25.03.1963
Neðri deild: 59. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)
215. mál, Tækniskóli Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Í þessu frv. er lagt til, að stofnaður verði í Reykjavík nýr skóla, Tækniskóli Íslands. Skal markmið skólans vera að veita nemendum sínum tæknimenntun, er geri þá hæfa til að takast á hendur ýmiss konar tæknistörf í þágu íslenzkra atvinnuvega. Á fræðslukerfi þjóðarinnar er nú sá annmarki mestur, að hér er ekki unnt að afla sérmenntunar í almennum tæknifræðum með hliðstæðum hætti og unnt er í svonefndum tækniskólum eða teknikum í nágrannalöndum, en þar er um að ræða skóla, sem veita framhaldsmenntun í tæknifræðum á fræðslustigi, er segja má að samsvari með nokkrum hætti menntaskólastigi. Hér á landi eiga nú ungir menn ekki kost á neinu tækninámi milli iðnfræðslustigs og verknámsdeildar gagnfræðaskóla annars vegar og háskólanáms í verkfræði hins vegar, að frátöldu því tækninámi, sem fer fram í vélskólanum í Reykjavík. Er því um að ræða mjög tilfinnanlega eyðu í fræðslukerfinu, að því er snertir skilyrði til tæknináms.
Þessu frv, er ætlað að bæta úr brýnni þörf, sem á því er, að æskufólk geti stundað tækninám á hærra stigi en því, sem stundað er í gagnfræðaskólum eða iðnskólum, án þess þó að um háskólanám í verkfræði sé að ræða. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvað gildi tækni og hvers konar verkmenningar fer vaxandi í nútíma þjóðfélagi. Skilyrði þjóðar til þess að bæta hag sinn og lífskjör eru líklega ekki undir neinu komin í jafnríkum mæli og því, að hún kunni að beita nýjustu tækni og sem fullkomnastri verkkunnáttu á öllum sviðum. En frumskilyrði þess, að unnt sé að hagnýta nýjustu tækni og fyllstu verkkunnáttu, er að sjálfsögðu, að tæknimenntun sé á háu stigi. Í því sambandi er ekki nægilegt, að iðnstéttir séu vel menntar, og ekki heldur; að til séu nægilega margir háskólamenntaðir verkfræðingar til þess að vinna þau störf, sem þeir einir geta unnið. Þeim tæknistörfum fer sífellt fjölgandi, sem eru ekki á verksviði iðnlærðra manna og ekki þarf heldur háskólamenntaða verkfræðinga til þess að sinna. Það er til þess að búa menn undir slík störf, sem hvarvetna í nágrannalöndum og með iðnaðarþjóðum hefur verið komið á fót sérstökum skólum, sem nefndir eru tækniskólar eða tekniskum. Þeir, sem lokið hafa prófum frá slíkum skólum, voru til skamms tíma nefndir iðnfræðingar hér á landi eða skyldi nefna svo samkv. lögum. Þar eð það nafn er hins vegar villandi, hefur Alþ. einmitt nú nýlega ákveðið, að starfsheiti þessara manna skuli vera tæknifræðingar. Tilgangur þessa frv. er að koma hér á fót skóla, sem brautskrái tæknifræðinga.
Hér á landi er nú mikill skortur á tæknifræðingum. Tala verkfræðinga er hér 1.4 miðað við hvert þúsund landsmanna, en tala tæknifræðinga er 0.5 miðað við hvert þúsund. Hér eru því næstum þrisvar sinnum fleiri verkfræðingar en tæknifræðingar. Í nágrannalöndum er talið, að nauðsynlegt sé, að 2 verkfræðingar komi á hvert þúsund íbúa, en 4 tæknifræðingar, þ.e.a.s. þar er talið eðlilegt, að tæknifræðingar séu hlutfallslega helmingi fleiri en verkfræðingar. Sums staðar er jafnvel talið nauðsynlegt, að tæknifræðingar séu þrisvar til fjórum sinnum fleiri en verkfræðingar. Hér á landi er tala tæknifræðinga hins vegar ekki nema þriðjungur af tölu verkfræðinga. Sést af þessu greinilega, hversu hér er gífurlegur skortur á tæknifræðingum. Tala íslenzkra tæknifræðinga er hlutfallslega ekki nema fjórðungur þess, sem hún er talin þurfa að vera minnst í nágrannalöndum, og ekki nema áttungur þess, sem hún er sums staðar talin þurfa að vera. Virðist ekki þurfa frekari rök fyrir því, að brýna nauðsyn ber til alvarlegs átaks í því efni að stuðla að því, að miklu fleiri ungir menn hefji tæknifræðinám en átt hefur sér stað undanfarið.
