25.03.1963
Neðri deild: 59. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1140 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)

215. mál, Tækniskóli Íslands

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs áðan, var það ætlun mín að beina fsp. til hæstv. ráðh., en í síðari hluta ræðu sinnar hefur hæstv. ráðh. að nokkru leyti upplýst það, sem ég ætlaði að spyrja um. Þó skal ég fara um þetta mál örfáum orðum.

Hinn 14, marz 1962 var samþ. hér á Alþ. þál. um undirbúningsnámskeið til tæknifræðimenntunar, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi skorar á ríkisstj. að láta athuga, á hvern hátt heppilegast verði að koma fyrir hérlendis tæknifræðikennslu fyrir iðnaðarmenn, sem í vaxandi mæli leita til erlendra tækniskóla. Sé í því sambandi athugað, hvort hægt sé að koma upp tæknifræðideild við Vélskóla Íslands eða iðnskólann í Reykjavík. Þar til unnt verður að veita slíka fræðslu hér á landi, stuðli ríkisstj. í samráði við Tæknifræðingafélag Íslands að undirbúningsnámskeiðum fyrir þó, sem hafa í huga að komast á tæknifræðiskóla erlendis.“

Þegar þessi till. var til umr. í fyrra í allshn. Sþ., komu fulltrúar frá Tæknifræðingafélagi Íslands á fund n. Á þeim fundum upplýstu þeir margt um þessi mál, um hina erlendu skóla, sem íslenzkir iðnaðarmenn og stúdentar hafa sótt og þar sem þeir hafa aflað sér tæknifræðimenntunar, um þann undirbúning, sem mönnum þætti á skorta hér heima fyrir, til þess að menn gætu notið kennslu í þessum erlendu skólum, um þörfina fyrir tæknifræðinga hér á landi og ýmislegt fleira. Þeir veittu okkur nm. þá ýmsar upplýsingar um fjölda tæknifræðinga í nágrannalöndunum, sem sumar eru nú fram komnar í grg. þessa stjfrv. Nú er það upplýst, að mér skilst, að slíkt undirbúningsnámskeið hafi þegar komizt á fót, a.m.k. í einhverjum greinum tæknifræðinnar, en eins og kunnugt er, þá er hér um margar greinar að ræða. Þeir íslenzku tæknifræðingar, sem þegar hafa stundað nám í erlendum skólum, eru sérmenntaðir í tækni á ýmsum sviðum, í vélfræði, í arkitektúr og í mörgu og mörgu, ýmsum greinum. En hér liggur nú fyrir frv. um stofnun tækniskóla. Að vísu er gert ráð fyrir, að sá skóli verði stofnaður í áföngum, en þó þannig, að það er gert ráð fyrir, að kennsla í 1. bekk hinna einstöku deilda innan skólans muni fara fram á næsta vetri, ef frv. verður að lögum. Ég sé nú ekki við lauslegan yfirlestur, að beinlínis sé fram tekið í frv, um það próf, sem skólinn veiti, en trúlega er þá ætlazt til þess, að í reglugerð séu ákvæði um það.

Ég vil fagna því, að komið skuli vera fram frv. um þetta efni, því að á því er enginn vafi, að mikil þörf er á slíkum mönnum hér á landi, tæknifræðingum. Á hinu kann að vera einhver vafi, hvort við höfum enn nægum kennslukröftum á að skipa til þess að kenna við slíkan skóla, þegar hann væri fullstofnaður. Um það skal ég ekki dæma og kemur sjálfsagt í ljós á sínum tíma, en ég geri ráð fyrir því, að það sé þá ætlazt til þess, á meðan skólinn er ekki að fullu stofnaður, þ.e.a.s. ekki starfa nema byrjunardeildir í hverri grein, þá geti orðið eitthvert samband á milli þessarar kennslu og þeirra skóla, sem hingað til hafa verið sóttir. Ég tók ekki eftir, að það kæmi neitt fram um það í ræðu hæstv, ráðh., en hefði verið gott að fá upplýst, hvernig það er hugsað.

En sérstaklega var það nú ætlun mín að spyrja um það, hvort og þá á hvern hátt samband hefur verið haft við félagsskap tæknifræðinga um þetta mál. Ég veitti því sem sé athygli, að í þeirri undirbúningsnefnd, sem hefur undirbúið þetta mál og getið er um í upphafi grg., virtist ekki vera neinn maður frá þessu félagi. Hæstv. ráðh. upplýsti það í ræðunni, að rætt hafi verið við þessa menn, og er það vel, ef svo hefur verið, en ég hygg, að það eigi ekki að ganga frá svona löggjöf, nema þessi félagsskapur hafi tækifæri til þess að láta í ljós álit sitt um einstök atriði löggjafarinnar, og vildi ég sérstaklega beina því til þeirrar n., sem þetta mál fær til meðferðar, að hún kynni sér álit þessara manna, félagsskapar ísl, tæknifræðinga. Í þessum félagsskap virðast vera mjög áhugasamir menn, og er áreiðanlega ávinningur að því að hafa þá með í ráðum um þessa löggjöf.