25.03.1963
Neðri deild: 59. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
215. mál, Tækniskóli Íslands
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður, enda hef ég aðeins stutta aths. — Ég vildi gjarnan gera fsp. til hæstv. menntmrh. í sambandi við vélstjóraskólann. Hann hefur nú upplýst, að þar sé ekki um prentvillu að ræða, í 6. gr. eigi að standa vélstjóraskóli, en ekki vélstjóradeild. Nú er það svo, að vélstjóraskólinn er, eins og nafnið bendir til, skóli fyrir vélstjóra. Og þar eru m.a. útskrifaðir þeir menn, sem hafa réttindi til vélgæzlu á verzlunarflotanum og á hinum stærri fiskiskipum og raunar á öllum fiskiskipum, en menn með lægra prófi hafa einnig réttindi til vélgæzlu á hinum minni skipum. Úr vélstjóraskólanum útskrifast sem sé vélstjórar á skipum m.a. Nú skilst mér samkv. frv. að ætlunin sé að gera þennan skóla að deild í tækniskóla með þessu frv., og þeir, sem útskrifast úr honum, verða þá tæknifræðingar, mundu væntanlega bera heitið vélfræðingar. Er það þá ætlunin, að það verði sett að skilyrði til þess, að menn verði vélstjórar á verzlunarflotanum og hinum stærri fiskiskipum, að þeir séu tæknifræðingar? Er það ætlunin eða hvernig verður þessu komið fyrir? Um það er ekkert í frv. En auðvitað er hugsanlegt, að úr einhverjum lægri bekkjum þessa skóla eigi að útskrifa menn, sem heiti vélstjórar, en hinir heiti væntanlega vélfræðingar, sem útskrifast úr hinum nýja vélstjóraskóla, sem verður deild í Tækniskóla Íslands.
Um það, sem hefur verið rætt um Reykjavík og Akureyri, skal ég ekki fara fleiri orðum. En ég vil skjóta því fram til athugunar í hv. n., hvort það væri ekki hugsanleg leið í þessu máli, að einhverjar af deildum þessa væntanlega Tækniskóla Íslands væru staðsettar á Akureyri, ein eða fleiri. Þær deildir mætti þá búa þannig að tækjum, að þær þættu nægilega starfhæfar, þótt mönnum e.t.v. þætti í of mikið ráðizt að búa allan tækniskólann slíkum tækjum að nýju.