04.12.1962
Neðri deild: 25. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
8. mál, öryggisráðstafanir gegn geislavirkum efnum
Frsm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur athugað frv. það, sem hér liggur fyrir, og leggur n. einróma til, að það verði samþykkt með þeim breytingum, sem fram koma í nál. hennar á þskj. 145.
N efndin boðaði á sinn fund nokkra sérfróða menn um þessi mál, þá dr. med. Sigurð Sigurðsson landlækni, dr. med. Gísla Petersen yfirlækni á röntgendeild Landsspítalans og prófessor Magnús Magnússon.
Breytingin, sem við flytjum við 3. gr. frv., er gerð samkv. ábendingu þessara aðila, sem gerðu n. grein fyrir skoðun sinni, og féllst hún á rök þeirra, enda vart á færi annarra aðila en þeirra, sem sérþekkingu hafa á þessum málum, að dæma um þau atriði, sem þar um ræðir.
Breytingin við 4. gr. frv. er gerð að athuguðu máli eftir viðræður, sem n. átti við þá aðila, sem ég áðan nefndi. Kom fram í þessum viðræðum, að um allviðtækt eftirlit hlyti að vera að ræða, sem óhjákvæmilega hefði nokkurn kostnað í för með sér. Verður að telja eðlilegt með hliðsjón af öðru opinberu eftirliti í landinu, bæði öryggiseftirliti o.fl., að viðkomandi aðilar beri kostnaðinn við eftirlitið að einhverju eða öllu leyti. Töldu hinir sérfróðu menn, að eðlilegast væri, að eftirlit með geislavirkum efnum og geislatækjum væri framkvæmt á vegum heilbrigðisyfirvalda landsins, og taldi landlæknir vel geta samrýmzt, að sá aðili, sem eftirlit þetta hefði með höndum á vegum heilbrigðisyfirvaldanna, væri einnig að öðrum þræði starfandi á Landsspítalanum, og mundi það draga úr kostnaði við eftirlitið.
Formaður heilbr: og félmn., hv. 1. þm. Vestf., ræddi þessar tvær breyt. við hæstv. heilbrmrh., og féllst hann á þær fyrir sitt leyti.
Í viðræðunum við þá aðila, sem n. boðaði á fund sinn, kom fram, að mesta hætta á geislavirkni af völdum tækja og efna væri fyrir þá menn, sem störfuðu með röntgentæki, sem notuð eru á sviði læknisfræði hér á landi, til myndatöku og lækninga, svo og röntgentækja, sem notuð eru í einstökum greinum iðnaðar og verzlunar.
Í sambandi við fsp., sem fram kom í n., upplýstu hinir sérfróðu menn, að ekki mundi stafa nein hætta á geislavirkni frá þeim ratsjám, sem í bátum og skipum eru hér á landi. Hins vegar væri sjálfsagt, að eftirlit væri haft með innflutningi slíkra tækja, og væri það í samræmi við það, sem átt hefur sér stað um alllangt árabil, bæði á Norðurlöndum og annars staðar erlendis.
Eins og fram kemur af grg. frv., hefur það verið samið að frumkvæði Kjarnfræðinefndar Íslands og hlotið rækilegan undirbúning sérfræðinga og meðmæli landlæknis. Mun frv. vera í höfuðatriðum samhljóða tilsvarandi löggjöf nágrannaþjóða okkar.
Heilbr.- og félmn. leggur einróma til, að frv. verði samþykkt með þeim breytingum, sem fram koma í nál. hennar á þskj. 145.