14.02.1963
Neðri deild: 41. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
144. mál, heimild til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hvílíka þýðingu Skálholtsstaður hefur haft í þjóðarsögu Íslendinga. Sízt er ofmælt, þó að sagt sé, að Skálholt hafi um margar aldir verið einn af höfuðstöðum Íslands. Það var að vísu ein meinsemd þjóðfélagsins á þeim öldum, að það var enginn einn höfuðstaður, sem gæti orðið miðstöð menningar, atvinnulífs og landsstjórna á Íslandi. Fyrir það dreifðust kraftar þjóðarinnar um of. Og þó að ýmsum hafi þótt það miður, að biskupsdæmi legðist niður í Skálholti, er enginn vafi á hinu, að flutningur biskupsstóls til Reykjavíkur og sú viðurkenning, sem Reykjavík með þeim hætti og ýmsum öðrum um svipað leyti fékk sem höfuðstaður landsins, átti ríkan þátt í því að skapa möguleika til þess, að síðar meir gat Ísland á ný orðið sjálfstætt land.
Þessar bollaleggingar tilheyra að vísu liðnum tíma og draga engan veginn úr þýðingu Skálholtsstaðar. Þar hefur biskupsstóll verið allt frá því á síðari hluta 11. aldar og fram í lok 18. aldar, þannig að sá staður er tengdari kirkjusögu landsins og kristni en nokkur annar staður, og eins og ég sagði í upphafi máls míns, hafði hann ekki einungis meginþýðingu fyrir kirkjuna og kristnina, heldur fyrir alla þjóðarsöguna á þessu tímabili. Það var því eitt af merkjum skilningsleysis á sögulegu samhengi og þýðingu fornra verðmæta, að Skálholtsstaður skyldi látinn hrörna svo sem raun ber vitni, eftir að biskupsstóll var þaðan fluttur. Og það er öllum til lofs, sem eiga þátt í því, að staðurinn er nú, ef svo má segja, búinn að kasta ellibelgnum, og þar hefur verið að ytra formi búið þannig um, að við getum blygðunarlaust komið þangað sjálfir okkur til ánægju og uppbyggingar og leitt þangað erlenda gesti, sem marga hefur fýst löngum að koma til Skálholts, þó að lengi væri svo, að heldur væri sveigt hjá því að taka þangað erlenda menn, meðan staðurinn var í sem mestri niðurníðslu.
Nú er uppbyggingu staðarins svo langt komið, að ráðgert er, að hægt verði að vígja hina nýju Skálholtskirkju hinn 21. júlí n.k., og þá er eðlilegt, að vakni sú spurning, hvað eigi að gera við þær byggingar, sem þar eru komnar, og hvert verkefni staðurinn eigi að hafa í okkar framtíð. Sannast bezt að segja eru allar bollaleggingar um þetta enn mjög á reiki. Má segja, að það sé ekki einungis meðal almennings, heldur einnig meðal kirkjunnar manna, prestastéttarinnar, ekki síður en annarra. Ég tel bezt fara á því, að á þessu stigi verði ekki um það fullyrt, hver starfræksla þar henti bezt í framtíðinni og eigi bezt við nútímaþjóðfélag. En mér þykir eðlilegast, að kirkjan ráði þar miklu um sjálf, og þegar ég segi kirkjan, þá eru það þau kirkjulegu yfirvöld, sem lögum skv. ráða mestu um hennar innri mál, ef svo má segja, biskup, kirkjuráð og kirkjuþing.
