19.04.1963
Neðri deild: 77. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1246)

246. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það er misskilningur hjá hv. þm., að þessi tvö frv. séu stjfrv. Annað er stjfrv., það sem ég mælti fyrir, hitt er ekki flutt af ríkisstj., heldur n. í Ed.

Varðandi þessi 5% í jöfnunarsjóð af verðtollstekjum, þá er það líka alger misskilningur hjá hv. þm., að slíkt ákvæði eigi heima í sjálfri tollskránni, því þó að nauðsynlegt væri að setja í tollskrána bráðabirgðaákvæði varðandi þetta ár, sem nú stendur yfir, þá er það með öllu óeðlilegt, að í tollskrárl. sjálfum sé verið að ráðstafa hluta af verðtollstekjum ríkisins til frambúðar. Þess vegna var auðvitað ljóst, að þetta þurfti að koma sem breyt. á l. um jöfnunarsjóð, eins og ég gerði ráð fyrir strax, þegar málið var lagt fyrir, svo að ég held, að þessi hv. þm. geti ekki helgað sér neinn eignarrétt að þessu né höfundarrétt.