Þær raddir hafa heyrzt í umr, um þessi mál undanfarið, að vafasamt sé, hvort Íslendingar eigi að ráðast í það að stofna tækniskóla hér á landi, þar eð slíkir skólar séu dýrir í rekstri, hitt sé ódýrari og einfaldari leið, að styrkja unga menn til náms í erlendum tæknifræðiskólum og hafa hér á landi undirbúningsnámskeið, sem auðveldi þeim inngöngu í erlendu tækniskólana. Tæknimenntun einmitt á því stigi, sem hér er um að ræða, er hins vegar orðin sérhverri þjóð, sem leggja vill áherzlu á aukna framleiðni og bætta afkomu, svo nauðsynleg, að það getur ekki talizt viðunandi að þurfa að sækja hana algerlega til annarra þjóða. Þess vegna telur ríkisstj. einsætt að stefna að því að gera tæknimenntunina innlenda með því að koma hér á fót íslenzkum tækniskóla, sem auk þess að veita hliðstæða menntun og gert er í erlendum tækniskólum taki sérstakt tillit til sérþarfa íslenzkra atvinnuvega á tæknimenntunarsviðinu.
Það er ljóst, að það hlýtur að taka nokkurn tíma að koma slíkum skóla á fót. Að því á ekki að hrapa, heldur byggja upp skólann smám saman. Það er mikilvægara, að skólinn sé góður og fræðslan vönduð, þannig að þeir tæknifræðingar, sem fá menntun sína hérlendis, verði vel menntaðir, en hitt, að skóla sé hróflað upp í skyndi. Af þessum sökum er heimilað í bráðabirgðaákvæði frv., að stofnun tækniskólans fari fram í áföngum. Gert er ráð fyrir því, að skólinn starfi í deildum og skuli þar fyrst um sinn vera rafmagnsdeild, véladeild, byggingardeild, fiskideild og vélstjóraskóli. En vélskólinn í Reykjavík skal vera deild í hinum nýja tækniskóla. Er gert ráð fyrir því, að einstakar deildir verði stofnaðar eftir því, sem framkvæmanlegt þykir og fé er veitt til í fjárlögum.
Miðað er við, að unnt yrði að hefja kennslu í 1. bekk deildanna næsta haust, en nám í 1. bekk mun geta verið sameiginlegt fyrir þær deildir, sem gert er ráð fyrir að starfi í skólanum. Jafnframt yrði undirbúin kennsla 2. bekkjar á næsta ári þar á eftir. Ef ekkí þætti fært að íláta allar fjórar deildirnar taka til starfa samtímis, yrði að velja þá deild úr, sem brýnust þörf væri talin á og framkvæmanlegast þætti að hefja fullkomna kennslu í. Vélskólinn mundi hins vegar starfa með óbreyttum hætti innan tækniskólans.
Þar eð lítið er um nám í tæknigreinum í þeim skólum, sem nú starfa innan skólakerfisins, er óhjákvæmilegt, að við skólann starfi sérstök undirbúningsdeild. Gert er ráð fyrir því, að inngönguskilyrði í hana séu annars vegar próf frá iðnskóla og hins vegar miðskólapróf ásamt verklegri þjálfun, sem að dómi tækniskólans er talin jafngilda verklegri þjálfun í iðnnámi. Auk þess er gert ráð fyrir því, að haldið verði sérstakt inntökupróf í undirbúningsdeildina. Þeir, sem ljúka prófi úr henni, fá inngöngu í tækniskólann, sem gert er ráð fyrir að verði þriggja ára skóli. Það mun því taka þá, sem lokið hafa iðnskólaprófi eða miðskólaprófi, að viðbættu nokkru verklegu námi, 4 ár að ljúka tæknifræðináminu.
Í þessu sambandi skal ég skýra frá því, að á s.l. sumri heimilaði menntmrn. vélskólanum í Reykjavík að koma á fót undirbúningsdeild undir nám í erlendum tækniskólum, og var þegar á s.l. sumri leitað samstarfs við fræðsluyfirvöld í Danmörku og Noregi um viðurkenningu á prófi úr þessari deild sem inntökuprófi í tækniskóla þessara landa. Hefur þessi undirbúningsdeild starfað nú í vetur með 30 nemendum. Námsefni hennar var ákveðið í samráði við stjórn tækniskóla í Danmörku og Noregi, og er gert ráð fyrir því, að hingað komi í vor fulltrúar frá fræðsluyfirvöldum í þessum löndum til þess að taka þátt í prófnefndarstörfum við undirbúningsdeildina. Próf úr þessari undirbúningsdeild veitir síðan rétt til inngöngu í tækniskóla í Danmörku og Noregi samkv. samkomulagi við fræðsluyfirvöld þessara landa, eins og ég gat um áðan. Prófið mundi og að sjálfsögðu veita rétt til inngöngu í tækniskóla þann, sem gert er ráð fyrir að stofna samkv. þessu frv. Það er einmitt vegna þess, að slík undirbúningsdeild hefur nú starfað innan vélskólans í Reykjavik í einn vetur, að unnt er að hefja kennslu í 1. bekk tækniskólans þegar næsta haust.
