólum landsins.“ Þarna hefur að yfirveguðu máli þótt rétt að bæta við orðunum „samkv. nánari ákvörðun í reglugerð“.

2. brtt. er við 4. gr. Mun vera gömul hefð að hafa í lögum ákvæði um það, að inntökuskilyrði í skóla sé, að nemendur hafi ekki næma kvilla og sjúkdóma og séu óspilltir að siðferði. En þeir, sem undirbjuggu þetta frv., hafa bætt inn í „né heldur verulegan málgalla eða líkamslýti, sem geri hann óhæfan til kennslustarfa“. Menntmn. er andvíg viðbót þessari.

Þess má geta, að þótt unglingar hafi málgalla, er mjög oft hægt að yfirvinna þá. Það getur verið ómannúðlegt að dæma unglinga frá því að geta gengið í þennan skóla eða hlotið kennaramenntun, t.d. ef viðkomandi skólastjóri væri óvenjulega viðkvæmur eða strangur í þessum efnum. Eins er með líkamslýti. Þau geta verið mismunandi, og a.m.k. Reykvíkingar muna eftir kryppling, sem hefur verið einhver bezti kennari, sem hér hefur verið. Menntmn. finnst ekki ástæða til að hafa ströng ákvæði í lögum um þessa hluti. Hins vegar hlýtur að gilda, að skólastjórar geti haft einhvers konar neyðarrétt í þessum efnum, ef um tilfelli er að ræða, sem krefjast ráðstafana eða banns. N. leggur því til, að þessi inntökuskilyrði verði felld niður úr gr., eins og um getur í 2. brtt.

3. brtt. er við 5. gr. og flutt samkv. beiðni hæstv. menntmrh. Í meðferð frv. kom svo um annan lið, að rétt til inngöngu í 1. bekk hinnar almennu kennaradeildar skuli veita fullgilt gagnfræðapróf, enda gangi gagnfræðingar undir viðbótarpróf í einstökum greinum. Þarna hafði staðið „gagnfræðapróf bóknámsdeildar“. En eftir að viðbótarprófi í einstökum greinum var bætt inn, þótti ekki rétt að binda þetta við bóknámsdeild og útiloka, að nemendur með gagnfræðapróf verknámsdeildar geti haldið áfram námi, ef þeir kynnu að óska þess eða vilja breyta áformum sínum, enda þurfi þeir þá að ganga undir viðbótarpróf í þeim greinum, sem þá skortir. Þess vegna er lagt til, að orðið „bóknámsdeildar“ í 2. lið falli niður og þar standi: „fullgilt gagnfræðapróf með lágmarkseinkunn í nokkrum aðalgreinum, sem reglugerð ákveður, enda gangi gagnfræðingar undir viðbótarpróf í einstökum greinum“ o.s.frv.

Með þessum breyt. leggur n. til, að frv. verði samþykkt.