Skálholt var upphaflega, eða réttara sagt skömmu fyrir aldamótin 1100, afhent af Gissuri biskupi til biskupsstóls, og var þá að vísu ráðgert, að biskupsstóll héldist þar þaðan í frá, en þeirri skipan var löglega breytt á 18. öld. Sumir vilja, að þessu verði breytt á ný og biskupsstóll settur þar aftur. Þetta frv, tekur enga afstöðu til þess deilumáls. Það er látið opið, hvað sem samþykkt þessa frv. liður, því þó að ráðgert sé, að þjóðkirkjan — þ.e.a.s. biskup og kirkjuráð nánar tiltekið — hafi þar forræði um framkvæmdir og starfrækslu, þá verður það að sjálfsögðu innan þeirra marka, sem löggjöf og fyrirmæli æðri stjórnvalda segja til um hverju sinni. Enn hafa kirkjuleg yfirvöld ekki komið sér saman um að óska eftir endurreisn biskupsstóls í Skálholti, og hefur því ekki verið ástæða til þess fyrir ríkisstj. eða Alþ. að taka afstöðu til slíkrar óskar frá þjóðkirkjunni. Hins vegar eru núna innan hennar uppi háværar raddir, þó að nokkurt ósamkomulag muni vera í þeim efnum, að upp verði komið þar kirkjulegum skóla, sem kirkjan reki þar sjálf fyrir það fé, sem hún til þess afli. Ef slíkan skóla ætti að fella inn í hið almenna fræðslukerfi landsins, þyrfti að sjálfsögðu til að koma atbeini stjórnar og Alþ., væntanlega bæði með lagabreytingu og veitingu fjár á fjárlögum. Ég hygg, að þær ráðagerðir eða bollaleggingar, sem uppi eru um slíkan skóla í Skálholti, séu nokkurs annars eðlis, að þar hafi menn í hyggju skólastofnun, sem sé utan hins almenna fræðslukerfis, einkum fræðslu, sem bætist ofan á lögboðna skólagöngu, og því sé ekki um að ræða óskir til ríkisins um bein fjárframlög í því efni umfram það, sem í þessu frv. felst. En efni þess er, eins og glögglega kemur fram, að þjóðkirkju Íslands verði endurgjaldslaust afhent til eignar og umsjár jörðin Skálholt í Biskupstungum ásamt öllum mannvirkjum og lausafé, sem nú eru í eign ríkisins á staðnum, enda veiti biskup og kirkjuráð eign þessari viðtöku f.h. þjóðkirkju Íslands og hafi þar forræði um framkvæmdir og starfrækslu. Þessari afhendingu á svo að fylgja einnar millj. kr. framlag á ári, sem verði til áframhaldandi uppbyggingar í Skálholti og jafnframt eða síðar eingöngu rekstrarfé þeirrar starfrækslu, sem biskup og kirkjuráð komi þar upp.
Það vakir fyrir mönnum með þessari tillögu, að fyrst verði lokið þeim framkvæmdum, sem nú eru þegar hafnar. Það kostar eitthvert fé að fullgera kirkjuna, jafnvel þó að byggingu hennar sé svo langt komið, að vígsla geti farið fram nú í sumar. Eins geri ég ráð fyrir, að eitthvað þurfi að endurbæta þann embættisbústað, sem þar er nú þegar, og er þá ætlunin, að þessu millj. kr. árlega framlagi verði fyrst varið til að ljúka þessum framkvæmdum, en þá eftir ákvörðun þeirra aðila, sem í frv. eru nefndir, en síðan ráði þeir, í hverjar viðbótarframkvæmdir skuli ráðizt, t.d. ef þeir koma sér saman um, að þar skuli rekinn kirkjulegur skóli, þá sé þeim heimilt að verja þessu fé til að koma slíkum skóla upp í fyrstu og síðar til rekstrar hans, en eigi ekki von á meira framlagi af hálfu ríkisins. Annars fjár, er þeir í þessu skyni teldu sig þurfa á að halda, yrðu þeir þá að afla á annan veg, með frjálsum samskotum eða öðrum þeim hætti, sem hin kirkjulegu yfirvöld telja sér samboðið og mögulegt.
Ég tel mjög vel fara á því, að einmitt við vígslu hinnar nýju Skálholtskirkju verði afhending staðarins á ný formlega tilkynnt. Það er að vísu svo, að ég hygg, að það sé óumdeilanlegt, að staðurinn hafi verið tekinn af kirkjunni með formlega löglegum hætti. Hinu má ekki gleyma, í hverju skyni hann upphaflega var afhentur úr einkaeign og hverja þýðingu hann hefur haft í kirkju- og kristnisögu þjóðarinnar. Ákvörðun um meðferð hans og þau not af gögnum hans og gæðum; sem hverju sinni eru möguleg, er því að mínu viti ekki betur komin hjá neinum öðrum en hinum kirkjulegu yfirvöldum, sem í frv. er getið.
Ég leyfi mér að svo mæltu að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.