Ástæða er til þess að fara nokkrum orðum um vélskólann í Reykjavík og námið í honum. Inugönguskilyrði í hann eru samkv. gildandi lögum þau, að nemandi hafi lokið iðnskólanámi og hann hafi jafnframt lokið vélvirkjasveinsprófi eftir 4 ára járniðnaðarnám. Þessi ströngu inntökuskilyrði hafa valdið því, að vélskólinn hefur oft og einatt alls ekki verið fullsetinn. Árið 1958–1959 voru nemendur hans 44, 1959–1960 voru þeir 40, 1960–1961 31, 1961–1962 29 og nú á þessum vetri 22. Samtímis því, að aðsókn að vélskólanum er ekki meiri en þetta, er hér mikill skortur á lærðum vélstjórum. Verður stöðugt að veita undanþágur frá þeim kröfum. sem gerðar eru í lögum um menntun þeirra, sem stunda vélstjórastörf. Raunar er það ekki svo, að ungir menn óski ekki eftir því að stunda nám í vélskólanum. Ýmsum, sem það vilja, reynist það ekki kleift, vegna þess sð erfitt reynist að fá þá undirbúningsþjálfun, sem nauðsynleg er til þess að fá inngöngu í skólann. Allt er þetta þeim mun bagalegra vegna þess, að vélskólinn er orðinn allfullkomin kennslustofnun, sem gæti veitt miklu fleiri ungum mönnum menntun en nú á sér stað. Ég tel því brýna nauðsyn bera til að breyta gildandi lagaákvæðum um vélskólann og opna ungum mönnum nýjar leiðir til vélstjóranáms.
Nú má segja, að verknámsdeildir gagnfræðastigsins séu lokuð braut. Þeir, sem þar stunda nám, eiga ekki völ á framhaldsnámi í samræmi við þann undirbúning, sem þeir hafa hlotið. Væri að mínum dómi eðlilegt að koma á tengslum milli verknámsdeilda gagnfræðaskólanna og vélskólans, þannig að þeir, sem lokið hafa prófi í verknámsdeildum gagnfræðaskólanna, ættu að loknu nokkru viðbótarnámi kost á því að stunda vélstjóranám, án þess að um fjögurra ára járniðnaðarnám væri að ræða. En þetta er sérstakt úrlausnarefni, og er í þessu frv. ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á vélskólanum eða inngönguskilyrðum í hann eða vélstjóranáminu.
Um nokkur atriði þessa máls munu vera skiptar skoðanir, og hefur ekki verið talið rétt að blanda þeim vandamálum saman við hin almennu tæknimenntunarmál. Í menntmrn. hefur undanfarið verið unnið að till. um breyt. á l. um vélskólann í Reykjavík. Verður það mál rætt ýtarlega við forustumenn vélskólans og vélstjórastéttarinnar, en ákvörðun hefur ekki verið tekin um það enn, hvort flutt verði frv. um það efni á þessu þingi.
Þetta frv. er samið af þriggja manna nefnd, sem menntmrn. skipaði haustið 1961 og í áttu sæti þeir Ásgeir Pétursson sýslumaður, sem þá var deildarstjóri í menntmrn., og var hann formaður n., Gunnar Bjarnason skólastjóri vélskólans í Reykjavík og Finnbogi R. Þorvaldsson, sem þá var prófessor við verkfræðideild háskólans. Frv. hefur verið rætt við fulltrúa frá Tæknifræðingafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands. Af hálfu tæknifræðinganna og verkfræðinganna hefur verið lýst miklum áhuga á því, að skilyrðin til tæknimenntunar verði bætt hér á landi. Öllum aðilum, sem um þetta mál hafa fjallað, er ljóst, að tæknifræðsla er vandasöm og kostnaðarsöm, en nauðsyn hennar er svo brýn, að ekki má víkjast undan vandanum né horfa í kostnaðinn, enda víst, að bætt tæknimenntun mun reynast arðsöm hér á landi, ekki síður en með öðrum þjóðum.
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.