18.04.1963
Efri deild: 75. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
144. mál, heimild til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Efni þessa frv. er það að fara fram á heimild til handa ríkisstj. til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað, og jafnframt er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður skuli árlega greiða 1 millj. kr. í sjóð, sem vera skal, eins og það er orðað í 2. gr. frv., til áframhaldandi uppbyggingar í Skálholti og rekstrarfé þeirrar starfrækslu, sem biskup og kirkjuráð koma þar upp. Þetta frv. er, eins og grg. ber með sér, flutt samkv. ósk kirkjuþings og biskups.
Endurreisn Skálholtsstaðar hefur, eins og kunnugt er, undanfarið verið metnaðarmál íslenzku þjóðarinnar, og hefur því máli, eins og hv. þdm. er kunnugt, allmikið þokað áleiðis síðustu árin. Þó að enginn ágreiningur hafi verið um það, að nauðsyn beri til þess að endurreisa staðinn vegna fornrar frægðar og af öðrum ástæðum, þá hafa, eins og kunnugt er, verið allskiptar skoðanir um það, hvers konar starfsemi sé eðlilegt að koma á fót í Skálholti, og hafa verið ýmsar till. frammi í því efni.
Það sjónarmið, sem liggur að baki þessu frv., er, að Skálholtsstaður sé svo tengdur þjóðkirkju Íslands, að eðlilegt sé, að sú starfsemi, sem þar verði rekin, verði fyrst og fremst á vegum þjóðkirkjunnar og í samræmi við óskir hennar.
Eins og nál. á þskj. 676 ber með sér, hefur menntmn. í meginatriðum fallizt á þetta sjónarmið, þar sem hún leggur til, að frv. verði samþ., en einstakir nm., sem undirskrifa álitið, hafa þó áskilið sér rétt til þess að fylgja brtt., sem fram kynnu að koma. Einn nm., hv. 5. þm. Reykn., var fjarstaddur, þegar málið var afgr., og ber hann því ekki ábyrgð á þeirri afgreiðslu, sem hér liggur fyrir.