08.04.1963
Efri deild: 69. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (1255)
242. mál, fasteignamat
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Gildandi lög um fasteignamat eru frá 1945. Með þeim var svo kveðið á, að fasteignamat, þ.e.a.s. aðalmat, skyldi fram fara 25. hvert ár, og skyldi miða að því, að næsta aðalmat taki gildi 1. janúar 1965. Matið skal framkvæmt af yfirfasteignamatsnefnd, sem skipuð er þrem mönnum, og nær starfssvið hennar yfir landið allt, en auk þess skyldi vera þriggja manna fasteignamatsnefnd í hverjum kaupstað og hv erri sýslu.
Þegar yfirfasteignamatsnefnd fór að undirbúa næsta mat og endurskoða reglur og þau sjónarmið, sem þar skyldi við hafa, þótti henni sýnt, að rétt væri og nauðsynlegt að breyta ýmsum ákvæðum gildandi laga um fasteignamat. Niðurstaðan varð sú, að samið var nýtt frv. til l. um fasteignamat og fasteignaskráningu, það, sem hér liggur fyrir. Í yfirfasteignamatsnefnd eiga sæti Ármann Snævarr prófessor og háskólarektor, sem er formaður, Jón Pálmason og Torfi Ásgeirsson. Þeir hafa samíð þetta frv., og er í grg. þess skýrt mjög ýtarlega, í hverju breytingarnar eru fólgnar.
Á bls. 6—7 í frv. eru dregnar saman í 15 liðum þær helztu breytingar, sem er um að ræða. Ég get því farið hér fljótt yfir sögu, skal aðeins taka það fram, að í stað þess, að eftir gildandi lögum skal aðalmat fara fram 25. hvert ár, er gert ráð fyrir í þessu frv., að það fari fram 15. hv ert ár, og þykir ekki fært að láta lengri tíma liða þar í milli. Þá er það nýmæli m.a., að fasteignamatsnefndir skulu einnig framkvæma aukamöt þau, sem fram eiga að fara milli aðalmata, en nú eru það úttektarmenn og sérstakir millimatsmenn, sem framkvæma þau aukamöt. Fasteignamatsnefndin telur, að þar sem matsmenn fasteignamatsnefnda hafi hlotið mikla reynslu af störfum við aðalmatið, tryggi það meiri festu og samræmi í fasteignamötum milli aðalmata, ef þeirri n. væri einnig falið þetta verkefni. Eg vil taka það fram, að einn mn., Jón Pálmason, telur rétt að halda heldur þeirri skipan, sem nú er, að úttektarmenn framkvæmi þessi millimöt, eða a.m.k. sé því haldið í sveitum.
Ég vil svo benda á ákvæði til bráðabirgða, sem hljóðar svo:
„Áður en nýtt aðalmat fasteigna samkv. lögum þessum gengur í gildi, skal fram fara endurskoðun á gildandi ákvæðum 1., sem fasteignamat hefur áhrif á, og miðist endurskoðunin við, að skattar á fasteignum hækki ekki almennt vegna hækkunar fasteignamatsins.“
Eins og kunnugt er, miðast ýmis gjöld við fasteignamat, og þó að svo kynni að fara, að einhver breyting yrði á fasteignamati við þetta næsta aðalmat, er að sjálfsögðu ekki ætlunin, að þau gjöld, sem við fasteignamat eru miðuð, hækki af sjálfu sér við hið nýja mat, heldur að endurskoðun fari fram á öllum slíkum ákvæðum, áður en nýja matið tekur gildi.
Ég vil að öðru leyti vísa til hinnar ýtarlegu grg. með frv. og legg til, að frv. verði visað til 2. umr, og væntanlega allshn. Mér skilst, að það geti verið um tvær n. að ræða, fjhn. eða allshn., líklega hafa þessi mái oftar verið í allshn.