18.04.1963
Neðri deild: 75. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)
243. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég lét þess getið við 2. umr., um leið og ég bar fram þá ósk við hv. menntmn., að hún tæki till. sína á þskj. 649 aftur til 3. umr., að fram hefðu farið og fram mundu fara viðræður við samtök veitingamanna um það ákvæði frv., á hvaða tíma kvölds skyldi hefja innheimtu þess gjalds, sem gert er ráð fyrir að vínveitingahús taki að innheimta, ef þetta frv. nær fram að ganga. Síðdegis í gær og í morgun hafa farið fram áframhaldandi umr. við fulltrúa veitingamanna um framkvæmd þessa atriðis.
Svo að ég rifji upp í örfáum orðum, hvað hér er um að ræða, þá er það ákvæði í frv., að umræddan 15 kr. inngangseyri að vínveitingastöðunum skuli byrja að innheimta kl. 6 að kvöldi. Samtök veitingamanna bentu á, að heimild til að hefja vínveitingar hæfist ekki fyrr en kl. 7 að kvöldi og þess vegna væri of snemmt að byrja að innheimta þetta gjald þegar kl. 6. Þess vegna var það, að hv. menntmn. bar fram þá brtt., að í stað „kl. 6“ kæmi: kl. 8.
Á hinn bóginn bentu embættismenn, tollstjóri og lögreglustjórinn í Reykjavík, á, að það væri of seint að hefja innheimtu gjaldsins kl. 8 á kvöldin, því að fjölmargir gestir væru komnir inn í húsið fyrir kl. 8 og sætu þar úr því allt kvöldið, þannig að að réttu lagi settu þeir að greiða aðgangseyrinn, en mundu ekki greiða hann, ef ekki væri tekið innheimtugjaldið fyrr en kl. 8. Þess vegna var talsvert um það rætt síðdegis í gær og í morgun, hvort ekki væri rétt að hef ja innheimtu gjaldsins kl. 7, þ.e.a.s. á sama tíma og rétturinn til vínveitinga hefst. Veitingamenn eru þó ekki alls kostar ánægðir með það og benda í því sambandi á, að milli 7 og 8 komi ýmsir gestir í þessi vinveitingahús, sem jafnframt eru matsölustaðir, til þess eins að njóta kvöldverðar, en sitji þar ekki fram yfir kl. 8 eða kl. 9, eftir að dans hefst, þannig að óeðlilegt sé að krefjast skemmtanaskatts af þessum gestum, sem einungis njóta kvöldverðar. Þeirra ósk er því sú helzt, að ekki verði byrjað að innheimta gjaldið fyrr en kl. 9, en teljast geta fallizt á, að byrjað verði að innheimta gjaldið kl. 8. Þó fallast fulltrúar veitingamanna á þau sjónarmið lögreglustjóra og tollstjóra, að einkum á föstudögum og laugardögum sé mjög algengt, að gestir, sem koma á þessa staði til að vera þar allt kvöldið, m.a. til að dansa, komi þar fyrir kl. 8, hins vegar sé ekki algengt önnur kvöld vikunnar, að þeir, sem ætla að vera allt kvöldið á slíkum skemmtistað, komi þar fyrir kl. 8.
Niðurstaðan af viðræðum um þetta síðdegis í gær og í morgun var sú, — og um það eru embættismennirnir, tollstjóri og lögreglustjóri, og stjórn félags veitingamanna á einu máli, — að heppilegast sé að kveða ekki á um það í lögunum sjálfum, á hvaða tíma hefja skuli innheimtu þessa gjalds, heldur hafa hér hliðstæðan hátt á og nú er um opnunar- og lokunartíma þessara skemmtistaða, sem hlut eiga að máli, vínveitingahúsanna, en hann er ákveðinn í reglugerð. Þess vegna hef ég leyft mér að flytja brtt, þess efnis við 1. gr., að fyrir orðin „eftir kl. 6 að kvöldi“ komi: að kvöldi á þeim tíma, sem ákveðinn veróur í reglugerð. — Eru þá sams konar ákvæði um það, hvenær vínveitingar megi hefjast, hvenær þessir skemmtistaðir skuli loka og frá hvaða tíma skuli krefjast aðgangseyris, skemmtanaskatts af þeim, sem þessa staði sækja. Hefur verið samkomulag um að láta fara fram nokkru nánari athugun á næstu dögum og sérstaklega um næstu helgi, hvenær menn byrji yfirleitt að sækja þessa skemmtístaði, vegna þess að allir eru sammála um, að eðlilegt sé að láta þá greiða þennan aðgangseyri, sem koma á skemmtistaðina og eru þar meginhluta kvöldsins. Hins vegar væri æskilegt að hlífa þeim við greiðslu þessa gjalds, sem eingöngu koma á þessa staði til að neyta kvöldverðar og hverfa af stöðunum aftur að kvöldverði loknum. Mundu ákvæði í reglugerð vera miðuð við þetta meginsjónarmið og leitazt við að ná um þau ákvæði samstöðu þeirra embættismanna, sem mest fjalla um þetta, tollstjóra og lögreglustjóra, og stjórnar samtaka veitingamanna, sem eiga og reka þau hús, sem hér eiga hlut að máli.